Monday, October 26, 2009

Vetrartíminn.

Loksins er vetrartímann á klukkunni kominn aftur. Við fengum gefna eina stund á sunnudagsmorguninn og erum vel sátt við það. Í gær var svo fyrsti þáttur af fimm , Protectors frá Danmörk í sjónvarpinu klukkan tíu. Hörku spennandi og alltaf jafn gaman að sjá smá af Köben þó ekki sé það nú nema örlítið. Er búið að sýna þá heima?
Margrét var að læra alla helgina og þið megið vel vorkenna henni á Trýnu. Hún er svo sorry yfir því hvað fáir nenni að pikka nokkuð til hennar að það væri fallegt verk. Við erum jú svo mikið einar og þurfum meira á þessu að halda en nokkur heima.
Klaus vann með henni við yfirferð á ritgerðinni. Ég tók skurk í gær í garðinum eftir að ég bakaði bananaköku.. Henti gamalli mold úr pottum, setti nýju lífrænu moldina okkar í, og blómlauka. Svo fóru pottarnir ofan í beðin þar sem fj--kettirnir grafa annars allt þvers og kruss og skíta í þetta. Er að spá í að leggja greinar yfir. Ef þær myndu ekki fjúka í næstu vindhviðum. Hmm.
Fór á laugardaginn til Hannover í afmæli Kiki, yngri sonar Frau Kühle. Það var bara ágætt. Var að spá í að fara með lest, koma við í innbænum og koma einhverju af jólagjöfunum frá, en svo var tíminn of naumur. Svo ég fór bara með á bílnum. Margrét og Klaus pöntuðu sér pizzu og voru hin hressustu þegar ég kom heim undir kvöldmat.
Við heyrðum í Arnhildi á laugardaginn og það var nú gott að heyra aftur í henni. Við vonum að hún komi vel styrk úr þessari meðferð og að allt gangi í haginn hjá henni. Hún á það skilið.
Í morgun ók ég Margréti í skólann 9.10, og sótti peninga á skrifstofunni fyrir bókapöntun , sem foreldrafélagið stendur fyrir. Margrét er svo til 16.15 í dag. Ég fer á fund í stjórn foreldrafélagsins í kvöld, og einhvern tíman á næstunni er svo að hittast og ganga frá þessari bókapöntun.
Sótarinn kom í dag og fór yfir miðstöðina. Hleypti honum líka inn hjá Maju við hliðina.
Ássý frænka hringdi í gær og við spjölluðum lengi saman. Nú eru 20 ár frá því hún var í Þýskalandi og við fórum til Hötensleben þann 19. nóvember. Fyrsta daginn, sem hægt var að fara yfir gömlu landamærin hjá því þorpi. Ótrúlegt að þessi múr skuli hafa staðið. Núna er þetta svo óraunverulegt.
Jæja, Margrét að koma.
Svanhildur--pabbi kemst ekki inn á favorite-- hann er alveg í vanda með að finna myndirnar hjá þér. Getur þú sent honum slóðina og er ekki hægt að kenna honum líka að búa til favorite í gegn um síma. Elli hefur aldrei tíma og svo eru bara veikindi þar.
Bless, bless og vona að allir lasnir fari að hressast.
Afmæli Þuríðar Önnu í dag. 18 ára skvísa. Til lukku með það.

3 comments:

Anonymous said...

Þið alltaf jafn dugleg! Af okkur er allt gott að frétta, allir hressir og ég vona að fólk sé að hressast af flensu og öðru...verður ekki gaman þegar/ef þessi flensa nær í skottið á manni.

Ég ætti nú alveg að geta leiðbeint með favorites, þó að Sigurður vilji meina að ég hafi svo slæma tölvustrauma! Var ekki Affí svona líka sem gat komið tölvum úr jafnvægi með einhverjum straumum!?!?!?!

Hafið það öll gott. Bestu kveðjur, Svanhildur

Kristín E. said...

kvitti kvitt :o)

Kristín E. said...

Var loksins að blogga :o)