Wednesday, December 2, 2009

Gleðilega aðventu.

Loksins aftur smá fréttir frá okkur. Ekki skrifað á bloggið í eina tíu daga. Nóg að gera og af og til held ég að ég sé að veikjast, en hef sloppið fram að þessu. Smá pirringur í hálsi og er sennilega að fá kvef. Krakkarnir liggja umvörpum í skólanum. Vantaði tíu í bekkinn, sem ég er með flesta úr. Svo það var rólegt í gær. Við Margrét ákváðum að skella okkur til BS í gær. Píanókennarinn lasin. Besta veður og smá kul. Engin rigning-- yndislegt, og óvanalegt. Ég er ekki búin að kaupa jólagjafirnar handa Margréti, og eftir að redda frænkum hennar í Fallersleben. Við vorum því í sitt hvoru lagi að stússast. Hittumst svo til að ganga yfir jólamarkaðinn til að komast í smá jólafíling. Það var spilað jólalag í akkurat einni verslun! Það er svo sannarlega ekki jólastemming hér í landi. En markaðurinn er ágætur þó að ekki finnist neitt til að kaupa. Allt fullt af pylsubúllum, síldarrúndstykkjum, brenndum möndlum og fleiru slíku. Ekki má gleyma glögginu. En stemming!

Við ekki komnar heim fyrr en undir hálf níu og þetta var bara hægt þar sem Margrét fer ekki í skóla fyrr en klukkan 11 í dag. Já, væri ekki verra að búa nær borginni. En ekki hægt að hafa allt.
Í morgun var svo eitt og hálft stig frost. Ég út að skafa fyrir Klaus, og setja sjóðandi vatn í hitaflösku á mælaborðið. Það tekur móðuna af að innan. Allt er hvíthrímað og fallegt. Mætti bara vera svona það sem eftir er vetrar.

Við skreyttum um helgina. Á ýmsu gekk. Við eyðilögðum nýja seríu, sem ég keypti í Lidl. Það koma svona vörur á tilboði af og til. Þetta voru plastjólatré, fest á breið prik. Gekk nú kirfilega frá þessu í blómapottinn framan við eldhúsgluggann, en setti ekki spennibreytinn strak við. Fór að aðstoða Klaus við að setja seríur í tvö tré. Og svo týndist spennubreytirinn og ég tók bara einhvern. Hélt að sama væri hver. En þá eru þessi ljós með 3 volt, og allar seríurnar okkar annars með 24 V. Svo það brann snarlega yfir og engin ljós á jólatrjánum. Ég var svo spæld! Þið ath. að gera ekki sömu mistök!
Klippti svo snúrurnar af trjánum og þau eru til skrauts í pottinum, betra en ekkert , sniff, sniff.
Við göngum reglulega fram af liðinu hérna. Erum búin að vera með bláa seíru lengi dags, og nú settum við fínu rauðu seríuna, sem við fengum á Akureyri í janúar. Hvað ætli mamma Enno segi við þessu? Hún, sem var svo irriteruð þegar við settum bláu seríuna framan við útidyrnar. Ég var nú svo sæt í mér að færa hana á jólatréð bak við húsið svo hún þyrfti ekki að þjást mikið!
Þjóðverjar og jólaskraut og jólalög---ekki gott mál það.

Klaus og Margrét voru á fullu í þessari skreytingu. Við þurftum hundrað ferðir upp og niður hanabjálkastigann að vanda til að ná í dótið á háaloftinu. Nú eru komin kerti í gamla smíðajárnkertastjakann, dagatalskerti stendur á borði, súkkulaðidagatal bíður Margrétar á morgnana, Júlíuskönnurnar komnar á snagana í eldhúsinu, stjörnur í glugga, seríur hér og þar, og útsaumaðar myndir og annað jólaskraut gleður augað.
En ekki ein kökusort bökuð, eða jólakort tilbúin. Hm hm hm.

