Mánudagsmorgunn, og ég nenni ekki að fara að laga til. Þarf að setja hreint á rúmin, ryksuga og þurka af. En er löt eftir dugnaðinn um helgina. Það er mikill munur að sjá garðinn framan við veröndina, og mér líður nú betur þegar allt er snyrtilegt. En það er jú spurningin um forgangsröðun, og garðurinn situr oft á hakanum. Hitinn fór í 24 stig í gær. Spáð 19 í dag. Nú þegar komin sól, og yndislegt að horfa út.
Margrét farin til BS með árganginum. Þau eiga að fara í bókasafnið í háskólanum, -þar sem Klaus vann forðum daga. Svo á sýningu um Otto keisara, og loks að fara ein í bæinn. Væntanleg heim klukkan 4. Hún eyddi gærdeginum í lærdóm. Klaus fór í stærðfræði með henni og politik. Ég er ekki góð í slíku. Þvílíkt torf.
Þessi pólska, sem var með mig í sjúkraþjálfun, fékk símanúmerið hjá pólsku nágrönnunum mínum. Eftir að ég var búin að stinga upp á að þær hittust. Hún kom svo í gær í heimsókn til þeirra, og kallaði á mig úti í garði. Þær báðar þökkuðu mér svo fyrir að hafa komið þessu í kring. þetta væri alveg mér að þakka. Svo það hafði þá eitthvað gott í för með sér að ég fór í uppskurðinn, hehehe.
Svo komu ungu hjónin, sem byggðu fyrir 4 árum við botlangann. Þau eru búin að vera í Mexico og eru núna á Spáni. Komu í 6 vikna dvöl, og koma svo endanlega um miðjan des. Þau eiga fjölskyldu, sem sér um garðinn og húsið. Það er ekki smá lúxus. Geta unnið fyrir hærra kaupi og kynnst öðrum löndum í leiðinni og ekki þurft að hafa áhyggjur af neinu.
Okkur vantar rigningu. Þið megið senda slatta frá Suðurlandinu!
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment