Tuesday, September 22, 2009

Kvöldroðinn.

Klukkan er að nálgast átta að kvöldi þriðjudags. Úti er sólin að lita himininn og það er ægifagurt svo notuð séu stór orð. Herdís skyggir á (það er tréð, sem ég vil fella ! ) og vonandi er þetta síðasta haustið, sem hún skyggir á rauðan himin héðan frá séð. Í dag er fyrsti haustdagur samkvæmt almanaki.
Var að skoða nýjustu myndirnar af þeim bræðrum, Ástþóri og Arnaldi. Þið mættuð vera miklu, miklu duglegri að kvitta. Það er fátt eins "frústerandi" og að setja inn myndir eða "skrifa úr sér sálina" og fá svo engin viðbrögð. Malla ber alveg af á heimasíðu Svanhildar. Svo er sko alveg þess virði að kíkja á nýju áklæðninguna, sem frúin setti á stólana sína. Vildi að hér væri hægt að fá svona , en við búum nú ekki í landi þeirra allra smekklegustu, hmhm :)
Margrét er að læra stærðfræði með Klaus. Og svo liggur hún í líffræðinni. Próf á morgun, og nóg að gera.

Ég fór að vinna einum tíma fyrr í dag. Vantar fólk, því það eru 3 bekkir í skólabúðum og 6 kennarar með. Ein lasin,og sumir á ráðstefnum. Svo ég fékk einn bekk, og mátti fara með þau út og gera hvað sem var. Þau fóru í fótbolta og voru í geimveruleik, og réðust á "kastalann".( Klifurgrindina. ) Allt fór siðsamlega fram. Gaman þegar börn sýna hugmyndaflug.

Bjó til rækjurétt í "hádegismatinn". Margrét kom heim upp úr hálf þrjú. Svo var píanó hérna og hellt upp á kaffi að vanda. Með blöndu af kaffinu frá Þórdísi, sem ég nota bara handa okkur Susanne kennara.
Þreif niðri þegar ég loks nennti að fara í það. Þvoði þvott, horfði á sápuna mína og svo las ég gamla söngtexta, sem maður lá í í den tid.
Pabbi sagði að textarnir voru bara Bye bye love, bye bye happiness, hello loneliness----. Það var nú nokkuð til í því. En mikið var nú gaman að syngja þetta þó að textarnir væru angurværir. Mig vantar Affi í eitt Albert Hammond kvöld, og ekki væri verra að fá Möggu Pálu með í eitt slíkt kvöld.
Það ætti nú ekki að vera erfitt að smala saman fólki eftir að allir eru komnir á snjáldru, og halda eitt heljar söngkvöld við bakka Laxár, eða við höfnina á Akureyri, eða á öðrum góðum stað.
Ef ég væri ekki orðin svona flughrædd eftir síðasta flugið heim fyrir jólin og svo lýsingar Siggu Stínu á lendingu í vetur þá væri ég búin að panta næsta flug. Það er algjör hryllingur að hugsa til flugs í flugvél, sem skekst endanna á milli. En kannski er hægt að fá verulega róandi? Ekki bara smá----!
Heldur bara alvöru róandi. Hver veit.

6 comments:

Anonymous said...

Það er alltaf nóg að gera á ykkar bæ, gaman að því! Æ, ekki laust við að maður vorkenni aumingja Herdísi sem skyggir á kvöldsólina :o) Gaman að heyra að haustið sé nokkuð hlýtt hjá ykkur. Við búin að eiga fallegan haustdag hér en aðeins kaldara í lofti þó.
Kærar þakkir fyrir að hæla bólstrarahæfileikum mínum, efnið keypti ég nú bara í Ikea á örfáar krónur.

Hafið það öll gott. Bestu kveðjur, Svanhildur

Þorgerður said...

Það eru til allar gerðir af róandi sko! Þarf bara að hitta á réttu tegundina mín kæra!
Ætla að kíkja á bólstrunina hennar Svanhildar hið snarasta!!

Kristín E. said...

kvitti kvitt :o) aðeins að þvælast á netinu meðan Margrét sefur :o)

Malla frænka said...

Ætli ég sé ekki svona dugleg að kvitta, þar sem ég er heimavinnandi ;) Gaman hér, ég er að pakka niður, við fórum norður á eftir!!! Hlakka mikið til, kv. Malla

Anonymous said...

Kvitt, kvitt. Var að koma úr rúmlega 12 klst. langri ferð með danskan hóp, Gullfoss, Geysir og svo flúðasigling (sem ég reyndar sleppti)og sitt hvað fleira. Ágætur dagur og svo er helgi framundan og vonandi hægt að gera eitthvað af því sem ég á eftir.
Flughræðsla systir. Þú verður bara að taka þig sjálfa í hugræna atferlismeðferð og þjálfa þig upp í að hætta að vera hrædd. Enda gerist varla neitt verra en vélin hrapar og þá þarftu sennilega ekki að hafa neinar áhyggjur af afleiðingunum - eða kannski frekar að fá sjálfa sig til að trúa að vélin muni komast heil til flugvallar, hvort sem hún hristist eða ekki. Þú mátt velja hvora útgáfuna þú notarð til að telja í þig kjark. En þetta virkar ef menn leggja sig fram.
Ástarbróðurkveðjur - Diddi

Anonymous said...

Kvitt, kvitt úr suðurhlutanum... Ljómandi gott haustveður hér líka, útivistadagur í skólanum hjá báðum börnunum í dag. Fáum svo góða vini í mat í kvöld, Zwiebelkuchen og Federweiser ummmm... Legoland á morgun og Kinderfest á vegum bæjarins á sunnudaginn... Nóg að gera! Já og svo ætlar hún Margrét Sóludóttir Þráinsdóttir að kíkja á okkur í næstu viku - það er nú enn ein Mývatnskonan á leið til búsetu hér í Þjóðverjalandinu... Við verðum að koma af stað saumaklúbb he, he, he...
Góða helgi mín kæra, bestu kveðjur, Aldís