Sunday, November 22, 2009

Á sunnudagskvöldi.

Mikið rosalega flýgur tíminn áfram. Vikan var rétt að byrja og er búin. Við fengum eina 4 daga án rigningar, svo að segja. Í gær var æðislegt veður og í dag ágætt. Svo er rigningarspá og hvasst framundan. Nú þegar farið að hvessa eitthvað. Þeir sviku mig um krimmann klukkan 20.15, og í staðinn er mynd um Bader-Meinhoff hópinn, sem framdi hryðjuverk á sínum tíma. Fékk nóg af öskrunum og blóðinu í byrjun og settist frekar við tölvuna. Og svo er seinni sunnudagskriminn á sínum stað, klukkan tíu,. Síðasti þátturinn af fimm frá Danmark, Protectors. Fínustu þættir.

Í gærmorgun vann ég eina törnina enn í garðinum. Man ekki eftir að hafa plokkað illgresi í nóvember áður. Farið að springa út á runnum. Þetta er ekki gott því hann skellir örugglega frosti á okkur næstu daga. Loks búin að koma allri moldinni á beð. Þessari, sem við fengum úr safnkassanum. Við hjónin slógum grasið í samvinnu , og ég rakaði mest allan garðinn. Þreif svo stofugluggana að utan. Og veitti nú ekki af. Hef ekki þvegið þá frá því í vor, kannski í maí eða fyrr. Hver setur svarta gúmmílista á glugga úr hvítu plastefni? Svo maður fái svartar rákir á hvítu karmana. Ætli það hafi ekki verið karlmaður, sem fann þetta upp :)
Í dag tók ég tvo glugga uppi í gegn og svo verður haldið áfram áður en jólaljósin koma í gluggana.

Klaus hreinsaði þakrennuna, lagaði hurðina í forstofunni, hún hallaði niður. Gerði við haldfang á annarri hurð. Setti peru í loftljósið á baðinu og gekk frá einum stól í viðbót með mér. Hann hlýtur að vera lasinn!!! Nú er ekki til efni í síðasta stólinn og ég steingleymdi að kaupa efni í Ikea í gær.

Við mæðgur skelltum okkur nefnilega í bæinn í gær. Fórum fyrst til Ikea , og keyptum jólapappír. Rosalega margt fólk þó að klukkan væri um fjögur. En það er alltaf margt þar. Svo í rólegheitin í innbænum í BS en þar er gott að vera seinni partinn á laugardögum. Fengum m.a.s. uppáhaldsstæðið okkar í bílageymslunni. Voða happy. Engin eyðsla í kaffihúsi, ó nei. Bara verslað og farið heim. Svo horfðum við á gamanmynd um tvo gaura, sem svindluðu sér inn í brauðkaupsveislur. Wedding-Crashers, fyndin og vitlaus.

Á fö. sóttum við bílinn, sem fór í viðgerð til Gifhorn um morguninn. Margrét fór með mér í Real, okkar "Hagkaup". Hún var mjög afslöppuð um helgina þar sem hún á bara eftir eitt próf, ensku á morgun.
Lærði bara ekkert í gær, sem kemur nú ekki oft fyrir. Við horfðum á Spidermann tvö, sem ég hef ekki séð áður. Svo er verið að taka upp númer þrjú. Við kíkjum á hana við tækifæri.

Pabbi farinn suður og verður í viku eða meira. 3 læknatímar. Hjá þremur læknum. Mamma náttúrlega búin að kaupa sér soðinn fisk og stefnir á að fá sér saltfisk líka. Á Akureyri er allt í kafi í jólaundirbúningi þar sem Kristín kom norður með tvíburana og Margréti. Laufabrauð og mömmukökur. Ekki amalegt.
Hér á bæ er ekki byrjað að baka. Geymslan þó orðin hrein,og svo byrjuð á gluggum sem fyrr segir. Jólin koma alltaf svo skyndilega :)

Hafið það gott, og njótið þess að vera innan um fjölskyldu og vini.

6 comments:

Malla said...

Mig er farið að dauðlanga til að yfirdekkja mína borðstofustóla í allri þessari umræðu ;) Hér er kalt en voða fallegt og kyrrt veður dag eftir dag. Kv. Malla

Þorgerður hat gesagt said...

Já ég hugsa að við drífum okkur í að græja okkar borðstofustóla líka fyrir jólin! Gott ef einhver hristir svona upp í okku rog kemur með hugmyndir :)
Allt við það sama hér, nóg að gera, kórtónleikar, danssýningar, próf ofl. framundan. Ekki búin að ákveða hvort við förum norður yfir áramótin, væri gaman en alltaf svolítil keyrsla sem fylgir því og kannski veitir manni ekkert af afslappelsi...
Væri alveg til í að slá garðinn minn í þokkalegur veðri- -2°C hér í morgun!!

Thordisa said...

verður búið að vera frábært. Guðný og Jasmín eru farnar að bera út Fréttablaðið hér í næstu götu og eru komnar á fætur upp úr kl 6. Rosalega duglegar fá um 15.000 hvor á mánuði fyrir þetta. sjáum hvað þær endast en þær er þó allavega duglegar ekki hægt að segja annað. ég er á kafi í verkefnavinnu klára vonandi á morgun og þá tekur prófatörn við sem líkur 15 des. þarf að koma pökkum í póst til þín sem fyrst

Anonymous said...

Allt fínt að frétta héðan úr suðurhlutanum. Líka búið að vera ótrúlega gott veður hjá okkur. Lítið jólalegt! En hver veit.
Íslenskukennslan gengur mjög vel og hópurinn sem ég er með er einstaklega skemmtilegur og góður! -Sem skiptir öllu þegar maður er að kenna í fyrsta skipti.
Kærar kveðjur og vonandi njótið þið aðventunnar. Aldís B.

Anonymous said...

Farið að styttast í kennslunni hjá mér og nú verða ekki fleiri glærur búnar til. Kennt fram á fimmtudag í næstu viku. Þetta er búið að vera ágæt törn. Friðrik klárar skóla á morgun og svo eru próf hjá honum. Nóg að gera þar. Hitti Örnu frá Dalvík, bað að heilsa. Pabbi hress og á þeytingi um bæinn, matur hjá Bróa og Svanhildi í gær og Þórdísi og Ingó í dag. Láki Palli gisti hér í gær svo það gerist eitthvað hér af og til. Bið að heilsa í bili.
Diddi

Kristín E. said...

kvitti kvitt.... frá konunni sem er búin að vera í tölvufríi :þ