Tíminn flýgur áfram. Sumarlaukarnir spretta upp úr pottunum og úti voru um 7-8 stig í dag. Ekki furða þó manni finnist jólin langt, langt í burtu. En annar í aðventu var um helgina og Nikulausar dagurinn. Á afmæli Össa. Hann Nikulaus leit nú við hjá okkur. Skildi eftir núggat handa Klaus, sápu og karamellusósuna góðu frá Starbucks handa mér. Margrét fékk bók, eftir Sophia Kinsella. Og þar sem hún er komin í kaffiþambið fékk hún síróp. Svokallað hvitt súkkulaðisíróp til að setja í kaffi. Sem sagt alveg æði.
Við bökuðum dönsku piparkökurnar, sem mér finnast miklu betri til að skreyta með glassúr. Allt annað bragð en af hefðbundnu piparkökunum. Líka frábær uppskrift í hús. Vorum í meira en 3 klukkustundir við þetta, enda uppskriftin meira en kíló :) Svo bökuðum við Maríukökur og súkkulaðibitakökur á sunnudaginn.
Frau Kühle átti afmæli þann 4.12. Hún varð 65 ára. Hélt upp á það í skólanum með súpu, salati og desert. Ég bjó til mozzarella salat með tómötum, og aðstoðaði hana við að hita upp súpuna og skera brauðið. Nennti ekki heim og eyddi heilum morgni í leti í skólanum, spjallandi við hina og þessa.
Hún fékk svo fjölskylduna á laugardaginn. Við Margrét litum inn í stutta stund. Það var varla líft fyrir hávaða í barnabörnunum, sem eru nú bara tvö. Strákurinn (7 eða 8 ára) er vægast sagt hræðilegur. Enginn reyndi að stoppa hann þegar hann spilaði á píanóið. Og það svo hátt að við gátum ekki talað saman. Langaði mest að vera eins og pabbi og hrista hann ærlega! :) Æ, sorglegt þegar foreldrar ala ekki upp börnin og enginn vill svo fá þessi grey í heimsókn.
Í dag fór ég með bækurnar í útibú menntaskólans. 8 km hvora leið. Svo með bækur í aðalbygginguna hérna hjá okkur í Meinersen. Loks upp í minn skóla með alls konar dót, sem ég keypti fyrir gæsluna. Við erum að búa til kexhús. Og svo á að gera jólatrésskraut úr pappír. Með alls konar kornum límdum á, og rönd utan um með glimmer. Var vel klyfjuð, og gott að eiga "hækjuna" mína. Heim með viðkomu í Netto að kaupa pizzu handa Margréti, sem kom heim klukkan 11 og þurfti aftur klukkan eitt. Gat allavega rétt hitt hana og fengið mér kaffisopa hjá henni áður en ég fór 11.45 af stað.
Svo er ég búin að fara í gegn um innkaupamiða, gera lista yfir það, sem eftir er að kaupa fyrir jólin. Telja peninginn frá krökkunum fyrir bækurnar. Þarf á morgun að leggja hann inn á reikninginn hjá foreldrafélaginu. Og svo fæ ég 25 auglýsingar til að dreyfa í verslanir hérna. Við þurfum að auglýsa jólatrésssöluna okkar, sem verður því miður 19. des. Ég hefði viljað að það væri núna um næstu helgi. Susanne mágkona á afmæli þennan dag--eins og Arnaldur Kári blessaður. Hún stakk upp á að við kæmum í staðinn þann 18.des. og kíktum á jólamarkaðinn í Autostadt, á svæði VW verksmiðjanna. Þar er núna þemað England og á að vera hægt að kaupa breskar kökur, föndur og ég bara veit ekki hvað. --En þá á Margrét að mæta klukkan 18.00 til að syngja í messu, eða hátíðarstund hjá menntaskólanum. Allt rekst á. Ætla nú samt að ath. hvort hún getur ekki losnað við þetta. Verulega ergilegt. Ekki eins og við förum nú mikið út af bæ.
Nú eru kassarnir að skila sér til Íslands, sem ég sendi. Vona að Diddi verði snöggur að koma þessu út fyrir mig. Sennilega verður Margrét litla vaxin upp úr flíkinni, sem við keyptum í sængurgjöf áður en hún fær þetta loksins :) Svona er það að vera óskipulögð kona, og gömul og rugluð í þokkabót.
