Afmælisdagur og ég var með hausverk þegar ég vaknaði klukkan 6, og tókst ekki að sofna aftur. Mér var kalt og ég ákvað að ég væri bara veik og hringdi í Susanne og hætti við kaffiboðið. Svo það verður ekki önnur tilraun í skúffuköku a la Kristín. Fyrri tilraun brann hressilega í ofninum í gær. Já, þetta gat ég! Hélt að ég væri með hana í of litlu formi og hún þyrfti örugglega lengri tíma, en--. Gengur bara betur næst.
Margrét fékk frí í tveimur fyrstu tímunum. Ók henni, og sæki á eftir korter yfir fjögur. Við gátum verið saman að opna fínu pakkana mína, og haft það smá notalegt saman. Margrét gaf mér könnu til að hita mjólk í örbylgju og rafmagnsþeytari í henni. Svo nú þarf ég ekki að ganga fram af mér við að þeyta mjólkina með handafli :). Frá Klaus fékk ég tvo krimma, og auðvitað reddaði Margrét þeim. Hann fór ekkert í bæinn að versla, enda er það eitt það hræðilegasta sem hann gerir. Eins gott að Margrét fékk mín gen! Arnhildur gaf mér frábæra kirkju úr gleri, sem hún gerði í vor. Framhlið, með bláum gluggum. Og tvær voða sætar stjörnur. Hún getur þetta blessunin. Og svo fékk ég rándýra rauðvínaflösku frá skólanum, 12 evru Bio vín, sem ég valdi í staðinn fyrir blóm.
Nina frænka í Köben hringdi og það var notalegt að spjalla við hana. Svo hringdi Maria Heim, og Þórdís og svo pabbi og mamma. Nú þegar eru komnar kveðjur á Trýnu, bloggið og ég er voða þakklát, takk fyrir.
Það er ansi langt síðan ég skrifaði síðast. Eitthvað svo mikið að gera. Seinni vikan í haustfríinu var annasöm. Við Margrét fórum til BS mánudaginn og fimmtudaginn. Aðallega að kaupa jólagjafir. Svo tók Klaus törn í garðinum og mokaði úr safnkassanum og sigtaði. Ég bar moldina í litlum fötum í stóra poka, sem standa á veröndinni. Við klipptum af Herdísi og ég bar greinar, klippti í minni stykki og snyrti í langan tíma. Gengum frá einum stól. (Eftir að mynda hann.) Og tveir bíða en þar sem þessi heftari , hmhm hinn svokallaði takkari :), er ekki góður, get ég þetta ekki án Klaus og það er nú bið í næstu törn. Við komum honum reyndar til Gifhorn í fatabúð. Hann keypti sér nýjar buxur. En skór urðu að biða. Allt of mikið að standa í því að kaupa meira en einn hlut í einu.
Fór á Tupperware kvöld hjá Caroline, þessari, sem á tvö ltil börn og var í Mexico og Spáni. Voða gott að komast í félagsskap, og spjalla smá. Fór með 8 gömul lok, -sum 25 ára, og á að fá ný í staðinn. Svo og písk, sem brotnaði um leið og ég notaði hann.
Margrét gisti hjá Doreen á fö.kvöldið, og þær elduðu saman. Hún vann svo í ritgerðinni um helgina og er langt komin.
Hún er að fá einkunnirnar úr síðustu prófum. Komin með 13,14 og 15. 15 er best, einn plús kallast það. Það er víst klárt að hún er ekki í vandræðum með námið. Guði sé lof. En ég er mest glöð yfir því að hún sé indæl og kát, og alltaf hress og drífi gömlu mömmu áfram.
Við ætluðum í bíó, en einhvern veginn var enginn tími í það. Svo við keyptum okkur Veronica Mars á tilboði (10 evrur fyrsti hlutinn) og höfum skemmt okkur við að horfa á það. Og svo Grey´s.
Veðrið er ekkert spes. Það kólnaði snögglega og ég þurfti í fríinu að grafa upp Dalíurnar. Mikið verk svo og að koma þessu í kassa, og fara með til bóndans, sem geymir þetta í köldum rökum kjallara. Frekar tómlegt eftir að þær hurfu og fj---kötturinn náttúrlega búinn að skíta í beðið á fullu.
Ekkert varð úr frágangi á loftinu, og Margréti þótti það ekki rétt að pabbi hennar væri í "alvöru fríi" meðan við værum alltaf að gera eitthvað.
