Nú er ég verulega spennt. Var að setja gerdeig í ísskápinn. Uppskrift frá Sollu í Víkurnesi. Með fjallagrösum, gulrótum, hörfræjum, sesamfræjum og sojasósu svo etthvað sé talið upp. Vona og bið að þetta lukkist og þá ætla ég að verða heimsfræg í Meinersen sem frábær bakari! Kannski maður fari bara að selja brauð, híhíhí. Þetta hlýtur að takast. Þið leggist á bæn :)
Úti er hið besta veður. Sólin komin aftur og hlýjar okkur. Fór út í morgun og klippti slatta af rósinni, og setti í ruslatunnuna. Klippti svo eitthvað fleira, og fékk mér svo kaffibolla að loknu verki.
Fór til Weilands, sem fékk skýrsluna um skoðunina á skjaldkirtlinum. Allt í lagi og ekkert illkynja. Verð með sömu lyfin áfram. Spurði hann út í magann á mér, og lýsti erfiðleikum út af meltingunni, en hann hélt nú að allt væri í lagi þó að blæddi eftir harðar hægðir. Engin ástæða til að fara í ristilspeglun. Er hann alveg í lagi, eða er ég of hrædd um heilsuna? Hef alltaf haldið að blóð sé merki alls ills. Best að vita hvað hjúkka fjölskyldunnar segir við slíku. :)
Svo fór ég að panta ný dekk undir gamla rauð. Þau koma í næstu viku (470 evrur, sniff, sniff ) og þá verður gert við bremsurnar og dekkin sett undir. Þetta eru heils árs dekk og ég verð þá ekki tekin á beinið fyrir akstur á sumardekkjum í vetur.
Margrét í skólanum til hálf þrjú. Eldaði graut ofan í okkur og svo skrapp hún til Doreenar og þær elduðu saman pasta.
Ég gaf kettinum fyrir Frau Kühle, og verslaði í Netto.
Í gær bakaði ég marmaraköku og fór með hluta af henni til Frau Kühle, sem er í veikindafríi. Rosalega slöpp, en ekki er vitað um ástæðuna. Kannski bara stress. Við sátum úti á pallinum og drukkum te og borðuðum köku. Sótti svo Margréti klukkan rúmlega fjögur. Fimmtudagarnir eru strembnir.
Er búin að tala í síma við ansi marga undanfarið. Lillu, Maddy, Kristínu Einars, Jonna og svo mömmu og Arnhildi, svo og heyrt í Didda, og Þórdís hringdi nýlega. Það er gott að vera í sambandi við ykkur öll, og netsambandið færir mann nær ykkur. Ekki amalegt að sjá nýju myndirnar af Margréti Sig yngri.
Ekki fáum við að sofa út á morgun. Margrét fer með einni úr skólanum til Gifhorn á námskeið í hjálp í viðlögum. Þær mæðgur mæta klukkan 8 til að ná í Margréti. Hún þarf að klára það fyrir bílprófið. Er til næstum þrjú. Ég sæki þær svo og fer sennilega að versla i Gifhorn í leiðinni.
Er nýbúin að tala við Hildegard, sem er hress og biður að heila öllum.
Mikið er ég fegin að pabbi sé að hressast, og að mamma sé komin heim.
Jæja, vonandi lyftist deigið, en ekki svo mikið að það taka á móti mér á morgun. Eins og þegar Malla bjó til bolludeigið forðum fyrir fermingu Margrétar,hahaha.---- Þið fáið uppskriftina ef þetta lukkast.
GÓÐA HELGI, og saknaðarkveðjur til ykkar allra.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Ættir ekki að þurfa að hafa áhyggjur af því þó það blæði eftir harðar hægðir, en hinsvegar getur þú reynt að forðast það með því að halda þeim eðl. t.d. með hafragraut á morgnana og heilum hörfræjum út í, má ekki mylja þau. Einnig all bran, hreyfing til að koma þörmunum af stað og drekka nóg af vatni/vökva (1,5-2L daglega, 1 glas ca. 200ml). Gróft brauð og nóg af trefjum úr grænmeti. Vona að þetta hjálpi eitthvað...
Hugsa til ykkar, væri til í góða veðrið! Nóg að gera hjá okkur, vikurnar æða áfram. ÉG í 2 kórum og leikfimi, Dagur í fótbolta 2-3x/viku og Helga í danstímum 4-5x/viku með tilheyrandi skutli!
Árshátíð um helgina, tónleikar sl. helgi og frábær vinnuferð í Lakagíga og Kirkjubæjarklaustur með vinnunni minni helgina þar á undan. Sláturgerð ofl.framundan.
Hafið það gott!!
Post a Comment