Friday, September 25, 2009

Haustið yljar manni enn.

Föstudagur og sólin skín. Framundan helgi og mikið er það dásamlegt. Ég á reyndar ekki von á góðum gestum eins og Aldís Björns, en það verður notalegt að geta sofið lengi á morgun. Og taka lífinu með ró. Eiginlega ætlaði ég til BS á morgun að jarðarför Ilse Fröhlich, sem verður jarðsett klukkan tíu. En ég bara orka ekki að fara svo snemma af stað. Samt langar mig, en enginn fer, sem ég veit um. Aldís skrifar að Margrét Sóludóttir sé að flytja til Þýskalands. Hafið þið eitthvað frétt um það. Vona að Aldís segi mér næst hvar þau ætli að búa. Ótrúlegt að við skulum allar búa hér.

Margrét í þriðja prófinu í dag. Svo eru tvö í næstu viku. Svo tekur við haustfríið, sem er í tvær vikur. Þá ætlar hún að læra undir bílprófið. Okkur langaði í ferðalag, en peningarnir vaxa ekki á trjám. Var að borga 630 evrur fyrir viðgerð og ný dekk á gamla rauð. Hann er enn hinn hressasti, kominn í 98 þúsund og 14 ára gamall. Við höfum líka nóg verkefni. Klára að einangra loftið, klippa tré og runna, mála stigaganginn, holið, eldhúsið-----. Hvort sem við nú drífum í þessu eða ekki, híhí.
Klaus stefnir á frí um leið, og klárar þá vonandi að fylla út skattaskrána, sem skila á inn í lok maí. Stundum gæti hann gert mig alveg brjálaða með þessum silagangi. Karlmenn!

Í gær var konsert hjá nemendum Susanne Hennings, píanókennara Margrétar. Það er haldið í sal safnaðarheimilis í þorpinu þar sem hún býr. Tíu mín. akstur héðan. Þetta er gert til að þjálfa krakkana í að koma fram og ýta undir áhugann að spila vel. Bara fyrir ættingja. Ekki neinn alvöru konsert, en samt alltaf gaman. Svo komum við við í bakaríinu og keyptum rundstykki og svo var bara reiknað og reiknað. Eins gott að Klaus getur aðstoða hana við það. Eki kann ég neitt í þessu.

Það styttist í kosningar. Held að þjóðverjar séu upp til hópa svo heimskir að þeir muni kjósa aftur svörtu peningamennina, og kalla yfir sig ógnarstjórn. En ríka fólkið mun hrósa happi og hafa það gott meðan nemendur fá gjöld yfir sig, aldraðir og börn og sjúkir minni aðstoð, og bankarnir aftur á móti munu hressast allir við. Hvers vegna kýs fólk, sem kvartar og kvartar ekki þá, sem einhver von er þó um að geri félagslegar breytingar og sé allavega með hjarta í líkamanum. Það versta er hið svo kallaða kristna fólk, sem heldur að kommunistar séu pest, og að C ið í nafni svarta flokksins standi í alvöru fyrir Krist. Æ, æ, -- hvar er góða fólkið í þessu landi. Standið nú upp og gerið eitthvað!

Önnur af þessum tveim, sem vinnur í gæslunni með mér, er komin með krabba í brjóstið. Hún fer í uppskurð sem fyrst, og við reiknum með meðferð á eftir. Þetta lítur samt vel út. Ekki farið að dreyfa sér, og ekki komið í lungu og nýru. Hún reykir mikið svo það var tékkað á því líka. Kannski við verðum bara tvær með hópana og skiftum þeim aftur á millli okkar. Já, sorgleg frétt, en samt er góð von um bata.

Og Arnhildur og Fúsi að slíta sambandi. Það er allt í góðu á milli þeirra, sem er það allra mikilvægasta. Peningamálin náttúrlega í klessu, og hver veit hvernig fer með íbúðina og allir mega gjarnan leggjast á bæn og hugsa til þeirra. Við vonum allavega það besta og sendum saknaðarkveðjur til þeirra og þökkum fyrir sumarið.

Það væri ekki verra að vera á leiðinni heim til að pakka og þrífa og mála og vera með í stússinu. Mér finnst svo gaman að stússast!
Hafið það öll sem best. Góða helgi og gott veður óskar ykkur gamla Áslaug í Tyskland.

4 comments:

Þorgerður said...

Árshátíð á morgun. Helga fær 15 stelpur í veislu í kvöld í tilefnis afmælis í sumar. Alltaf nóg að gera.
Bestu kveðjur til Arnhildar og Fúsa!
Góða helgi öllsömul!

Kristín E. said...

Sendi líka bestu kveðjur til Arnhildar og Fúsa.... og svo auðvitað til ykkar þriggja í Meinersen :o)

Anonymous said...

Kveðjur af Grenimel þar sem heimilisfaðirinn er orðinn ansi þreyttur á samfélagi þar sem ótíndir óþokkar ráða för, sama spillingin í hverju horni og ekkert verið að taka þetta lið í gegn. Upplýsingar um sölu Moggans þar sem Hollendingur átti hæsta tilboð í Árvakur og ætlaði að yfirtaka skuldirnar - en hann fór samt til Sjálfstæðismanna og 4 milljarðar féllu á Glitni - svona gerir mann illan. Mig er farið að langa til að taka fram spottann og tylla svona liði upp í tré.
þannig er nú það. Diddi

Anonymous said...

Ég veit ekki hvað bærinn heitir sem Margrét Sóludóttir og fjölskylda koma til með að búa í en þetta er lítill bær norðan við Karlsruhe... Ekki alveg saumaklúbbafjarlægð - en samt ekki svoooo langt frá mér. Maðurinn hennar kom út núna í ágústlok en Margrét og sonur koma svo næsta vor... Já það er nú meira hvað þessum þýsku landmælingamönnum hefur tekist að krækja í konur úr sveitinni okkar góðu ;-) Og svo bara fara þeir með þær úr landi...