Tuesday, November 10, 2009

Í ísköldu húsi.

Þetta fer nú að verða frekar hvimleitt. Hringdi í kallinn og frétti að þeir hefðu hringt um allt í gær að leita að passandi stykki í miðstöðina. Eitthvað var til á 800 evrur, sem honum þótti of mikið. Veit ekki hvað ný miðstöð kostar, en 800 væri ansi mikið fyrir stykki í hana. Æ, þetta er nú meira.
Þeir halda leitinni áfram í dag, og við fáum hringingu þegar eitthvað er komið á hreint. Má ég þá biðja um olíumiðstöð og ekkert vesen!
Margrét fór í sturtu hjá Doreen á sunnudaginn, Klaus hjá Susanne og ég hjá Frau Kühle í gærmorgun. Svo var gamla lagið á hárþvottinum hjá Klaus í morgun. Hitað vatn í hraðsuðukatli og þvegið yfir baðkarinu. Við erum með gamlan rafmagnsblásturs ofn, sem við höfum uppi til að hita það herbergi, sem við erum stödd í hvert sinn. Og niðri er stór ofn, með olíu, sem er settur í samband við innstungu. Hann hitar stofuna, og svo er bara að loka dyrunum kirfilega á eftir sér. Eins gott að ekki sé frost. Nóg að vera með ískalt gólf. Flísar eru ekki sérlega hagstæðar þegar gólfhitunin fellur út. En þetta gengur yfir og við lifum þetta af.

Við drifum okkur til Susanne um hálf þrjú á sunnudaginn með "hakkarann", greinasaxarann hennar, sem hún kom með á fö. Kom akkurat meðan ég var í vinnunni og var farin þegar ég kom heim. Klaus var í fríi á fö. Miðstöðvarkallinn kom þá, og fann loks út að tölvan, eða heilinn í henni, væri líklegast biluð. Já, vonandi er það rétt. Nóg komið af vitlausri greiningu.

Við Margrét ókum til Gifhorn á fö. að ná í nýju gleraugun hennar. Þau kosta ekki einu sinni 200 evrur og maður er bara öfundsjúkur. Þyrfti svo að fá mér ný, en má reikna með 600-800 evrum fyrir mín. Margrét er voða happy með gleraugun og við förum að koma í verk að taka myndir. Erum enn að stússast í jólagjöfum og vonandi fer nú að koma að því að kassarnir fari af stað.

Gregor bað Klaus að kíkja á tölvuna vegna forrits, sem ekki gekk vel með. Og það endaði með að þeir sátu í meira en 3 klukkutíma við tölvuna. Því til skýringar er Gregor ekki sérlega klár í tölvumálum,og allt var fullt af "drasli" og þurfti að hreinsa úr tölvunni fyrst. Og svo fraus allt og ekkert gekk. Nú fær hann nýja tengingu og ný númer og Klaus fer sjálfsagt til hans þegar þar að kemur. Við Susanne sátum í notalega hlýrri stofu og drukkum kaffi. Klaus skellti sér svo í stutta sturtu, og við vorum komin heim um 8. Spaghettí og krimmi, og svo seinni krimminn klukkan tíu. Þessi frá Danmark, Protectors. Frábær og alltaf jafn gaman að hugsa til Köben.

Við tókum törn í garðinum á laugardagsmorguninn. Vorum í eina 3 tíma áður en rigningin kom. Klaus saxaði greinar, ég dró þær til hans. Rakaði lauf og setti utan við girðinguna til að dempa illgresið. Var komin með blöðru í lófann og líklega eins gott að hann fór að rigna .Margrét gisti hjá Mariu í Müden. Ók henni á fö.kvöldið og sótti svo á laugardaginn í hádeginu. Fór með greinar til Eriku, sem vinnur í skólanum. Þau eru með kanínur og þær þurfa víst greinar til að naga.

Svo törn númer tvö á sunnudaginn. Gekk frá sólhlífinni. Tók fyrst til í skúrnum svo hægt að væri að koma henni og garðstólunum fyrir og auðvitað þurfti að opna hana og hreinsa fyrst vefi og pöddur. Svona stúss er svo típískt fyrir tilveruna hérna og ekki þörf á slíku heima. Er að drukna í kóngulóm. Færðum Strandkorb á vetrarstaðinn, tókum flugnanetshurðina, og gengum frá flugnagildrunum og sniglagildrunum. Nú er garðurinn nokkurn veginn tilbúinn fyrir veturinn.

Í gær ók ég Margréti klukkan 9.15 í skólann. Fór til Ahnsen í sturtu, og svo heim að blása hárið. Út í banka að borga bækurnar fyrir foreldrafélagið. Næst að sækja Margréti klukkan 11, í vinnuna straks á eftir. Í hvelli heim að aka henni í skólann klukkan 1, og náði i hana klukkan 16.15. Vöfflur og te.

Það er klárt að Diana, sem vinnur með mér, fer í lyfjameðferð vegna krabba. Hún er ekki væntanleg fyrr en eftir jól og enginn veit hvernig þetta fer nú allt. Ekki skemmtilegt fyrir konu á besta aldri.
Nú, við fáum Cristine til að vinna með okkur. Skiftum krökkunum í tvo hópa og hún kemur tvisvar í viku til að taka hluta af þeim í þriðja hópinn. Æðislegt að fá hana því hún er á sömu línu og ég og vill að krakkarnir geri eitthvað skemmtilegt en læri líka í þessum tímum. Ines er bara hræðileg og ætti ekki að koma nærri svona vinnu.

Í kvöld er fundur í foreldrafélaginu. Píanókennsla hjá Margréti í Ohof hjá Jöndru. Á morgun fer ég í kaffi til einnar úr skólanum. Albrecht ekur okkur Frau Kühle. Og á meðan fer Margét mín í fyrsta ökutímann!!!!!
Hugurinn heima að vanda. Vona að þið hafið það öll sem best. Frábærar myndir hjá Svanhildi af fallegu hressu strákunum þeirra. Endilega að kvitta fyrir hjá henni í þakklætisskyni.- Diddi og Affí--ég sé nú ekki oft kvitt frá ykkur þar!!!! :)

2 comments:

Anonymous said...

Nóg að gera hjá ykkur! Gott að Margrét er ánægð með nýju gleraugun, er pottþétt sæt með þau eins og hún er alltaf.

Þau eru ansi fúl þessi hitakerfi sem ekki geta hagað sér vel! Ég bjó lengi í húsi með voða óstabílu hitakerfi og það var alveg ógurlega hvimleitt...þar var alltaf svo kalt og maður búinn að tempra sig inn á það þannig að annars staðar þar sem hitastig var eðlilegt var ég alltaf að kafna.

Hafið það gott, best að halda áfram að lesa! Kveðja, Svanhildur

Malla said...

Nóg að gera hjá þér og einnig við að þefa upp sturtur í öðrum húsum,hehe. Hér er aftur hægt að vaska upp,setja í uppþvottavél og elda, en nóg eftir samt. Ég set inn myndir af farmkvæmdum þegar þetta verður búið, kv. Malla