Þriðjudagur, snemma morguns. Úti skín sólin, sem kom aftur eftir smá hlé. Svalt á nóttunum, en fljótt að hlýna. Margrét fór á hjóli í morgun. Hún kemur svo heim korter fyrir 3, en þá verð ég farin með Frau Kühle í afmæli Míu í Hannover. Synd að fara í bíl í svona veðri.
Klaus flaug til Texas í gærmorgun. Hef ekkert frétt af honum enn. Hann ætlaði að senda mail á netfang Margrétar, en kannski hún hafi ekki gáð í gærkvöldi áður en hún fór að sofa. Hún var í ökuskólanum til hálf 9. Ég notaði tækifærið og gekk rösklega í klukkustund. Yndislegt að ganga í kvöldsólinni og blíðunni.
Var að vinna í skólanum allan gærmorguninn. Það er sirkus-þemavika. Byrjaði með sýningu í sirkusnum, sem er hér í bænum. Svo eru unnin verkefni í sambandi við sirkus og verða sýningar hjá krökkunum. Blesssuð Guðsbörnin, börn þeirra úr öfgasértrúarflokknum "Börn Guðs" mega ekki fara í sirkus, hvað þá í leikhús eða taka þátt í grímuböllum. Djöfullinn er víst víða og við erum öll börn hans og þau hins vegar Guðs börn. Skilji þetta hver sem vill. Ég var með fjögur fyrri partinn og tvö eftir löngu frímínúturnar. Margrét kom heim milli 11 og eitt og ég rétt náði að skreppa heim til hennar áður en ég fór svo aftur í gæsluna. Náðum að fá okkur smá mat saman. Hún var svo til 4 í tennis, og vel þreytt á eftir.
Mikið er gott að það sé búið að gera þessa aðgerð á pabba. Vona að hann nási sér fljótt eftir skurðinn. Hann ætti þá ekki að fá aftur svona verki þegar gallblaðran er farin. Og mamma gamla fljót að grípa tækifærið að kaupa sér síginn fisk! Flott mamma. Pabbi þolir ekki lykt af skemmdum mat, hahaha.
Við vorum dugleg um helgina. Færðum kommóðuna aftur úr vinnuherberginu til mín, og settum kommóðu úr herbergi Margrétar á þann stað. Hún gat því fært stólinn sinn til, og fær smá meira pláss. Það er svo þröngt hér,-- það er ferlegt. Við mæðgur ætluðum að setja nýjan svamp á gamlan stól, en þá kom í ljós að hann er of lítill. Klippti samt gamla áklæðið af, --þvílíkt ryk sem fylgdi :)
Verst að maður kemst aldrei í verslun með Margréti. Alltaf upptekin seinni partinn.
Svo var ég að baka í frystinn. Og það er eitt, sem ég óska mér. Frystikista undir brauð og bollur! Frystiskápurinn minn með 6 skúffum er alltaf troðinn. En það er hvergi smuga fyrir kistu, sniff, sniff.
Þessir gestir í sumar vildi fá ís, og svo var hann ekkert kláraður! Vill ekki einhver koma að borða ís og frosna jógúrt!
Klaus var vel stressaður fyrir flugið. Hann vaknaði allavega oft um nóttinu, sem var nú ekki of löng. Hann fór á fætur klukkan hálf fimm. Leygubíllinn kom svo 20 mín of seint. En við vonum sem sagt að allt hafi gengið vel.
Ég eldaði svínalundir um helgina. Hef aldrei á ævinni keypt þær áður. Fann svo auðvelda uppskrift. Maður vefur beikoni utan um stykkina og smyr sinnepi ofan á og undir. Þetta mallar í ofninum og svo kemur ostasósa ofan á. Alveg æðislegt. Endaði helgina svo á núðlubakstri handa Klaus á sunnudagskvöldinu. Hann reyndar drakk hvítvínið með mér. Annars drekk ég bara ein, sorglegt.
Í gær kom Doreen í enskutíma til mín. Það gekk bara vel og hún kemur aftur á morgun því hún fer í próf á fim.
Daniela er búin að fá íbúðina, og byrjuð að mála og gera upp. Gregor er í fríi í viku. þau Susanne eru örugglega öllum stundum með henni og meiningin er að flytja á laugardaginn. Ég má engu lyfta og Klaus reiknar með að vera uppgefinn eftir flug og tímamismun. Svo við skreppum seinna og þá getur Klaus sett tölvuna í samband eða lagað ljós eða eitthvað álíka, sem eftir verður að redda.
Og þá er bara að vona að þið hafið það öll gott og takist á við hverdagsleikann af miklum krafti.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
Mér fyndist sorglegt ef Margrét drykki með þér ;) Reyna að sjá það broslega og hressa þig við frænka ;) Kveðja úr sólinni á Íslandi.
hér er sól og blíða og allir hafa nóg að gera. Heimanám mikið hjá Ástu og ég hef sjálf alveg nóg við að vera. Er samt löt að byrja aftur í skólanum og svona semí ánægð með kúrsana sem ég er í
ég var dugleg og las bloggið....Arnhildur
Post a Comment