Tuesday, September 15, 2009

Hvað tíminn líður.

Allt í einu kominn miður september. Hvað er þetta með tímann? Komið að jólum áður en við vitum af. Hér virðist haustið vera að berja að dyrum. Rigning í dag svona af og til, en jörðina vantar miklu meira. Margrét með á bíl í skólann, og var fegin að þurfa ekki að hjóla í dembunni, sem skall á akkurat eftir skóla. Nóg að gera hjá henni. Er núna að æfa píanó með Jöndru niðri í stofu, og Susanne kennari búin að fá kaffi og kanelsnúð hjá okkur. Hún er annan hvorn mánuð hér, hinn hjá Jöndru. Og var að segja að hún hefði reiknað út að hún yrði hjá Jöndru í des., sem þýddi að hún fengi ekki fínu smákökurnar mínar :) Svo við verðum að færa henni kökur úr því henni þykja þær svona góðar.

Tók skápinn minn í gegn í morgun. Eiginlega gæti ég hent helmingnum af fötunum. Allt of gamalt og slitið, eða ég vaxin upp úr því. En ég á svo erfitt að skilja við eigurnar, híí. Þyrfti að fá þær systur mínar í góða tiltekt. Er miklu betri að taka til í annarra manna skápum. Svo vonast maður til að grennast, hmhm. Er reyndar komin niður undir 79, en þetta gengur hægt. Þarf aftur í göngur, en einhvern veginn eru dagarnir búnar áður en maður veit af. Og í kolniða myrkri nenni ég ekki innan um alla glæpamennina, :). Ók Margréti í ökuskólann í gær, og var fegin því þar sem það var orðið dimmt fyrir 8. Hún er þá búin með 4 tíma minnir mig. (Af 14.) Og stefnir á að fara til Gifhorn á námskeið í hjálp í viðlögum, sem er skylda. Rosa tímafrekt. Frá 8.30 (já, og er á laugardegi) til korter fyrir 3. Fer með stelpu héðan og ég sæki þær svo.
Um kvöldið fer hún að passa systurnar þrjár, og svo eru 3 próf í næstu viku. Ferð til BS með öllum 11.bekk, á mánudaginn, -8.00-16.00, akkurat daginn, sem hún er með góða stundatöflu, en svona er það.

Klaus hefur líka nóg að gera. Hann er staðgengill fyrir yfirmanninn, sem er í Texas í viku. Ekki fær hann krónu fyrir þá aukavinnu, heldur bara bætir henni við sína. Svona er það gert hérna.

Við Margrét fórum til BS á laugardaginn. Hún keypti sér leðurstígvel. Og náttbuxur. Og við fundum eitthvað á litlu nöfnu hennar. það var gaman. Margrét fann helling, sem hún vildi kaupa handa sínu barni! Vonandi verður henni að þeirri ósk að eignast yndislegt kríli svona eins og hún og Arnhildur voru.
Við settumst inn á McDon kaffihúsið. Smá hlé í göngunni á malbikinu. Og svo héldum við til Ikea. Klaus kom svo til okkar og við völdum hillu í herbergi Margrétar. Gerðumst félagar í Ikea famely, og fáum suma hluti ódýrari og boðskort á rækjumatarboðið, sem er haldið árlega.

Og svo var hillan sett saman á sunndaginn, með miklum tilþrifum. Við fengum reyndar Klaus til að aðstoða smá. Þetta er mesta púl.

Í gær var ég svo aftur í BS. Var í rannsókn út af hnútunum á skjaldkirtlinum. Er með annað hvort 5 eða 7, man það ekki :). Þetta lítur vel út, og kemur svo í ljós í blóðinu hvort allt sé í lagi. Á svo að mæta á hálfs árs fresti í skoðun. Já, vesen, vesen. En aðalatriðið að allt sé í lagi.
Rett kom við í búðum og keypti korn og fleira, sem ekki fæst hérna. Og svo heim, sweet home.

Doreen kom í næstum einn og hálfan tíma að læra ensku. Hún "fattaði" loks þáliðna tíð og beina og óbeina ræðu. Jibbí. Fer í próf á morgun og vonandi gengur allt vel.

Kominn kvöldmatur, og þarf að búa til te og koma matnum á borðið. Klaus að koma inn úr dyrunum, Margrét að enda æfinguna. Bið að heilsa ykkur og hafið það gott.

1 comment:

Thordisa said...

nóg að gera hjá þér en þú þarft að forgangsraða!! það er mikilvægara að hreyfa sig en laga til og hana nú hehe.t