Allir eitthvað þreyttir í dag. Hitinn rosalegur og eins gott að vera ekki of mikið í sólinni þegar hún er sterkust. Svo "litla" liðið er bara í tölvu og sjónvarpinu. Klaus tók á sig rögg og ók til Gifhorn. Ég sendi systur með honum, og þær ætla í Real að kaupa í matinn á meðan hann leitar að nýjum sturtuhaus og festingu. Svo og flugnaneti fyrir baðið.
Við fengum Kristínu Draheim í heimsókn í morgun. Það var svo notalegt að hitta hana. Hún er svo æðisleg og yndisleg. Vildi óska að hún væri ekki svona langt í burtu. Hún vinnur og lærir við háskólann í Frankfurt við Oder, sem er við pólsku landamærin. Býr á Póllandi, og hjólar á milli. Hún fer nú að klára þetta, og flytur þá etv. vill til Berlínar, sem væri frábært. Á þar nýjan vin, sem heitir Peter.
Hún er hér í stuttri heimsókn, þar sem afi hennar er á sjúkrahúsi. Hann var skorinn upp í gær. Búinn að vera lasinn og tekinn úr honum maginn í fyrra, krabbi, og svo sitt hvað til viðbótar. Kristín fer í fríinu til Rússlands í ágúst, og stefnir svo á Ísland næsta ár. Kannski með Peter :)
Systur elduðu svo pasta, og við fengum okkur ís á eftir. Vinsælt í hitanum.
Takk fyrir kveðjurnar til Klaus. Hann fékk risa jarðarberjaköku á afmælinu. Bakað af systrunum hressu! Og ekki neitt bland af osti og jarðarberjum, ó nei. Bara hreinn botn og búðingur, ber og hlaup.
Hann fékk lyklakippu frá "litlu" stelpunum með nafninu sínu á, stutt náttföt frá okkur hinum, stuttbuxur og stutterma skyrtu. Og disk með Chopin, spilað af kínverskum píanista.
Svo gaf Frau Kühle honum köku með rifsberjum, bæði rauðum og hvítum, sem ég hef ekki séð áður.
Við fórum síðan í góðan göngutúr, en annars var ekki mikið gert því Margrét þurfti tvisvar til Gifhorn. Ég fór með hana um morguninn, og hún var í einn og hálfan tíma hjá tannlækninum, og er nú laus við spangirnar!!!!!! Lausi gómurinn er enn svolítið pirrandi, en þetta venst og gott að geta bitið í epli og hart brauð!
Á meðan fór ég á markaðinn. Gleymdi "hækjunni" minni, fína vagninum á hjólum, og þar sem ég ætla ekki að fara aftur í uppskurð, fór ég þrisvar að versla á útimarkaðnum og bar allt í smá skömmtum í bílinn. Er ég ekki dugleg! Fyrst 6 bakkar af jarðarberjum, (10 evrur--vildi að þið hefðuð verið hér til að borða þau með okkur ) svo hnúðkál og egg, og loks brauð.
Arnhildur fór svo með henni seinni partinn. Þá var lausi gómurinn tilbúinn.
Í gær var svo maraþon dagur. Farið á tveimur bílum að lestarstöðinni í Dedenhausen, þar sem okkur vantar eitt sæti í bílnum undir gestina. Lestin tekin til Hannover, og farið áfram í strætó í dýragarðinn. Hann er bara algjört æði, og alltaf verið að bæta við tækjum. Nú er komin rennibraut með stórum dekkjum, sem var óspart notuð. Veit ekki hversu margar ferðirnar voru hjá þeim litlu. Þær stóru fóru líka og skullu á dýnuvegginn við mikinn hlátur! Ég settist oft niður og þetta gekk vel, en var orðin frekar þreytt í lokin. Hélt þá bara undir magann! Vorum í garðinum frá 11.30 til svona um hálf fimm,fimm, og það í 30 stiga hita. Arnhildur fækkaði fötum og var bara á bikinitoppnum, og Margrét í styttstu stuttbuxunum :) Klaus að sjálfsögðu í síðbuxum, sokkum og lokuðum skóm. Svona er það að eiga íhaldsama foreldra, en hann um það ef hann ekki getur verið öðruvísi en þau.
Þar sem miðarnir kostuðu 99 fyrir 3 börn og 3 fullorðna fengu börnin engan ís fyrr en við vorum komin á lestarstöðina. Fer nú ekki að borga upp að 2.80 fyrir einhverja pinnaísa ef við fáum tvær kúlur fyrir 1.60--hehehe.
Dásamlegt að eiga jarðarberjaköku í ískápnum er heim var komið, og nóg var eftir af jarðarberjum handa stelpunum fjórum. Allir dasaðir, og ekki einu sinni gengið frá úr töskunni :)
Ég skrapp samt til Frau Kühle, sem var að fá son og barnabarn, Niklas, í 3 vikur, og lánaði henni litla hjólið hennar Margrétar. Þau tvö komu svo við í hádeginu eftir langan hjóltúr. Sveitt og rauð af hita :)
Á morgun verður svo grillað fyrir Klaus, og ég verð víst að vaka aftur snemma. Fór á fætur klukkan 8 í morgun og braut saman þvott, og tók til. Á fætur með Margréti klukkan 7 í fyrradag, --er maður í fríi eða hvað :)
Heill hellingur af myndum. Margrét sér um að birta þær sem fyrst. Bestu kveðjur úr hitanum.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
6 comments:
Blíðuveðurskveðjur frá Álftavatni. Hér var yfir 20 stig í sólarleysi um miðjan dag, en sólinn lét samt sjá sig alltaf af og til. Logn og blíða. Eiríkur með 5 vini í heimsókn, líf og fjör (nema núna þegar þeir eru ekki vaknaðir, enda klukkan aðeins hálfellefu). Sigyn skrapp á fund í bæinn svo við karlarnir getum tekið það rólega á meðan. Skýjað en blíða núna og ætli maður reyni ekki að koma sér út í einhvern göngutúr fljótlega. Farið vel með ykkur í sólinni.
BK Diddi
erum komin norður hér er blíða og gott veður en engin sól. Ingó er að spila á ´80 balli í kvöld og er að græja dressið og ég er hugsa um að láta setja vöflur í hárið á mér og vera svaka fín.
Dýragarðurinn er sko algjört æði, tek undir það. Ekki keypti ég neitt þar í fyrra,ís né annað, heldur var borðað upp úr kælitöskunni og ekki einu sinni gaurarnir báðu um ís ;) Þekkja mömmu sína greinilega vel, tihi.
HæHæ... kvitti kvitt :o)
úffff.... 99 evrur hljómar kannski slatti en þegar þú reiknar yfir í krónur þá eru þetta heilar 17.600 kall!!! Svona er Ísland í dag :þ
Fyrir ca 2 árum hefði þetta verið ca 7-8 þúsund :S
Var að koma úr ferð um Mývatnsöræfi, fórum á svæðið norðan við Búrfell, Rauðuborgir og Kræðuborgir, algerlega geggjað landslag, löbbuðum langar leiðir, upp á olíufjall ofl, fórum svo í Mörðudal og var vísað á ,, leynistaði" þeirra heimamanna, s.s.frábært gil sem við gengum, eða réttara sagt óðum, með stuðlabergi, fossum og lækjum, og fórum líka á Hólsfjöll og alla leið í Viðihól, en engin heima í bústöðunum. Frábær ferð og mjög gott að sofa í bílnum, guðdómlegt að losna við að tjalda, erum með góðar dínur og rúmföt, og getum stoppað og sofið þar sem okkur dettur í hug.
kv affí
Post a Comment