Mánudagsmorgunn, og aftur komin rigning. En við fengum tvo þessa fínu daga með sól þó að ekki væri sérlega hlýtt nema í skjóli. Á fim.kvöld þegar Klaus kom heim tilkynnti hann okkur að hann hefði tekið sér frí á daginn eftir, sem sé á fö. Við áttum báðar ekki til orð. Hvað kæmi til. Hann langaði þá bara til að vera heima þegar sólin væri loks væntanleg :) Það var líka ýmislegt, sem hann ætlaði að koma í verk. Við notuðum svo fö. í garðvinnu. Klaus klifraði upp á stiga og hreinsaði úr rennunum, sem voru troðfullar af laufi og mold. Svo ók hann til Susanne, og fékk lánaða vél til að hreinsa mosa úr grasinu. Fór svo í það meðan ég hreinsaði illgresi utan við girðinguna. Á laugardaginnn settum við svo allan mosann þar og ég trampaði á honum með aðstoð Sonju, sem var ekki lengi að koma í heimsókn þegar hún sá okkur:) Vona að þetta dugi eitthvað til að kæfa illgresið um tíma. Klaus fór aðra ferð með tætarann. Þetta var heldur betur magn af mosa og mold í restina. Sáðum svo fræjum og settum áburð. Svo var vökvað og vonandi ber þetta einhvern árangur.
Margrét vaknaði snemma í besta skapi í sólinni. Hún tók til í skápnum sínum, og setti sumarfötin framar. En ekki hélst þetta nú lengi. Gærdagurinn var ekki sérlega spennandi. Alveg sólarlaust. Samt fór Klaus í klukkustundargöngu. það var nú gott. Margrét var að læra fyrir próf. Ég kom ekki miklu í verk, en eldaði þó hollustumat. Grænmetispastarétt í gær og stekti fisk á laugardaginn.
Hugurinn er auðvitað heima þessa dagana.Það er búið að vera ástand á mömmu, ekki annað hægt að segja. Hún segir að hún haldi læknunum við efnið og þeir komi inn með sloppana standandi út eins og prik þegar þeir þjóti til hennar :) Enda fékk hún létt hjartaáfall, en komst til sín án aðstoðar. Er búin að vera með blóðþrýsting um 20, og fékk óreglulegan hjartslátt í nokkur skifti. Nú vonum við að það verði loks settur gangráður í hana í dag. Vandinn er blóðið, sem þarf að vera þykkt. En hún er jú búin að vera á blóðþynningarmeðulum, og fyrst þurfti að vinna gegn því. Hún var allavega hress í gær þegar ég talaði við hana og vonandi var þessi nótt líka góð. Pabbi kominn heim og bara hress. Og svo kom Sigurður Ágúst norður í gær, og ég er svo óendanlega glöð yfir því. Það var heldur betur gleði hjá mömmu að fá hann og fyrir paba mikil ánægja. Að maður tali nú ekki um hversu mikilll léttir það sé fyrir Affí að vere ekki ein með Arnhildi um að snúast fyrir þau gömlu.
Og svo varð ég frænka einu sinni enn. Arndís Björg eignaðist dóttur 22.3. Það er önnur dóttirin. Það þurfti að taka hana með keisara, en allt gekk vel. Sú stutta vildi ekki bíða eftir afmæli Bibbu, sem er á morgun. Sverrir hennar Guðbjargar á líka afmæli þann dag. Svo það er gott að sú stutta fékk sinn eiginn.
Það var reglulega hvasst í gærkvöldi og er verulega lítið spennandi í bili. Margrét fór bara með Klaus og ég sæki hana svo klukkan 1. Eftir 5 dagar í páskafríið. Við erum alveg komin í þörf fyrir afslöppun, aðalega andlega. Vona að þið hafið það öll gott. Og að sólin skíni á ykkur.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
5 comments:
Búið að vera nóg um að vera fyrir norðan - og reyndar sunnan líka. En nú eru Svíarnir farnir, landsfundur búinn og Ísafjarðarferð afstaðin svo þetta hlýtur allt að hrökkva í rólega gírinn. Bara eftir ein ferming og eitthvað svoleiðir. Gott að atið er búið í bili. Ég ætlaði austur til Sigynar og strákanna á laugardagskvöld eftir landsfund og bruna daginn eftir, en veðrið var brjálað á heiðinni og endalausir árekstrar og ófærð svo ég komst ekki. Þarf að bregða mér þangað fljótlega til að komast í sæluna.
Annars er allt gott hér.
Sendi batakveðjur til elsku Hillu frænku, vona að hún fái gangráðinn sem fyrst og verði orðin eldhress sem allra fyrst.
Gott að heyra að Sigurður hafi skellt sér norður, örugglega erfitt að vera langt í burtu þegar ástandið er svona en gott fyrir ykkur hin að vita af Affí, Sigurði, Arnhildi, Lillu og mömmu að myndast við að hugsa og þau hjón.
Bið að heilsa ykkur öllum :o)
Hæ hæ. Ég lenti inn á spítala í gærkvöldi, get nú ekki verið minni manneskja en Hilla frænka, tihi. Var á flottum tónleikum hjá kór Þorgerðar þegar allt í einu fór að blæða (Össi segir að krakkinn hafi ekki nennt að hlusta á Bach!!). Ég "svaf" svo á spítalanum í nótt og kom heim um 17 í dag, allt í lagi með fóstrið og mig, en ég á að taka því rólega og hætta að vinna. Var í morgunmat með Arndísi frænku þinni og kíkti svo á dúlluna hennar :) Kv. Malla
Þegar ég mætti upp á spítala í gær kom hjúkka inn til mömmu, horfði glettin á mig og spurði hvort ég væri dóttirin sem hafði afrekað að koma báðum foreldrunum á stofnun.. mamma hafði þá haft þetta eftir mér he he. Mikill léttir að hafa Sigurð Águst hér, mamma áhyggjulausari af pabba fyrir vikið, pabbi alsæll með að hafa hann og ég ekki síður öruggari. Er óendanlega glöð og þetta var eins og vítamínstpauta fyrir þau gömlu. ÞEir komu hér í mat, nældi mér í lambalæri í einni af fjölmörgum frystikistum foreldra okkar og steikti hér í kvöld. Sá fullt af öðrum gómsætum bitum sem ég næli í fljótlega....Allt undir kontról eins og sagt er og vonum bara að það haldi áfram þannig.
Kv affí
Ég kíkti til ömmu í dag og færði henni tvö Hjemmet blöð sem ég sótti fyrir hana á Glerártorg. Hún var bara hress og svo komu afi og Sigurður líka til hennar. Hún á að fara í þessa aðgerð eftir hádegi á morgun-vonum bara hið besta!!!! Afi var frekar þreyttur en samt bara í ágætu skapi-svo fara þeir feðgar í mat í Norðurgötu í kvöld!!!
kveðjur frá Arnhildi
Post a Comment