Eitt dæmi um ellimörkin er eldamennskan um helgina. Setti "brauð með annasi" í ofninn, og beið eftir að osturinn bráðnaði. Margrét spurði--"af hverju ertu ekki með ost á brauðinu"? Getur þetta orðið verra :):):)
Þórdís sendi okkur pakka og nammi, sem við erum sko búin að narta í! Nema Margrét, sem aldrei borðar neitt nammi nema hún sé í sérstöku stuði. Vildi geta sagt það sama :)
Ekki farin að gera neitt í jólakortum og fer að fá stress kast út af því. Æ, af hverju er ég svona óskipulögð. Veit að þið eruð löngu búin að flest öllu. Nema náttúrlega Þórdís, sem er í prófum og Affí, sem er að vinna á fullu. Affi vinnur aldrei eins og eðlilegt fólk, heldur á við marga. Og svo er mamma komin með verk í tána. og getur sig ekki hreyft. Bíður eftir niðurstöðum úr blóðsýninu. Kannski sýra í þessu. Það er nú ekki gott. En hún er búin að baka mest allt, og fékk góða aðstoð hjá Arnhildi. Verst að hún fær bara konu eini sinni i mánuði til að þrífa. En ég sagði henni að taka hana alveg endilega. Og hver veit nema þessi sé góð, og hafi tíma til að vinna prívat og geti þá komið oftar. Og kæmi hún á eigin vegum hlýtur að vera hægt að semja við hana um að gera meira en bara gólfin. Mamma tuðar alltaf um að ekkert gagn sé að gólfþvotti og því að þurka af. það geti hún nú alveg sjálf.
En þetta verður að koma í ljós.
Setti myndir inn af nýjustu listaverkum krakkanna minna. Þau eru nú dásamlega mismunandi. Þetta er þunnur pappir, sem er hnoðaður í kúlur og límdur á teiknaða mynd. Þau eru rosa spennt að sjá þetta á netinu og ég varð að lofa að drífa í þessu í dag. Það er að segja að fá hana Margréti til að gera þetta, hahaha.
Klukkan að nálgast hálf tíu. Eftir að taka smá til í eldhúsinu og leggja á borðið fyrir morgunmatinn eins og ég geri vanalega. Vakna klukkan 6 á morgun. Margrét er til hálf þrjú í skólanum, svo fer hún til læknis, í píanótíma og ökutíma. Hún er bráðhress og finnst ljómandi að jólin fari að nálgast.
Hafið það sem best. Og góða nótt.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
9 comments:
úff ég er sko ekki búin að öllu!!! Var að panta jólakortamyndir rétt í þessu, á eftir eitthvað af jólagjöfum og finna föt á krakkana + margt fleira. En enn er tími til stefnu, ég ætla ekkert að farast úr stressi strax, mælist til þess að þú reynir að seinka því líka frænka,tihi. kv. Malla
og hvernig væri að skrifa oftar og minna í einu....en sniðugt föndur hjá krökkunum.Á morgun er danssýning hjá dóttur minni. Hún voða spennt. Sé hana nú samt lítið á daginn, alltaf úti að leika við einhverjar vinkonur sem er mikill munur frá því í fyrri vetur. kveðjur úr norró 44 -Arnhildur
búin með 2 próf og 2 eftir er farin að telja niður í jólafrí. Ingó á Akureyri um helgina því miður ég verð að koma krökkunum á Sellu því ég er í prófi á laugardaginn. Á þriðjudaginn er jólasaumó sem er haldinn hér hjá mér og á miðvikudaginn hitti ég loksins hans Ingigerði mína og baka með henni sörur. Svo á eftir að gera mest allt annað en jólin koma hvort sem ég stressa mig eða ekki
Ja það á nú flest eftir að gera hjá mér! Klára jólagjafir, skrifa kortin, ÞRÍFA og baka aðeins...
Nóg að gera í tómstundum, danssýningar ofl. framundan, jólatónleikar oflofl. en kannski á maður að njóta aðventunnar þannig - er það ekki?
Hafið það gott öllsömul!!
p.s. flott að heyra Arnhildur! Bestu kveðjur í Norró :)
búinn að öllu og farinn að bíða.....
Kv. Diddi
Diddi! Þú ert velkominn til okkar, heilmikið að gera sem gæti stytt biðina töluvert!!!! :o)
Svanhildur
Já þú getur líka komið til mín og bakað aðeins Diddi :)
kvitti kvitt... og ég var að blogga :þ
Post a Comment