Í dag máluðu nokkur af börnunum í gæslunni mynd af graskerjum. Það er oft erfitt að fá þau til að vera starfsöm, og mörg vilja bara hanga og gera sem minnst. Nú fann ég upp á ráði, sem kann að duga. Eftir að þau voru búin sagði ég þeim að ég myndi birta mynd af listaverkunum á bloggsíðunni minni. Það vakti ekki smá lukku! Svo ef ég fer að birta verk þeirrra í framtíðinni þá vitið þið að þetta var uppeldisleg "kúgun", hehehe.
Hér er drungalegt veður, en hætt að rigna eftir hellidembu í nótt. Blöðin falla ótt og títt af trjánum, og ekki langt þangað til þau eru horfin. En næst tekur aðventan við með sín ljós og þannig höfum við alltaf eitthvað að gleðjast yfir.
Á fö. skrapp ég ein til BS. Var að redda jólagjöfum og gekk það bara vel. Margrét fór til systranna að passa og var til hálf eitt um nóttina. Ég skrapp til hennar og við horfðum á Gray´s. Ágætt að nýta tímann :)
Svo var ég ótrúlega mikið í símanum á laugardaginn. Sópaði stéttina, og tók til. Við Margrét fórum að pakka inn jólagjöfum, sem eiga að fara í póst ekki seinna en um miðjan nóv. til að vera viss um að allt komist tímanlega. Og bara til að vera búin að þessu.
Við enduðum daginn á DVD, sem við horfðum öll á. Notalegt og svo var lengi sofið.
Í gær var sunnudagsopnun í BS. Við Susanne mágkona og Daniela hittumst þar á Starbucks, og héldum þannig upp á afmælið mitt svona eftir á. Þær gáfu mér sturtusápu og krem, og 3 mismunandi stóra bauka. Ég fékk einn þannig frá Ássý frænku fyrir mörgum árum, og hann er alltaf notaður undir sykur. Hugsa alltaf til hennar með reglulegu millibili þegar ég nota baukinn. ( sem er náttúrlega sjaldan þar sem ég nota svo lítinn sykur :))
Svo verslaði ég meira, og var komin heim undir kaffi. Við vorum komnar í bæinn fyrir 12, og búðirnar opnuðu klukkan eitt. Þegar ég kom í bílageymsluna var svo að segja enginn þar. Æðisleg tilfinning! En algjörlega troðið þegar ég fór heim. Varla hægt að labba á götunum.
Margrét var með lyklana að húsinu hjá stelpunum. Við skiluðum þeim þegar ég kom heim frá BS og þau vildu endilega drífa okkur inn. Svo við fengum kaffi og marmaraköku. Spjölluðum um skólann, og fyrirlestur, sem sú elsta, Lisa, flutti um Ísland í 7.bekk. Hún fékk lánaðar bækur hjá okkur. Svo las mamma hennar um jólagrautinn, - sem sé jólabúðinginn, og fékk uppskriftina mína að honum. Og bjó til svo allir fengu að smakka . Þetta vakti roslega lukku og margir fengu svo uppskriftina hjá Lisu. Þær stöllur fengu að sjálfsögðu 1 fyrir góðan fyrirlestur. Frábært það.
Sigurður Ágúst hringdi í mig í gær. Þau eru ekki komin með svínið, en hver veit hvað verður.
Vona að vikan verði ykkur öllum góð. Hafið það sem best sama hvar á jörðu þið eruð stödd.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
5 comments:
Flottar myndir, skilar því til þeirra krakkanna :)
Nei hér er sem betur fer enginn enn lagstur í flensuna. Við vonumst nú til að sleppa sem lengst. Ástþór Örn vonast nú til að fara ekkert að leggjast því hann er að fara að syngja í Perlunni næsta mánudagskvöld með kór sem hann er í.
Bestu kveðjur, Svanhildur
Fínar graskersmyndir :o)
Komið frost á Fróni, þurfti að skafa rúðurnar á bílnum áður en ég fór í vinnu. Hálf skrítið þvíþað var 10stiga hiti í fyrradag! Nóg að gera hjá öllum, og allir að hressast eftir kvef og flensu. Flotta myndir hjá krökkunum. Kveðja í bæinn,
-affí sys.
hér er líka verið að spá í ,,jólagjafir til Íslands" þessa dagana - hingað til hef ég samt ekki gert meira en að spá... En eins gott að draga þetta ekki um of, þeir eru nú ekkert að flýta sér hjá póstinum, þ.e. þýska póstinum - (ha,ha,ha..) íslenski pósturinn er náttúrulega MIKLU betri!
Kveðjur úr suðurhlutanum,
Aldís Björns.
Nóg um að vera, sem eru litlar fréttir þessa dagana. En svínið er ekki lagst hjá okkur og vonandi sleppir því alveg. Hafið það sem best.
Diddi
Post a Comment