Thursday, October 1, 2009

Rigning, hvasst og svo sólin.

Fimmtudagur og bara eftir að vakna einn morgun svona snemma. Frábært. Margrét er í prófi í dag. Franska byltingin, Hrikalega leiðinlegt --þó að Svanhildur, Diddi og pabbi og kannski fleiri vilji ekki samþykkja það. Mér leiðist saga alveg óskaplega og vil bara huga að því, sem gerist núna. Þetta er reyndar í annað skiftið, sem Margrét lærir um akkurat þetta tímabil, sem mér finnst nú óþarfi.
Hún fór á hjóli í morgun þó að hann hafi rignt smá og verið kaldur og hvass. Ég fer nefnilega á eftir til læknisins míns í Gifhorn og verð ekki komin til að sækja hana klukkan 16.15. Já, maður fer bara svona með blessað barnið ( híhí)

Var að stússast fyrir foreldrafélagið. Fór með bæklinga í báða skólana, og þurfti að leita uppi fólkið, sem ætlaði að taka á móti þessu og dreifa í bekkjunum. Fæ alltaf smá sting í hjartað þegar ég kem inn í menntaskólann og mér dettur í hug í svona eins og eina sekúndu að ég gæti verið kennari í menntaskóla á Íslandi ef---. Sem er auðvitað bara bull því ég gæti aldrei kennt við þessar aðstæður, sem íslenskir kennarar búa við. Algjörlega óuppalin börn. Eða Diddi?
Við seljum bækur fyrir fyrirtæki, sem kallast bóka-broddgöltur. Fáum svo viss margar bækur gefnar í bókasafn menntaskólans í staðinn fyrir svona og svona margar seldar bækur. Öll vinna við safnið og allar bækur eru gjafir eða keyptar af foreldrafélaginu. Ekki svona flott eins og er heima.

Í gær talaði ég við Ritter, vin pabba og okkar. Hann sagði mér góða sögu af Reinhardt, sem er stjúpfaðir Bernhard, sem kom með vini sínum, og fór með Ella upp á fjöll. Þessi kall er þvílíkt peningagráðugur og sagan af honum er verulega góð. Það var júbileum hjá fyrrverandi háskólanemendum. Reinhardt hafði tekið kvikmynd af ferðalagi fyrir 40 árum. Var nú búinn að brenna þetta á diska og bauð til sölu. En ekki á kostnaðarverði fyrir gamla kunningja, nei ó nei. Hann vildi fá 15 evrur fyrir diskinn og ætlar að gefa skátafélaginu peninginn. Sjálfur myndi hann þá fá kvittun fyrir skattinn, þyrfti ekki að borga eins mikið. Stæði svo uppi sem örlátur maður. Hann, sem ekki að borgar neitt sjálfur.
Ég vissi að ég gerði eitthvað vitlaust! Svona fer maður að þessu!
Er að lesa Shopaholic, númar tvö,sem er óneitanlega léttmeti. En samt gaman að lesa hana . Og vissulega eyðir maður oft með góðum ásetningi, en í óþarfa. Við gætum náttúrlega skrifað um innkaupagleði pabba og ástæðurnar fyrir kaupum á hinum ýmsu "flokkum" (tin, frímerki, mynt, geisladiskar, verkfæri, gull, silfur-----)
Yrði örugglega líka metsölubók, eða----. Hahaha.

Og svo í lokin ein spurning handa hjúkrunarkonunni (og takk fyrir síðasta svar !)
Margrét fær núna bæði joð og skjaldkirtilshormón út af tregum skjaldkirtli. Hormónapilluna á hún að taka hálftíma áður en hún borðar á morgnana á fastandi maga. Það er bara vonlaust að ég veki hana hálftíma fyrr en núna er gert. Virkar pillan ekki ef hún er tekin 10 mín fyrr, eða væri kannski hægt að taka hana á kvöldin, 2-3 tímum eftir kvöldmat???? Þetta eru algjörlega óþolandi töflur, sem taka þarf svona. Ég tek eina út af maganum, sem ég þarf að taka klukkutíma á undan morgunmat. Hvað gerir fólk, sem er í vinnu? Fer bara án þess að borða?
Jæja, bestu kveðjur til ykkar allra. Áslaug, sem vildi vera gáfuð og kennari, en er bara Áslaug Arnar. Og það er bara allt í lagi , eða næstum því! :):):)

5 comments:

Þorgerður said...

Hvaða lyf er þetta sem hún tekur? Hvað heitir það? Sendu mér það og ég skal reyna að finna út úr þessu :)

Anonymous said...

kvitt kvitt
kv
Kristín E.

Thordisa said...

Íslenskir unglingar í menntaskólum eru hinir bestu og ekkert hægt að kvarta undan nema einum og einum. Held að flest okkar ungmenni séu bara frábært fólk :-). Ásta er dauðkvefuð og ég fór með hana á læknavaktina í dag. Hún á að nota púst í 2-3 daga og taka parkódín til að stilla hósta. Ég er sjálf að læra og ætla í ræktina á eftir. Hitti Sólveigu frænku í gær (dóttur hans Halldórs) hún er á landinu. Við Ingó fórum heim til Sigrúnar Erlu fyrrum fósturdóttur hennar og þar voru Malla, Kristín með Margréti litlu, Kristín Auður, Heiða og Hinrik Geir og við skemmtum okkur vel.

Anonymous said...

VAr að koma frá Álftavatni. Fallegt haustveður og frost í skugganum. Tók upp karföflurnar okkar og svo bárum við inn rúm og sófa og ýmislegt fleira úr húsinu hans Eiríks. Gott fyrir báða að við getum verið með dótið þarna. Er að sálast úr kvefi og Sigyn líka. Hún var að lakka stigann á Laugaveginum sem ég eyddi 6 klst. í að pússa upp með juðara í gær. Þetta er allt að koma. Affí og Elli gistu hér 2 nætur og fóru norður í morgun. Annars flest eins og venjulega. Bk. Diddi

Anonymous said...

Kvitt, kvitt úr suðurhlutanum.
Var að koma af frábærum tónleikum með Emelínu Torrini í Muenchen og ekki tilbúin að skríða upp í rúm alveg strax - þó ég sé dauðsyfjuð og vekjaraklukkan eigi eftir að hringja snemma í fyrramálið!
Njótið frídaganna ;-)
Kv. Aldís Björns