Er alveg að fara í háttinn. Yndislegur dagur. Margrét þurfti ekki í skólann fyrr en klukkan rúmlega 11. Skutlaði henni og fór svo út úr bænum og keypti bláber á bóndabæ í nágrenninu. Skildi eftir einn pakka með berjum hjá Frau Kühle á tröppunum. Það gekk vel í afmælinu í gær. Vel til tekið í íbúðinni og kaka í kaffinu. Mest setið úti á svölunum, -í reyknum frá liðinu. Það sem þau geta reykt!
Margrét hitaði pizzu áður en ég kom heim. Hún var búin að gá að mail frá Klaus. Hann hafði sent það seint um nóttina eftir að hann kom á hótelið. Vel þreyttur eftir tólf tíma flug frá París til Texas.
Við horfðum á einn þátt af Greys, --ekki Grace eins og ég skrifaði það nýlega :) Og svo var háttað snemma.
Í dag kom Lennert of seint í latínuna, og þegar hann fór birtust strákur úr gamla bekknum hennar Margrétar og Joy með honum. Gamli góði litli vinur Margrétar og Doreenar. Þau hlupu til Doreenar, sem var að máta kjólinn, sem hún ætlar í í brúðkaup frænku sinnar á fö., Hún missti alveg málið. Þær hafa ekkert heyrt frá Joy í nokkur ár, og voru sorry yfir því. Margrét var í tvo tíma að spjalla við þau, og fór of seint að sofa--klukkan hringir á morgun klukkan 6.20, og skóli til 16.15. En hún ætti nú að hrista það af sér.
Það eru góðar fréttir í sambandi við skólaferðina í sumar komandi. Þið eruð sennilega búin að frétta að Margrét fær ekki að fara með nema með sérlegu samþykki kennarans, sem fer með hópinn. Og í gær talaði hún við latínukennarann, sem stendur fyrir ferðinni til Rómar. Og hann sá nú ekkert til fyrirstöðu að hún færi með þó að hún hefði ekki plagg uppá að hún geti stungið sér og kafað!!! Það á að bjóða upp á 4 ferðir. Róm, Prag, Belgia. En ekki vitað hvert þau fara á Bretlandi. Ætluðu til Dublin en það er of dýrt. Við vonum svo bara að hún fái örugglega að fara.
Labbaði í 40 mín í kvöld. Hressilegt og stefni að því að fara sem oftast.
Ætlar Kristín ekki að koma með barnið 9.9. ?Þetta er engin frammistaða :) Gangi þér vel frænka.
Takk fyrir kommentin. Meira að segja Arnhildur nennti að lesa þau :) Góða nótt og hafið það gott.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Flott að Margrét fær að fara með! Ásta er á kafi í heimanámi og er stundum eitthvað óörugg með sig en ég held að þetta komi nú allt saman. Ég ætti að vera duglegri en ég er en það kemur seinna
Post a Comment