Tuesday, December 29, 2009

Á afmæli Valdemars Arnar.

Þá á blessaður gulldrengurinn afmæli í dag! Innilega til hamingju með soninn Affí mín! Vona að þið hafið það verulega gott í öllum snjónum, sem við öfundum ykkur sko af. Frekar vil ég vel kalt og snjó en rigningu og hita um frostmark. En við fáum víst litlu um það ráðið.
Hér er reyndar hið besta veður. Næturfrost, sama og enginn vindur og ein tvö stig hiti. Margrét farin í ökutíma og fer í annan á morgun. Henni þykur þetta mjög gaman og gott að hún hafi eitthvað fyrir stafni. Við fórum til Hannover í gær. Létum Klaus skutla okkur að lestarstöðinni í Dedenhausen, og tókum þátt í brjálaðri jóla-ösinni í stórborginni.

Meðan við biðum á stöðinni var mér starsýnt á stelpu, sem mér fannst ég kannast við. Hún var í fylgd með konu, sem leit oft til okkar og þegar við fórum inn í lestina brosti hún til okkar. Og ég spurði hvort þetta væri Kristín Sunna, -dóttir Hrannar. Og auðvitað var þetta daman, komin að heimsækja pabba, stjúpmömmuna (pólsku) og litla hálfbróðurinn. Sá stutti var skírður í fyrradag. Kristín lék á þverflautu í skírninni. Systir Uwe, pabba hennar, sem var fylgdardaman, hrósaði henni mikið fyrir spilið. Kristín er í sama skóla og Guðný. Ári eldri, og verður fermd í apríl. Þá stefnir fjölskylda Uwe á ferð til Íslands. Það var voða gaman að hitta þær, og ég var alveg hissa að Kristín skyldi þekkja mig. Það eru líklega ein 4 ár frá því þær mæðgur fluttu heim. Hrönn vinnur núna á BSÍ eftir að hún missti vinnuna sem landslagsarkitekt í kreppunni.

Við Margrét eyddum svo deginum í troðfullum verslunum. Hún fann á sig spariblússu og þunna peysu. Hún var aldrei búin að finna neitt fyrir jólin, og ég held að engin íslensk stelpa myndi hafa verið í tveggja ára gömlum fermingarkjól á aðfangadag. Svona er hún nægjusöm, blessunin, og ef hún á einhverjar óskir, reyni ég að uppfylla þær þar sem þær eru ekki margar.
Við keyptum líka afmælisgjafir handa Affi, þessari bráðum fimmtugu konu :) Og reyndar fannst ein gjöf handa Arnhildi, sem þá bara bíður fram i maí :)
Fengum okkur kaffi á kaffihúsi á lestarstöðinni þar sem við lögðum ekki í að fara aftur í verslunarmiðstöðina þar sem Starbucks er.

Maria vinkona Margrétar, sem er í afar kristinni fjölskyldu, hringdi í gærmorgun og bauð henni með í Hartzfjöllin. En við vorum sem sé að fara, og þar að auki á Margrét ekki neinar snjóbuxur. En því hefði sennilega mátt redda. Þær ætla að hittast einhvern tíman. María sagði okkur að enginn fengi jólagjafir á aðfangadag hjá þeim, " þar sem Jesús ætti afmæli og bara hann fengi gjafir" --Ég hélt að við gæfum gjafir af því að Jesús ætti afmæli og við gerðum það í anda hans. Vissi ekki til að hann vildi fá sér gjafir blessaður. Hm hm.

Það var allavega nóg af gjöfum hér á aðfangadag. Nokkrar myndir eru á blogginu af þeim flottustu. (Vantar reyndar nokkrar stjörnur frá Arnhildi.) Hún er svo flink stelpan. Peysurnar, sem setja á á egg til að halda þeim heitum á morgunverðarborðinu frá Svanhildi vöktu mikla lukku. Susanne mágkona snéri þeim við og dáðist að handbragðinu og taldi lykkjur og mun í framtíðinni prjóna slíkar Eiginlega ætti Svanhildur að fá "patent" á þetta :) Malla saumaði út í handklæði, mjög sætt. Affí prjónaði vettlinga á okkur gömlu. Margrét átti vettlinga fyrir. En hún fékk geðveikan trefil frá Affí. Það sem maður á duglega ættingja. Maddý sendi okkur kertastjaka frá Heima, islensku fyrirtæki. Þetta er flatt, svo beygir maður upp laufin og setur tekerti í miðjuna. Sést ekkki nógu vel á myndinni. Heitir Bláberjalauf, og passar vel handa konu, sem var svo sæl að sjá alla Spékoppana, -Sætukoppana :) :) :)

Margrrét fékk myndavél frá þeim gömlu,, ilmsprey og DVD frá Þórdísi, könnu, skál, varalit og fleira smotterí frá Doreen, dagatal frá frænkum sínum og bók og baðolíu frá Susanne. Arnhildur bjó til armband og eyrnalokka handa henni (eftir að mynda ), og svo sem sagt glerlistaverk. Hún fékk bók með latneskum textum, sem henni þykir mjög skemmtileg. Síðar og mjúkar náttbuxur, jólanærbuxur með Rúdolf--árleg jólagjöf að fá eitthvað þannig frá Arnhildi. Komin með gott safn :) Svo bók um Amsterdam, sem ég reddaði fyrir systur hennar. Truman Show á ensku, ein af uppáhaldsmyndunum hennar. Jólatásokka með Rudolf og kannski eitthvað fleira. Ég er sko gleymin eins og fólk veit.
Við gáfum henni DVD Grey´s Anatomy þáttaröðina númar 4., og Pushing Daisies, seinni þættina. Við elskum þá báðar. Svo Pink Panther númer tvö. Bók," Arkadien erwacht", eftir Kai Meyer, ný spennandi bók fyrir unglinga. Svo jólaskraut, nokkur hjörtu inní hverju öðru. Bol frá Vero Moda, púsl frá Wasgij, spil úr seríunni Think. (gott fyrir mig að taka þátt í þannig spileríi ! :) Mjúka innskó með Snoopy, held að það sé þá komið.

