Saturday, December 19, 2009

Í frosnum heimi.

Allt í einu kom veturinn og munaði þá ekki um það. Í gær var um 6 stiga frost um morguninn og við bara hress með það. Snjór og yndislegt. Rólegur morgunn eftir að Margrét vaknaði um nóttina og var illt í maga. Við ákváðum að hún yrði bara heima enda ekkert gert af viti í skólanum. Horft á myndbönd og álíka. En samt er eftir kennsla í tvo daga. Margrét fær frí klukkan hálf þrjú á þriðjudaginn, og svo tekur við píanótíminn, sem kennarinn vildi ómögulega sleppa. Hún er þá komin í jólafrí klukkan 6 þann 22. Og þá er sem sé eftir Þorláksmessa og svo jólin. Þetta hefur ekki verið venjulegur desembermánuður á nokkurn hátt. Vor fram að síðustu viku, sem var farið að fara verulega í geðið á manni. Ekki beint jólastuð, en svo kom frostið. Loksins.
Við sleppum bara hreingerningum og jólakortum á þessu árinu. Kannski ég komi í verk að skrifa áramótabréf. Hef ekki verið í stuði til að setjast niður og skrifa árssamantekt. Og ekki fundið neinar góðar myndir af dætrunum. En þá hlýtur þetta bara að verða betra næst.

Við komumst í gott skap í gær á jólamarkaðnum í bílaborginni miklu, Autostadt í Wolfsburg. Þar er á svæði verksmiðjanna reglulega sætur jólamarkaður með fáum en fallega skreyttum húsum. Ýmsar vörur og matvæli í anda Skota seld þar. Við fórum í kaffi til Susanne mágkonu, sem á afmæli í dag. En þar sem ég var í dag að vinna fyrir foreldrafélagið frá hálf níu í morgun til hálf sex skruppum við í gær. Það var hrikalega mikil hálka, eða svo hélt ég. Klaus var hinn rólegasti og eftur að ég tók bara dropana mina var ég allt að því afslöppuð:) Allt gekk vel enda óku menn eins og best var á kosið, um 55 km á klukkustund. Okkur var rosalega kalt og héldum ekki lengi út á markaðnum enda ekki vön kulda lengur. En það var reglulega gaman að vera þarna í fyrsta sinn og sjálfsagt ekki síðasta skifti.

Það var sem sagt jólatréssala í dag í útibúi menntaskólans. Við seldum kaffi, kökur, vöfflur, glögg, grillaðar pylsur og kjöt. Seldum 116 tré, og vorum ánægð með það. Klaus ók mér þangað í morgun, 8 km önnur leið. Sem ég ek ekki í hálku :) Við þurftum að ná í kjötið til slátrarans hálf níu, og koma því. Þetta gekk allt vel, og maður hittir slatta af fólki, og getur spjallað smá. Mér var frekar kalt þó að ég væri inni í allan dag. Kaldur gustur inn um dyrnar þegar fólkið kom inn. En himnesk fegurð úti og roðinn á himninum fallegur þegar dróg á kvöldið.

Margrét er að passa stelpurnar og kemur heim eftir miðnætti. Ég horfði á mynd, sem var vel fyndin, og svo ætla ég að bíða eftir Margréti og drepa tímann við hitt og þetta. Hringdi í mömmu og frétti að Affi og fjölskyldu hefði gengið vel heim. Gott að heyra það. Afmæli hjá Arnaldi í dag, og kappinn hress að sögn mömmu. Já, þið öll komin í frí í skólunum,- og böll og fjör. Það er gott að heyra hressilegt hljóðið i ykkur og vonandi verður það áfram. Jólaþorpið komið upp í Litluhlíð og mamma búin að baka.
Þetta bara allt að koma hjá ykkur.
Við ætlum að kaupa okkur tré á morgun, og kannski baka eitthvað. Þvo og strauja og sitt lítið af hverju. Ekki verður nú farið meira í kaupstað, enda ekki tími til,-bærinn stútfullur, og svo er ég ekki spennt fyrir akstri í frosti. En sem áður segir fáum við Margrét ekki frí fyrr en svo seint og það er frekar ergilegt. En í staðinn er ekki byrjað aftur fyrr en eftir þrettándann. Hvenær ætli Íslendingar taki það aftur upp?
Jæja, best að hætta þessu rausi og fá sér kakó. Ástarkveðjur til Arnaldar og foreldranna. Sem líklega eru á kafi í undirbúningnum. Óska ykkur öllum yndælla stunda á fjórða í aðventu og njótið þess að vera í fríi. Og hver veit-kannski þið fáið næst snjó!

