Jæja. Brauðið sem var bara soppa í gær þegar ég setti það í ísskápinn varð að himnesku brauði í dag eftir hnoð og bakstur. Held ég setji meira mjöl í það næst. Það er ekkert salt í þessu og enginn sykur. Bara hunang og sojasósa. Gulræturnar gera það líka sætt. Set uppskriftina bráðum inn á bloggið.
Það er yndislegt veður. Ein 23 stig eftir hádegið. Maður bara getur ekki farið í búðir eða slíkt, og verður að vera úti. Margrét þurfti á þetta námskeið og ég var búin að ætla mér að skreppa í búðir. En fór svo bara beint að sækja þær stöllur. Var í morgun að hreinsa illgresið á stéttinni, og næstum búin. Klaus sló grasið. Ég rakaði sumt. Og svo voru margir úti í dag og spjölluðu við mann í blíðunni.
Margrét ætlaði að passa í kvöld, en þá er ein af systrunum eitthvað lasin, og foreldrarnir fara ekkert. Það er bara ágætt því hún er eitthvað slöpp af kvefi, og svo eru 3 próf í næstu viku og nóg að læra. Búin að gefa kisu. Erum að vökva grasið þar sem allt er að skrælna.
Góða helgi og ástarkveðjur.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
Hér skrælnar ekki einn blettur..... enda rignir eins og í útlöndum!!! Við Össi fórum hjólandi í fótboltaforeldrapartý, gat fengið mér smá bjór og hann AÐEINS meiri bjór ;) Ég er svo mætt heim að leysa barnfóstruna af, en Össi er farinn á ball. Þetta með hjólin vakti kátínu í partýinu, það er á hreinu. Enn eitt sparnaðarráðið í boði Möllu frænku.
Gott að heyra að brauðið hafi verið gott :o)
Það veitti ekki af að hafa eins og eina Áslaugu hér til að taka hjá okkur garðinn í gegn, og þó er ég nú hrædd um að okkar garður sé töluvert minni en ykkar!
Haustkveðjur héðan að sunnan, Aldís
Post a Comment