Friday, March 13, 2009

Affí klettur í hafinu.

Það er nú gott að eiga eins og eina Affí, sem stendur eins og klettur í hafinu í þessum veikindaferli pabba og mömmu. Hún á svo sannarlega hrós skilið fyrir allt, sem hún hefur gert fyrir þau undanfarin ár. Alveg ástæða til að skrifa um það á opinberu bloggi! Affí mín--takk fyrir að gera það, sem ég get ekki gert! Og takk fyrir að láta vita um ástandið með jöfnu millibili.
Ég er svo búin að tala við báða sjúklingana, svo og við Lillu. Gott hljóð í öllum, og vonandi fer þetta allt að lagast.
Hér var af og til sól í dag. Hvílík dásemd. Manni líður bara allt öðruvísi. Hringdi í Hildegard, sem var að stumra yfir fugli, sem flaug á gluggann. Fer til þeirra á mið. í næstu viku, sem er afmæli Jonna. Hildegard sagði að þá yrðum við nú að hringja í hann!
Við mæðgur brunuðum til BS í dag. Margréti vantaði afmælisgjöf handa Birthe Sass, sem á afmæli á morgun. Mig vantaði te, og við keyptum líka topp handa Ástu í afmælisgjöf. Vorum frekar á hraðferð, enda ekki miklir peningar til að eyða í eitthvert bruðl :) Við erum svo skynsamar. Enn samt fékk Margrét einn "sjeik" :)
Var að pakka inn gjöfinni handa Ritter, sem heldur upp á afmælið á morgun. Við Klaus þurfum af stað um 10.30. Þessir þjóðverjar að láta mann ekki sofa út á laugardögum. Aldrei bara kaffi eða kvöldmatur, nöldur, nöldur (: . En þetta verður sjálfsagt ágætt.
Margrét kemst til Birthe með Alinu, stelpu úr þorpinu. Við sækjum þær svo um kvöldið.
Gleymdi að segja að ég er komin með þessa blessuðu brú í neðri góm. Tæpar 800 evrur, og ég sé svo sannarlega eftir þeim. Hélt að hún ætlaði að ganga fram af mér í þessu öllu. Var í næstum tvo tíma samfleytt þegar hún slípaði tennurnar og bjó til mótin. Og sennilega hef ég mest þess vegna fengið kölduna um daginn. Var alveg búin þegar heim kom. Er ekki enn farin að venjast þessu, og tókst að bíta í tunguna í nótt, hahaha. Frekar góð i þessu. En auðvitað er þetta voða fallegt, en hver sér það? Hefði frekar viljað fá nýjan sófa!

4 comments:

Anonymous said...

He he he, hefði frekað viljað nýjan sófa!!! Þú ert algjört met ;) Hér er fullt hús alla helgina, Bjössi og Gunnhildur með sín tvö börn gista alla helgina, svo eru tengdó í bænum og borða hér í kvöld líka + Gilli. Nóg að gera og ég ekkert allof ánægð með þessi auka læti..... En hlýt að lifa þetta af :S

Anonymous said...

Já Affí stendur vaktina eins og fyrr. Frábært fyrir pabba og mömmu að hafa hana svona hjá sér. VAr að koma úr Gullfoss/Geysisferð með Svíana og það gekk vel þrátt fyrir að verðurútlitið væri vægast sagt slæmt. Við hittum alltaf á milli skúra og þetta gekk bara ótrúlega vel.

Anonymous said...

Er búin að fara tvisvar til mömmu þinnar,hún segist vera hress en er það alls ekki,enda á hún að vera tvo daga í viðbót á sjúkrah.Við gömlu hér erum bara hress,mikið að gera í sl viku.Árshátíð í skólanum og afrakstur af stuttm.viku.Var að vinna á þriðjud.seinni p.starfsm.fundur á fimmtud.seinnip.og svo í fimmtugsafmæli á eftir.Vinna á balli á föstud.svo það var kærkomið að vera í rólegheitum í gærkv.og borða nautast.Rólegheit í dag.Tók til í gær svo það er ljúft að vera heima.Kveðja frá Janusi og þakkir fyrir afmæliskv.Magga móða.

Anonymous said...

Var að koma frá mömmu, hún er nú hressari en í morgun svo þetta er nú vonandi allt að koma. Það tekur alltaf einhvern tíma að prófa ný meðul. Hún er ánægð með konuna sem er með henni á herbergi, þær spjalla um alla hluti. Pabbi hressari í dag, er að verða verkjalaus. er hjá honum núna. Hann biður að heilsa ykkur.Kv affí