Þá er mánudagurinn að verða liðinn. Tíminn flýgur og flýgur. Við höfum það bara gott í rólegheitunum. Var að dunda við að ryksuga rauða bílinn á fö. í sól, en svölum vindi. Varð frekar kalt þó að ég hamaðist. En er þó ekki komin með kvef. Klaus aðstoðaði Margréti við ritgerð. Hann hefur verið að ganga frá í vinnuherberginu og vinna við alls konar verkefni á tölvunni.
Við Margrét bökuðum pönnukökur á laugardagsmorguninn og ég pakkaði þeim kirfilega inn í plast. Svo var ekið til BS í heimsókn til Danielu, sem fékk nýja íbúð. Hún er mun stærri en sú gamla og bara ljómandi góð. Daniela er búin að vera lasin og gat ekki klárað allt. Eftir að kaupa fleiri hillur og setja myndir á veggi. En þetta er rúmgott og hún er hæstánægð.
Susanne kom líka. Við fengum lánaðan takkarann hjá þeim. Í gær gengum við loks frá fyrsta stólnum af þremur. Hann er bara rosa fínn--svona meðan ekki er kíkt undir hann, híhí. Við vorum meira að spá í endingu en fallegan frágang. Takkarinn er frá Bosch og miklu betri en okkar, en samt með þrjósku. Oft kom ekkert skot og þetta er frekar pirrandi. Kannski næsti stóll verði svo tekinn fyrir á morgun eða hinn.
Í dag fórum við mæðgur til BS í innkaupaleiðangur. Vantaði alls konar hluti eins og ryksugupoka, písk, sérstakt sprey á nýju leðurstígvel Margrétar og penna til að skrifa á DVD. Sem sé smotterí, sem kostar þó sitt. Keyptum fjórar jólagjafir og skoðuðum margt.
Veðrið var ekkert spes, en við fengum ekki rigningu nema í byrjun. Það er jú komið haust.
Margrét er núna í ökuskólanum. Klaus var voða duglegur og fór í langan göngutúr á meðan við vorum í burtu. Já, svona er lífið hérna og ekkert sérstakt að frétta.
Við vonum að þið hafið það öll gott. Kærar kveðjur frá Meinersen.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
6 comments:
Gott að heyra að allt er í sóma hjá ykkur. Þokkalegt hérna líka. Fer í vinnutörn í Gunnarsholt á morgun og fram á fimmtudag. Búðin verður síðan opnuð á fimmtudagsmorgun. Þannig að það er eins og stundum nóg að gera. En við komum okkur í gegnum þetta er ég viss um. Hafið það gott þarna úti. Bestu kveðjur að sinni. Diddi
Hitinn kominn í 14 gráður úti, það eru semsé talsverðar sviftingar í veðrinu um þessar mundir hehe. Er aðeins að hressast af flensunni, farin að vinna aftur. Kv affí
sól og 10-12 stiga hiti í dag og frábært veður. ég er þreytt eftir prófið en er að fara norður um helgina og það verður gaman að sjá þau gömlu
Hitinn kominn í 37 gráður- hjá aldísi og valdemar, mætti alveg vera 37 gráður úti, hér er svona ,,ekkert" veður,hvorki vetur né sumar. en þá hugsar maður bara eins og pollianna, ummmm indælt að ekki sé allt gallfreðið og ófært, eða; ummmmmm indælt að það er ekki sami fj. hitinn hér og í afríku með tilheyrandi vatnsleysi og ónotum !! Já- er ekki tilveran dásamleg !
kv affí
Set þetta líka hér - Elsku frænka innilega til hamingju með daginn. Kv. Malla
Sendum þér afmæliskveðjur, vonum að þú hafir það gott í dag! :)
Við Ástþór Örn erum heima í dag, hann með hitavellu...þó ekki svínaflensu höldum við nú, enda hætta umgangspestarnar víst ekkert að hringsóla þó að hitt sé að ganga!
Bestu kveðjur, Svanhildur og Ástþór Örn
Post a Comment