Klaus fékk bók frá pabba og mömmu og aðra frá þeim systrum, báðar Eifel krimmis. Skemmtilegar sögur, sem gerast í Eifel héraðinu með frábærum söguhetjum. Svo tvær skyrtur, langerma bol, náttföt og tvær peysur frá okkur Margréti. Bók frá Susanne, krimmar, sem gerast í Algäu, líka óvenjulegir persónuleikar og engin lognmolla þar á ferðum. Ég fékk líka eina. Sælgæti frá þeim R. og D., og við fengum 6 glös frá þeim saman.
Ég fékk ilmvatn frá Trésor og litlar túbbur með sápu og kremi frá þeim feðginum. Bókina nýju eftir Dan Brown, krimma, sem gerist á Föhr--já, það spretta upp nýjar bókaraðir með löggum, sem gera heimkynni sín þekkt með staðarlýsingum og frásögnum á daglega lífinu. Svo fékk ég tösku undir gemsann til að festa á belti. Margrét gaf mér eina himneska systur, og þunnan klút. Susanne gaf mér bók til að vera með sem minnisbók í tösku, og bók í þakklætisslyni fyrir að sjá um matinn í þetta sinn. Líka tvær flöskur af líkör, sem hún útbýr sjálf. Og Diddi gaf okkur dagatal með myndum, sem hann tók og þær eru bara æðislegar. Þórdís gaf okkur nammi, og DVD, myndina "Karlar, sem hata konur". Veit ekki enn hvort ég ætti að horfa á hana því ég er svo hrifin af bókunum. Sigurður og Svanhildur sendu okkur sem áður segir peysurnar á eggin, æðislegan bleikan löber og íslenskar servéttur, sem eru líka frá þessu fyrirtæki "Heima" eins og kertastjakinn. Bók frá mömmu og pabba, en þeirra aðalgjöf voru peningar, sem eru þegar farnir í ákveðna hluti. Kristín Dögg gaf ömmu gömlu segla með Júlíusi, sem er mín uppáhalds vera í jólatíðinni. Affí líka disk með Eyvör, færeyskri söngkonu, mjög falleg tónlist.
Það getur varla verið að ég hafi munað allt, en þið fyrigefið gamalli konu, sem aldrei man allt.

Þegar búið var að skreyta tréð og setja átti seríuna í samband var hún ónýt. Þrátt fyrir að hún hafi verið í lagi rétt áður. Mér finnst mikill missir að hafa ekki logandi á trénu, en við settum mörg kertaljós og það var fallegt og góð stemming á stofunni þegar jólin byrjuðu. Smá óhapp við sósugerðina þar sem ég passaði ekki soðið og það sauð uppúr og rann niður í skúffuna undir vélinni :) En allt reddaðist og allt smakkaðist vel.
Margrét fékk möndluna, og það var fín möndlugjöf, spilið Mister X, sem við erum búnar að læra.

Við þökkum ykkur öllum fyrir ykkar gjafir og kort og fallegar myndir af fallegu börnunum í fjölskyldunni! Þetta er nú heldur betur stór hópur orðinn.

Við erum búin að fara í göngutúr tvisvar en annars er lífið bara rólegheit. Gott að geta borðað afganga og ekki þurft að gera mikið í húsinu. Púsluðum púslinu á einum degi, vorum alveg límdar í því :)
Jæja, Margrét er komin úr ökutímanum, og við ætlum að fá okkur kökur, sem liggja undir skemmdum þar sem við fáum jú engar heimsóknir og við ráðum ekki við að borða allt :)
Hjartans kveðjur og njótið jólanna.

4 comments:

Kristín E. said...

Gleðileg jól :o) fínar jólamyndir og gaman að lesa um allar gjafirnar... ég kem mér kannski í að skrifa svona lesningu á næstunni, kannski :þ
Er jólakortið frá mér komið, var að ég held aðeins of sein að koma því í póst úbbbs en það skilar sér á endanum.

Anonymous said...

ég las allt saman!! Er ég ekki dugleg..híhí!

Malla said...

Gaman að kíkja hér eins og venjulega ;) Jólalegt og fínt hjá ykkur, mér finnst þú ekkert lík Grýlu Ádda!!! Sá hana sko á Þjóðminjasafninu og hún er sko ekki lík þér!!! Kv. Malla

Anonymous said...

Frábærar myndir og ótrúlega mikill snjór hjá þér eins og okkur. VÖ var að fara suður með Sigga vini sínum, verð fegin þegar þeir verða komnir alla leið, þó ekki hálka á norðurlandi því hér er nægilegt frost, en eitthvað farið að hækka hitinn á vesturlandi. ADE og Arnhildur voru að fara útúr dyrunum að sækja stundaskrárnar. 'Eg fór í myndatökuna í gær á spítalanum, fæ að vita á morgun hvað er að, get labbað en haltra þó enn, og er örugglega líkari grýlu gömlu en þú :) Kv affí