Fyrir utan gluggan minn eru tvö tré hjá henni Marlisu, sem ljóma beinlínis í gulum og appelsínu gulum litum. Þorpið er fullt af gulum litum og hér og þar stinga rauðu runnarnir sér milli gulu trjánna. Vildi að ég gæti tekið fallegar myndir til að sýna ykkur, en himininn er drungalegur. Og myndavélin ekki svo spes. Svanhildur mágkona væri örugglega ekki í vandræðum með að mynda herlegheitin. Kannski ég geri bara tilraun áður en allt er flogið út í buskann.
Kominn fimmtudagsmorgunn og litla hressa systir mín á afmæli í dag. Heima með svínaflensu, en vonandi fer henni að batna.
Hér er flensan að byrja, en öllum deildum er straks lokað þegar vitað er um veikindin. Held nú ekki að takast muni að koma í veg fyrir farsótt í dag með öllum okkar samgöngum, en hér er reynt af fremsta megni.
Báðar, sem vinna með mér eru veikar. það er reyndar æðislegt fyrir mig því hinar sem vinna núna með mér eru jákvæðar. Við skipuleggjum daginn saman og allt gengur vel. Var í gær og fyrradag að vinna með þeim við myndir með ullarspotta, eða Fadenbilder. Mála spotta, leggja á blað, annnað ofan á og allt í gömlu góðu símaskránni,,og skellt saman. Þráðurinn dreginn út og eftir er mynd í tvítaki.
Margrét átti að fara til enskukennarans í gærkvöldi í partý. En því var frestað fram í des. þar sem þau eru svo á kafi út af þessari ritgerð. Margrét flytur fyrirlestur í dag um mismun á vísindasafni og leik-vísindasafni, og er vel stressuð eins og pabbi hennar þegar hann þarf að koma fram fyrir hóp. En ég trúi ekki öðru en hún sjóist í þessu og muni líkjast mömmu og öllum íslensku ættingjunum þegar fram líða stundir.
Hún er til 16.15 í dag. Við þurfum svo til Gifhorn að panta nýju gleraugun, og svo fer ég í kvöld í næsta þorp að ganga frá þessari bókapöntun. Klaus er í Oldenburg og kemur seint.
Hvað er með Ástu? Blóðrannsókn og krampakast eða hvað var þetta? Vona að þeir finni eitthvað út.
Nú fer að styttast í að Arnhildur mín komi heim. Það er betra en ekki að eiga mömmu að og hún á þökk skilið fyrir alla umönnunina. Já, ég er of langt í burtu. En einhvern tíman breytist þetta allt.
Hafið það gott í lok vinnuviku og njótið helgarinnar. Æðislegt að heyra að sala hjá Munda gengur vel.
Vonandi verður það áfram. En greinilegt að ekki eru allir Íslendingar blankir :)
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
kvitti kvitt.... var að skella inn fullt af myndum á www.nino.is/tviburakrilin og svo set ég smá úrval af þeim inn á facebook, en bara smá brot þangað :þ
Heyrumst
ég þarf að prófa þetta með spottana í vinnunni þegar ég byrja aftur. Kv. Malla
Post a Comment