Í gær klukkan tvö mættu tveir kallar með nýja stykkið og gerðu við miðstöðina. Það var yndislegt! Það er skelfilegt að hafa ekki heitt vatn og finna alltaf fyrir gólfkulda. Þó að ég hafi nú upplifað slíkt sem barn í gamla prestshúsinu er maður löngu orðinn háður hitanum. Dásamlegt að þetta gekk upp.
Svo er sólin kom fram og skín glatt. Við erum alveg komin með nóg af rigningu í bili. Hér hefur rignt í einar tvær vikur. Meira og minna og síðustu dagana meira!
Í gær fór Margrét í fyrsta ökutímann. Hún var rosa ánægð og hlakkar til að halda áfram. Ég fór í kaffi til Eriku, sem vinnur í skólanum. Fór með gamla þorpsskóla liðinu, þeim Albrecht og Kühle. Við komum ekki heim fyrr en undir átta, og nóg var spjallað. Erika býr nálægt BS, í æðislegu húsi, sem er utan í jaðri þorpsins. Engir nágrannar í suður, og fullt af trjám, runnum, ökrum og beljum. Refur og ránfugl hafa herjað á hænurnar hennar, og í flóðum, sem fylgja afleysingum og miklum rigningum, myndast stöðuvatn, sem á til að frjósa ef svo vill til að frostið komi á "heppilegum" tíma. Þá er farið á skauta. Sem sagt dásamlegt útsýni hjá indælli fjölskyldu. (græningjar og sósíalistar, gott mál það )
Á þriðjudaginn var fundur í foreldrafélaginu. Enginn mætti nema stjórnin, skólastjórinn og endurskoðendurnir okkar, svo og ein úr skólastjórninni. Samt var það gildur fundur og stjórnin kosin aftur. Lélegt að enginn mæti, en svona er þetta hérna. Á eftir fórum við á tyrkneskan stað, sem ég hef ekki komið á. Sem er svo sem ekki furða því ég fer aldrei út að borða. Við vorum ein þarna og höfðum það voða notalegt. Í næstu viku eru foreldraviðtöl fyrir 5. og 6. bekk. Þá fer ég með vöffludeig og sel kaffi og kökur með tveimur úr stjórninni. Og var að fá næsta bunka af bæklingum til að dreifa í bekkina. Aftur mikil vinna framundan við bókasölu og alls konar stúss.
Spjallaði smá við skólastjórann, hana Frau Krotzek. Afskaplega indæla konu, sem hægt er að tala við. Og ég sem ekta Íslendingur spurði hana beint út hvað væri að frétta af fyrrverandi kennara Margrétar, sem varð að hætta þar sem hún á von á barni og eitthvað var ekki í lagi. Vanalega fær maður nú engin svör ef spurt er eftir kennurum, en frétti að þessi væri að fara að eiga og stefndi á að koma aftur eftir eitt ár. Og svo spurði ég hvort líffræðikennari Margrétar yrði líka með þau næsta vetur, sem sé í stúdentsprófinu. Hún leit á migog spurði af hverju ég spyrði. Ég sagði að Margrét væri mjög óánægð hjá honum og við vissum það öll að þessi kennari væri fínn fyrir litlu krakkana en ekki hæfur fyrir kennslu fyrir stúdentspróf. Og að hún vildi örugglega fá að heyra hvað nemendur og foreldrar segðu við gangi mála í skólanum. Hún kímdi við, og sagði að það myndi líklegast finnast lausn á þessu máli. Og þakkaði mér fyrir að segja sér okkar skoðun. Bað mig endilega að kíkja bara inn til sín á skrifstofuna þegar ég væri í skólanum og við gætum spjallað saman.
Já, svona er það að vera útlendingur og vera með "Narrenfreiheit"-- mega tala eins og fíflið!
Vona að Aldís Björns taki þetta upp eftir mér, það borgar sig!!!!
Allt gengur vel í gæslunni eftir að Christine kom að vinna með okkur tvisvar í viku. Kannski við förum út í dag úr því að sólin skín svona glatt. Af og til bara frjáls útivera er svo sjálfsögð, en ekki í 3 mánuði án undantekninga.
