Tuesday, October 6, 2009

Haustfrí.

Mikið er æðislegt að vera í haustfríi. Ég, sem er eiginlega á móti þessum litlu fríum í stað lengra sumarfrís. En það er verulega gott að fá svona hlé inn á milli. Margrét hleður batteríin eftir strembnar vikur. Og við höfum verið að dunda við tiltekt og annað, sem koma þarf frá í mestu rólegheitum. Hún þarf að vinna verkefni fyrir skólann. Svo er það ökuskólinn. Hún er búin að fara í 8 skifti af 14 í bóklegu fyrirlestrana. Allt að koma.
Klaus með fyrirlestur í dag. Verið að sækja um fjárstyrk vegna mælingatækja, en eitthvað gekk það brösótt. Hann fer svo í vinnu á morgun og þá tekur við fríið, og hinn "yfirmaðurinn" hans, hahaha.

Ég er búin að fara í gegn um skattholið, og fullt af bæklingum. Slá garðinn og raka næstum allt. Rigningin kom í verk fyrir að ég gæti klárað. Laga til á háaloftinu. Þvo fullt af þvotti. Og í dag tókum við herbergi Margrétar í gegn. Þetta líkist kannski ekki fríi, en það er mikill munur að vera útsofinn og ekki undir neinu álagi. Mér finnst ekki leiðinlegt að vinna alls konar húsverk, en vil gjarnan gera þau þegar mér dettur það í hug, hehe.
Veðrið ekki spes. Frekar svalt, og sólarlítið. Smá úrkoma annað slagið. En spáin góð.

Við bíðum spennt eftir að fá fréttir af nýju íbúð Arnhildar. Mér skilst að þær mæðgur hafi verið þreyttar eftir flutningana. Þetta er nú ekki neitt lítið verk eins og allir vita sem flutt hafa. Við vonum að þær verði ánægðar í nýja húsinu og ekki spillir að hafa Lillu við hliðina á sér. Hún bauð náttúrlega öllum í vöfflur á flutningadeginum. Alltaf jafn yndisleg.

Við ætluðum að vera duglegar og setja nýjan svamp og efni á gömlu borðstofustólana hans Klaus úr fyrstu íbúðinni hans. En takkarinn gefst bara upp eða spýtir tveimur í einu. Vona að ég geti fengið lánaðan takkara sem fyrst. Eða bara keypt mér einn ef þeir eru ekki svo rosalega dýrir.

Við Margrét sofum lengur. Fáum okkur morgunmat yfir fyrstu þáttaröðinni af Greys A., og henni þykir ekki neitt leiðinlegt að horfa á þetta aftur :) Mér finnst þeir mættu sleppa öllum blóðugu atriðunum. Ég er með lokuð augun örugglega einn fjórða af tímanum, hehehe. Ekki í sömu deild og frænkur mínar, Steinahlíðarskvísur. Margrét er mjög brött að horfa á þetta og vonandi herðir það hana upp í sambandi við svona blóðógeð og sjúkrahúsógeð, oj bara. Hvernig er hægt að finnast þetta spennandi og geta yfirhöfuð unnið við svona störf. Það eru ofurmenneskjur, sem geta það. Og eiga alla mína aðdáun skilið!!!!!!

Það er bara skrifað um snjó og aftur snjó hjá öllum á Trýnu. Veturinn ætlar að koma snemma til ykkar. Hef nú ekki heyrt neina spá um okkar vetur, og vona bara að hann verði annað hvort mildur eða þá alvöru vetur. Ekki svona um frostmark og hálka hvern morgun.

Jæja. Ekkert að frétta, og best að hætta þessu rausi. Hafið það gott. Nú er Arnhildur ekki með myndavél lengur og vonandi fer Aldís Dagmar og tekur slatta af myndum fyrir okkur og setur á netið. Það væri nú fallega gert. Hjartans kveðjur frá meginlandinu.

4 comments:

Kristín E. said...

kvitti kvitt :o) fylgist með eins og alltaf :o)
Var að setja fullt af myndum inn á www.nino.is/tviburakrilin og svo nokkrar af þeim inn á Facebook, alls ekki allar þar :þ
Bið að heilsa

Þorgerður said...

Kvitt hér líka - á eftir að athuga þetta með lyfin hennar Margrétar, sendi nótu bráðlega!
Já hér er okkur hálf kalt í dag, mikill spenningur fyrir 6 ára afmælisveislunni á morgun, fær 10 stráka í kaffi til sín en hef fjölskylduafmælið seinna fyrir hann og Hildi 18 ára skvísu.
Hafið það gott!

Anonymous said...

Ligg heima í kvefi, hausverk og hósta. veit ekki hvort þetta er svínaflensa eða hvað, ætla að fara á heilsugæsluna á eftir. var líka lasinn síðustu viku, var frá kennslu tvo daga þá, og þurfti að fara heim í gær um hádegi. Ferlega fúlt þar sem þetta þýðir bara að öll vinna safnast saman svo næsta vika verður ekki mjög skemmtileg, og svo hef ég ekki getað farið á Bjarg að gera æfingar í tæpar tvær vikur. Já, svona er þetta, aldís er líka búin að vera þræl kvefuð, með beinverki og magaverki, en látið sig hafa að fara í skólann þessi elska. Já vonandi fer þetta að lagast. Kv til allra,
Affí

Kristín E. said...

Sástu uppskriftina að súkkulaðikökunni sem ég setti inn á Facebook???