8 comments:

Anonymous said...

Takk fyrir afmæliskveðjuna! Hér var nú afmælisdagurinn bara rólegur en afmælisbarnið alsælt og strax búinn að ná því að nú sé hann ekki lengur "einþ" heldur tveggja. Við erum að hugsa um að sækja um smá frest á jólum þetta árið!!!! Nei ég segi svona, þau koma þó að maður sé ekki búin með það sem maður ætlaði.

Hafið það gott og klæðið ykkur vel. Bestu kveðjur, Svanhildur

Malla said...

Ég var í allan gærdag að fara í gegnum föt strákanna, púff! EÖ komin með nýja kommóðu, og ég var að draga upp restina af Þýskalandsfötunum, gott að ég var smá kaupóð þá því nú kostar allt handlegg og fót hér heima!!!!! Hafið það gott í frostinu, kv. Malla og co

Anonymous said...

Eru engin almennileg og stór tré þarna í Þýskalandi sem þið getið náð ykkur í? Laufabrauðsgerð á eftir og smá rugl milli okkar hjóna með tímasetninguna. Athöfnin hefst kl. 14 en Sigyn er víst að vinna til 17. Það gerir ekkert til, hún hefði sennilega ekki gert mikið gagn hvort sem er. En hún nýtist kannski við steikinguna.
Engin kort í ár. Það þýðir bara eitt, skæp og risaáramótabréf.
Bestukv. Diddi

Kristín E. said...

kvitti kvitt :o) ætla að halda áfram að sauma síðustu jólagjöfina :þ

Anonymous said...

þið eruð aðeins betur sett en við því hér er kennt á þorláksmessu líka!!! Þeir eru nú ekkert alveg í lagi blessaðir en það skilar litlu að kvarta ;-) Annars bara allt fullt af snjó og jólastemmingin í samræmi við það... Hafið það sem allra best um jólin já og þú mátt senda mér adressuna ykkar Áslaug.
Bestu kveðjur, Aldís Björns

Kristín E. said...

Diddi mætti hér áðan með sendinguna frá þér, ég ætlaði að renna við hjá þeim í dag en komst ekki.
TakkTakk kærlega fyrir, peysan á Margréti er ekki of lítið, ekkert smá sæt :o) og stóru systkinin voru afskaplega sæl með sokkana og límmiðana :o)
Sé til hvort ég læt systur mínar fá eitthvað af súkkulaðinu hehee Siggi var að spá í að éta það allt strax :þ
TakkTakk aftur :D

Malla said...

Hei hei ekkert svona SIGGI!!!! ég má vera memm.....

Anonymous said...

Snjór og meiri snjór hér, og mjög jólalegt um að litast. Ekki gert mikið annað en liggja í leti og borða. Erum á leið til m og p með afganginn af svíninu og ætlum að borða hann, ásamt köldu hangikjöti frá í gærkvöldi. Sibbi og Hafdís í heimsókn, annars lítið ferðaveður og ekki einu sinni farið í messuna í minjasafnskirkjunni því færið er svo slæmt. Sendi þér bréf og segi frá öllu jóladótinu - þangað til , bestu jólakveðjur, þín sys affíp