Eitthvað gengur illa með nýju lyfin hjá henni Arnhildi minni. Vona að hún fái betri, og að heilsan fari að batna verulega. Lífið er oft erfitt og ekki mikil birta framundan, en samt er hún þarna. Einhvers staðar bak við fjöllin og best að fá bara bóndason með stóra borinn til að bora gat á fjallið og hleypa sólinn inn. Og ekkert að vera að skríða í gegn um gatið og festa sig. Bara horfa í gegn og fylla batteríin.
Svanhildur--pabbi er alveg vonlaus í netföngunum. Mamma er frekar pirruð að fá aldrei að sjá myndir af strákunum. Kannski þið segið honum aftur hvernig hann kemst inn. Ég held að hann kunni Dísarblogg--er ekki hægt að komast inn á myndirnar þaðan? Hann segir að þá komi síða Svanhildar og engar myndir.???
Bless og hafið það gott. Kannski Elli reddi Favorite einhvern tíman fyrir hann. Aldís D. í dag í maga og ristilskoðun. Elsku stelpan mín--gangi þér vel.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
7 comments:
Hæ hæ. Gott að hitinn er kominn á.
Leiðinlegt að heyra af vandræðunum að komast inn á síðu strákanna á mínum bæ. Ég er nú ekki inni á facebook og get ekki komið slóðinni á framfæri þar en veit ekki nema að afi Gú gú lesi þessa síðu þá set ég slóðina hér inn. En ef hann kemst inn á mína síðu, þá getur hann smellt þar á slóðina "strákarnir mínir tveir".
http://www.internet.is/fortuna/Erfinginn_09.html
Bestu kveðjur, Svanhildur
Halló, halló og gott að heyra að hitinn sé kominn á, bæði inni og úti ... Hér er líka búið að vera frekar grátt og leiðinlegt undanfarið. Og já Áslaug þetta er alveg satt með útlendingana og ,,Narrenfreiheit" þessir blessuðu þjóðverjar geta verið svo bældir og krumpaðir og stundum þarf óuppalda íslendinga til að hrista upp í liðinu... Fór að spyrja frænda Christofs (þeir eru bræðrasynir í pínulítilli en þvílíkt lokaðir famelíu) eftir systur hans og þá kom upp úr kafinu að hún er komin með brjóstakrabbamein og ég var svo fyrsta sem fékk að heyra það ... Bara vegna þess að enginn segir neitt af fyrra bragði og enginn vill spyrja persónulegra spurninga... Thjaa...
JÆja er hætt ,,þessu blaðri" eins og Pétur föðurbróðir minn Yngvason myndi kalla það ;-)
Hafðu það gott, kv. Aldís B
Gott að hitinn er kominn í lag. Hér er komin nýr háfur fyrir eldhúsið, hann er í skúrnum og fer vonandi upp um helgina. Þetta smá gengur, keyptum flísar í gær í BYKO á tilboðskvöldi, alltaf að reyna að spara,tihi. Góða helgi.
aðeins neðar á síðunni minni er beinn aðgangur að síðu strákanna
Afmælisveisla fyrir Dag og Hildi haldin í gær, alltaf gaman að fá familíuna í heimsókn. Hafði verið bið á því vegna svínaflensu vesens. Valdimar og Þórdís á kafi í lærdómi og komust því ekki. Jólalagakóræfingar koma manni svo smám saman í jólagírinn! Tók eftir því á leiðinni í vinnuna í morgun að margir hafa notað helgina í að setja út seríur, sem er sniðugt til að lýsa aðeins upp skammdegið sem nú fer að herja á okkur af fullum þunga! Bestu kveðjur til ykkar allra!!
viltu að ég nái mér í bóndason?? Og í hvaða landi þá má ég spurja?? það er aldeilis búið að plana fyrir mann...haha -Arnhildur
( og p.s. er komin á ný lyf sem eru actually að virka eitthvað!!! :)
HæHæ... kvitti kvitt :þ er á leiðinni til Akureyrar á miðvikudag og hlakka til að hitta alla þar, ekki síst elsku Arnhildi mína :o) gott að heyra að lyfin séu farin að virka :D
kv
Kristín... sem er lítið á netinu þessa dagana, svo bissí að vera húsmóðir :þ
Post a Comment