Síðasta vika var erilsöm. Þurfti til Leiferde að ná í pantanir og peninginn hjá krökkunum, sem vildu fá bækur úr listanum okkar, frá foreldrafélaginu sem sagt. Svo voru kennaraviðtöl fyrir 5. og 6. bekk. Við seldum kaffi og vöfflur. Ég bjó til tvær tvöfaldar uppskriftir. Tók svo allt draslið í minn bíl þar sem ég þurfti hvort sem er til Leiferde. Ergilegt að vera með skólann á tveimur stöðum. Við höfum bara aðstöðu fyrir allt dótið í Leiferde. (kaffivél, kaffikönnur, vöfflujárn, könnur til drykkjar, og bara allt, sem þarf til kaffisölu ) Setti allar könnurnar í mína uppþvottavél, nóg að starfa, já ekki málið. Það er mesta furða hvað kemst í gamlan Golf. Sem er kominn í 99 900 km! 14 ára gamall :)

Þurfti svo til Hillerse í miðri skreytingu á sunnudaginn til að ganga frá bókapöntuninni með Kerstin, sem er með þetta í tölvunni. Á svo von á bókunum hvenær sem er og þarf þá að sortera og útbýtta þessu. Er maður klikk :) Margrét var betri en enginn á meðan. Ryksugaði, gekk frá í eldhúsinu og lét pabba sinn setja grenilengjuna yfir eldhúsgluggann. Ég var bara búin með þá yfir dyrunum. Hún er mikil jólastelpa og saknar ljósanna frá Íslandi mikið.

Margrér fékk Lennart í aukatíma á mánudaginn. Hann var að fara í tónmenntapróf. Svo kemur hann í dag eftir að hún er búin í ökutímanum. Annar tími á morgun. Nóg að gera hjá henni.

Og dugnaður í öllum heima. Arnhildur dugleg að aðstoða mömmu, sem mér þykja góðar fréttir. Mamma er búin að gera svo mikið fyrir okkur öll og á svo skilið aðstoð. Og svo tók Arnhildur skurk í jóladótssorteringu með Fúsa. Hún segist eiga mikið skraut. Hver trúir því? Komin út af Erni F, dóttir Áslaugar.!!! Laufabrauð hjá mömmu um helgina með dyggilegri aðstoð allra kvenna í fjölskyldunni. Þið eruð svo dugleg.

Líklega ekki mikið bakað á Grenimel eftir að Sigyn fór að vinna í versluninni. Ekki tími í jólaskreytingar eða ? Hvað var þetta með könglana--fóru þeir bara i búðina? Koma ekki myndir?
Jæja, best að hætta og gera eitthvað. Sólin skín á hrímaða jörð og maður kemst í besta skap.

Gleðilega aðventu og njótið undirbúningsins. Ekkert stress, bara gleðilegur undirbúningur. :)

5 comments:

Anonymous said...

Gleðilega aðventu til ykkar sömuleiðis, vona að hún verði notaleg og góð.

Bestu kveðjur, Svanhildur

Kristín E. said...

kvitti kvitt frá einni með hálsbólgu og hornös :S

Malla frænka said...

myndi pottþétt bara fá mér fleiri bláar seríur ef ég fengi svona komment, þú veist hvernig púki ég er. Ég er ekki enn farin að baka, en eldhúsið er allt að verða reddí og þá verður tekið á því :).

Anonymous said...

eyddum deginum í Muenchen, heilmikil jólastemming á markaðnum þar, en alveg OFBOÐSLEGA mikið af fólki... Gott að vera komin heim og setja þreyttar tær upp í loft ;-)
Aðventukveðjur úr suðrinu, Aldís

Thordisa said...

Eyddi helginni uppi í skóla c.a. 15 tíma báða dagana svona er að vera í prófum stuð. En eftir um 9 daga er þetta búið ef maður nær öllu :-)