Það er kuldi i honum úti, og á vel við ástandið í þessu landi. Hér var sigurvegari kosningannna FDP. Flokkurinn, sem stendur fastur sem klettur bak við bankana, og flokkurinn, sem ber á ábyrgð á stöðu þeirra eftir að hafa verið i stjórn hér áður fyrr. Það er með ólíkindum að fólk skuli kjósa flokk, sem ber mikla ábyrgð á kreppunni. En fólk er fífl eins og Arnhildur min segir. Og það sannaðist hér í þetta skifti. Það má búast við félagslegum kulda og kreppu hjá þeim, sem minna mega sín. Bankamenn hrifnir og klappa hátt.
En þessu verður ekki breytt, og við megum samt þakka fyrir að búa í landi, þar sem þó nokkuð stór hluti hefur atvinnu. Í gær sá ég þátt um atvinnumál við Norðursjóinn. Þar fara skipaverksmiðjurnar á hausinn hver af annarri. En nú er verið að virkja þetta fólk í framleiðslu á vindmyllum á hafi úti. Það vantar stálsmiði. Og vonast er til að veita megi einum 30 þúsum verkefni á næstum árum. Það væri nú Guðs blessun. Tja, og svo er það fólkið, sem kann ekki með peninga að fara og er með 500 evru yfirdrátt við lok mánaðarins. En við ætlum--þ.e. ég ætla að fara að gera Plan og kaupa ekki neitt, sem er ekki bráðnauðsynlegt. Hm,hm. Sjáum til hvað verður úr því. Og jólin að koma!
Já, með jólin. Þið megið ekki fara að eyða í okkur dýrar jólagjafir. Það hafa víst allir nóg með sig. Það er alltaf rosa gaman að fá pakka. Og mest þá, sem innihalda heimtilbúið! Nú er að búa til sjálf og taka upp geisladiska, skrifa DVD-diska og dúlla smá. Sulta og Chutney í bóluplasti ætti að komast óskemmt. Híhí. Affí-hér fæst sko ekki svona góð rifsberjasulta. Það eru bestu gjafirnar og mig minnir að t.d. Svanhildur hafi talað um vettlinga fyrir eggin mín, ekki bráðónýtt. Og ekki er nú Sigyn verri í föndrinu, að maður tali nú ekki um Affí og Arnhildi. Á meira að segja trölladeigskalla frá Þórdísi. Og mamma er best í prjóninu. Sem sé--bara að dúlla við smá föndur og allir að setja allt í einn pakka og vera hagsýnir! Hvert ár gleðst ég yfir gömlu heimaunnu hlutunum.
Helgin var hreinlega æðisleg. Það var dýrðarinnar sól, og smá gola. Vann af kappi við garðstörf. Tók til í ruslatunnuhorninu, hreinsaði beðið þar við hliðina. Fór með kallinn minn til Gifhorn í byggingavörumarkað, og keypti mold, mulinn trjábörk, Erikur og Silberblatt. Man aldrei hvað það heitir á íslensku, en nafnið er líkt. Svo setti ég herlegheitin í potta og vökvaði allt. Hér er allt að skrælna eins og um hásumar.
Margrét þurfti að læra alla helgina. Var í ensku í gær. Síðasta prófið á fim. Svo förum við í tveggja vikna frí. Dásamlegt.
Fór í næstum klukkustundar labb á sunnudaginn. Er ekki nógu dugleg að ganga. Og hægt gengur við að leggja af. Þegar maður er að baka pönnukökur og vöfflur handa dauðþreyttri dóttur, sem kemur heim klukkan fjögur tvisvar í viku. Maður vill nú gleðja hana og hressa við. En það er sko á planinu líka að taka smjörið af borðinu, og allt, sem er fitandi og pína Klaus til að breyta um fæði með mér. Hann er ekki sérlega hrifinn af því og heldur því fram að fituskert mjólk sé vond, Lätta líka, og ekkert varið í kalkúnskinku. Hann er hins vegar kominn með þvílíka ýstru að hann getur vel keppt við Didda og Össa !!!!!! En hann er jú alinn upp við það að það sé eðlilegasti hlutur í heimi að fólk verði feitt. Allt annað sé bara snobb. Að heyra í henni mágkonu minni er stundum ótrúlegt.
Jæja. Í dag er píanókennsla hérana og ég var löt í gær. Held að ég neyðist til að gera eitthvað. Hafið það gott. Saknaðarkveðjur frá svarta landinu.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
4 comments:
Össi er þvílíkt duglegur að æfa í bílskúrnum, ég keypti notað orbitrek tæki, svokallað gönguskíðatæki og hann fer 5-6 sinnum í viku í 30 mín í senn :) Ekkert smá duglegur. Ég þarf að vera dugleg líka, en eftir labb í leikskólann og allt annað, þá er ég bara töluvert þreytt!!! En samt, ég ætla að vera dugleg líka.
ég var dugleg stelpa og las allt bloggið!! :)-Arnhildur
Við Össi hvað??? Hér er allt brjálað að gera eins og venjulega en ég er í fríi vegna Þórsmerkurferðar nemenda og ætla að skjótast austur og vinna eins og brjálaður. Engar jólagjafir nema eitthvað alveg smotterí. Heldur svalt núna en sæmilega bjart, kominn snjór í fjöll og búist við kulda áfram.Sigyn á fullu með Munda og er að græja húsnæðið á Laugavegi fyrir búðina. Strákar glaðir og gengur vel. Þannig er nú það.
Kvitti Kvitt.... fór í klukkustundarlangan göngutúr með Margréti í vagni áðan, annað skiptið hennar út í vagn og nú er stefnt á gönguferð sem flesta daga :o) ekki veitir af eftir 14 vikna veikindaleyfi hehehe
Heyrumst, blogga kannski bráðum... frekar kjánalegt að vera enn með bumbumynd efst á blogginu.
Post a Comment