En við splæstum á okkur klippingu og ég litun. Margrét lét klippa styttur og hún er mjög fín. Ég með svipaða klippingu og aftur strípur. Var að hugsa um að láta vaxa úr allan lit, en þessi ekta litur minn er svo ömurlegur að ég gafst upp og splæsti á mig næstum 150 evrur í herlegheitin. Bannaði Klaus að gefa mér blóm í dag þar sem ég hefði eytt svona miklu í hárið á mér. Var í allavega 2 og hálfan tíma í þessu og við splæstum ekki svo mikið sem kaffnbolla á okkur í þessari ferð. Eitt rúndstykki á hlaupum, híhí.
Og svo var það vinna og skóli á mánudaginn. Diana, sem vinnur með mér, er í veikindafríi. Hún var skorin upp við krabbameini í fríinu. Við vitum ekki enn hvort hún fer í meðferð á eftir, eða komi eftir tvær vikur. Skiftum hennar hóp á milli okkar og ég er því með ansi mörg börn. Við erum alltaf úti því þetta eru ekta útibörn sem við erum með þetta árið. Og svo er Ines, sem vinnur með mér, of löt til að nenna að gera eitthvað með þeim inni. Er jú meiri vinna. En ferskt loft er svo sem hollt og rigningardagar eiga örugglega eftir að koma.
Hugurinn alltaf heima hjá ykkur öllum. Arnhildur á sjúkrahúsinu að fá ný lyf og við vonum að það gangi vel. Þórdís með svínaflensu, VÖ búinn með hana, Aldís með flensu en hvaða ?, börn Möllu öll búin að liggja, var eitthvað hjá Þorgerði lika ?, Affí sílasin, Svanhildur og Ástþór líka heima með einhverja pest. Þetta er nú ekki gott. Við vonum að þið hristið af ykkur allar pestir og sendið þær bara út í hafsauga.
Ástar og saknaðarkveðjur til ykkar allra. Það er gott að eiga ykkur að.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
5 comments:
Elsku frænka.
Hjartanlega til hamingju með daginn. Ég er afskaplega löt að setjast við tölvuna og skrifa, en er nú alltaf að hugsa til þín. Les oft bloggið þitt. Allt gott að frétta af okkur. Get ég ennþá sent þér línu á gamla netfangið þitt?
Bestu kveðjur og hafið það gott.
Hildur frænka.
ég og Úlfur liggjum bæði og Guðný er líka að verða veik held ég
Komin helgi og Sigyn á leið austur í kerlingapartí hjá Signýju, ég í bænum að reyna að vinna aðeins og grynnka á staflanum. EH fer austur en hinir verða í bænum. Jóki og Ingigerður gista um helgina, gaman að fá þau. Sláturgerðin mikla búin og við búina að gera sviðasultu úr hluta af slátrunum. Heilsan hægt að skána og þetta er alveg að verða ágætt með hósta og hæsi. Er ekki slæmur en ekki laus heldur og það pirrar. En svona er það. Bestu kvejur. Diddi
HæHæ... höfum enn sloppið við flensu hér en Helga, Dagur og Þorgerður eru öll búin að fá pestina en eru að hressast :o)
Vonum að Margrét litla sleppi sem lengst, vont þegar svona lítil kríli verða lasin.
Sendi batakveðjur til Arnhildar elsku bestu frænku og kveðjur til ykkar í Þýskalandi líka, alltaf nóg að gera hjá ykkur dugnaðarfólkinu :o)
Allir hressir hér enn,erum vonandi of gömul til að fá svínaflensu.Malla og börn eru hér og er það mjög gaman.Við Einar vorum á árshátíð kirkjuk. í gærkv.og var rosa gaman,skemmtileg skemmtiatriði.Það var stríðsáraþema og getur þú fljótlega séð myndir sem Malla tók(á faceb.)af okkur Einari.Við Stína og tvær í viðbót sungum nokkur gömul lög frá þessum tíma og fengum mjög góðar undirtektir.Við vorum að sjálfsögðu síðust út úr húsinu eða rétt um kl.4. Erum ekki betri en unglingarnir.Ég fer suður um næstu helgi með Stínu við ætlum í óperuna að sjá Ástardr. og svo ætla ´weg að sjálfsögðu að sjá nöfnu mína. Kveðjur til ykkar allra.Magga móða.
Post a Comment