Tuesday, November 17, 2009

Vorveður.

Hann heldur sér við rigningu úti, en í dag var þó afskaplega lítil úrkoma. Á morgun ætlar hann sér að bæta úr því. :) Veit ekki hvað skaparinn er að hugsa. En hann sendir okkur daga, sem eiga betur við vor en vetur. Hver veit. Kannski við fáum engan vetur, sem væri nú frekar ömurlegt. Því fátæklegt væri ef árstíðirnar væru bara þrjár.
Af okkur allt ágætt að frétta. Við erum afskaplega fegin að heyra að Arnhildi líði betur og þessi glænýju lyf séu miklu betri en hin. Rétt heyrðum í henni áðan hjá Lillu þar sem hún sat með prjóna undir píanóleik pabba. Ekki hefði ég haft nokkuð á móti því að vera þar mætt.

En hér gengur nú lífið sinn vanagang. Ég notaði sólarstundirnar sem voru á sunnudagsmorguninn og vann í garðinum í 3 tíma. Er næstum búin að koma lífrænt ræktuðu moldinni á beðin og þetta er allt í sóma. Á fö. var Klaus í fríi. Við ókum bláa bílnum til Gifhorn og sóttum svo aftur seinni partinn. Verið að setja undir hann vetrardekkin og gera við eitthvað. Síðan brugðum við mæðgur okkur til BS í fjörið. Alltaf gott að fara seint og njóta þess að vera í bænum í fámenninu , sem ríkir eftir hálf sex, sex.
Bauð dömunni upp á kaffi og köku í nýja Strabucks á Kohlmarkt. Notalegur staður og kaffið alltaf jafn frábært. Margrét keypti sér gallabuxur þar sem þau undur og stórmerki gerðust að hún passar ekki í einar gallabuxurnar sínar! Maddý mjög ánægð með það :) Svo keypti hún sér bol. Annars vorum við í jólagjafastússinu og það gekk það vel að við gátum gengið frá 3 kössum um helgina. Vorum í akkorði að pakka í þá og líma utan um. Klaus fór til Gregor að vinna við tölvuforritin. Við enduðum daginn á núðlubakstri og sjónvarpsglápi. Svo bar Margrét kassana í bílinn á mánudagsmorguninn. Ég má jú ekki, sniff, sniff. Og ég skutlaði henni í skólann. Og þegar ég sótti hana klukkan 11 fórum við á pósthúsið með kassana. Allt þaulskipulagt!
Eftir einn kassi til Arnhildar með nytsömum hlutum eins og t.d. karamellum, hahaha.

Í morgun var ég á ferðinni fyrir foreldrafélagið. Fór með nýju bókabæklingana. Fer svo eftir rúma viku til að ná í pantanir, peningana og svo að panta. Gott að eiga "hækju",- innkaupavagn á hjólum!
Margrét fékk frí í tveimur tímum í hádeginu í dag. Hún var í píanótíma í dag og alltaf er nóg að gera. Tvö próf eftir. Hún fékk fyrstu einkunn í stærðfræðiprófinu. 13 af 15 punktum. En tvær vinkonur hennar voru með tvo og enga. Ekki veit ég hvernig þær ætla að ná stúdentsprófinu. Hér er þetta svo strembið.

Er að taka búið/þvotthúsið/geymsluna í gegn. Það er svo vonlaust verk því í svona litlu herbergi fer allt í vitleysu eftir smá tíma. En ég rembist eins og rjúpa við staurinn.
Hafið það sem allra best. Góða nótt frá Germany.

4 comments:

Kristín E. said...

Dugleg frænka í stærðfræðinni :D skil ekkert í að hún sé þroskaðri en ég og drekki kaffi hehehe ég kann ekki á svoleiðis :þ

Malla kaffifría ;) said...

úff ég kann ekki heldur á þetta kaffiþamb, á morgnanna þegar maður opnar facebook þá eru allir að hafa orð á þessum fyrsta kaffibolla dagsins - ég fæ mér bara morgunkorn!!! Kv. Malla

Anonymous said...

en ekki rembast of mikið því þá færðu gyllinæð....múhaha!!
kveðja þín elskulega dóttir (þessi eldri og ruglaðri..)

Thordisa said...

væri alveg til í engan vetur get ég sagt þér og hafa bara 3 árstíðar vetur er ekki minn tími... annars er ég bara að drukna í vinnu og hef ekki tíma til að anda og gera neitt. helgin bókuð í verkefni, skólinn að klárast í næstu viku og próf að byrja í des úffff