Þriðjudagsmorgunn, og liðið sefur klukkan að verða 9. Klaus farinn í vinnuna og ég að bíða eftir að geta borðað morgunmat. Leiðindapillur, sem taka þarf klukkutíma á undan :) Þeim mæðgum gekk illa að sofna í gær, og verða örugglega ekki fljótar á fætur. Það er svo mikill hiti í húsinu. T.d. var 17 stig úti í gærmorgun en 24 stig í eldhúsinu. Það er bara líft ef einhver vindur er úti og hægt að lofta í gegn.
Á laugardaginn komu Daniela, Gregor og Susanne í grill í hádeginu. Við stækkuðum stofuborðið, og Arnhildur var búin að ryksuga. En annars var ekki mikið gert af fínpússningum :) Þau færðu Klaus víkingaspilið, sem við keyptum í fyrra, en höfum aldrei spilað. Stelpurnar ætla að kenna okkur það. Kannski getum við bara selt okkar gamla. Svo fékk hann púða með kúlum í sem laga sig að líkamanum. Vinsæll púði á sófanum híhí. Góð frétt er að Ramona er að skilja við þennan vonlausa vin sinn, og stefnir á að koma aftur norður á bóginn. Vonandi rennur hún ekki á rassinn með þetta.
Dætur mínar keyptu svo típíska köku, sykurköku, til að hafa með kaffinu. Við komumst ekki yfir bakstur og okkur var líka of heitt!
Þær skruppu svo á videóleyguna og horfðu á mynd um kvöldið. Fóru á hjólum og hlaupahjóli. Arnhildur skokkar og skokkar, nema eitthvað komi sérstaklega i veg fyrir það eins og rigningin í gærkvöldi.
Klaus tók sig svo til og setti festingar á glugann í herbergi okkar, og við gátum komið stóru grindinni með flugnanetinu utan við gluggann. Hann minkaði það tölvert, og þetta var mesta basl. Gluggar opnast hér inn, og grindin var fyrst innan við, sem þýddi að taka þurfti hana úr í hvert sinn sem glugganum var lokað. Ég er alsæl! Nú er bara eftir að útbúa grind fyrir baðgluggann.
Svo er hann búinn að setja upp nýju stöngina fyrir sturtuhausinn og nú er fínasta sturta í lélegum klefa, sniff, sniff. En sennilega ekki peningar til fyrir nýjum klefa næstu árin :)
Í gær var farið til Gifhorn með Margréti til tannlæknis. Neðri gómurinn pirraði hana. Við kíktum í bæinn. Ég keypti kínverskar núðlur til að elda þegar ekki er tími til að gera alvöru máltíðar. Og brauð og endað var í búð, sem selur sænska marengetertu, sem samanstendur úr sykri og rjóma!!!
Arnhildur keypti sér 3 toppa fyrir hitann, og Guðný fann gollu og Kristín buxur og bol.
Enginn ís-amma gamla að spara því við stefnum á Amsterdam sem fyrst!
Erum að kanna verð á lestinni og hótelum og verðum að fara að slá þessu á fast. Tíminn flýgur og áður en maður veit er fríið búið. 6 vikur eru ekki langur tími.
Það er sennilega ekki svo spennandi fyrir þær Guðnýju og KD að vera þarna en við hinar ættum að geta farið í ótal söfn og skoðunarferðir. Hvernig gengur með þær litlu án tölvu og sjónvarps verður að koma í ljós :):):)
Ef einhver hefur tillögur um dagskrá í Amsterdam eru þær vel þegnar. Eins um gistingu.
Jæja. Vona að Margrét nenni að setja myndir inn í dag. Hún var lengi í gær í Singstar með Guðnýju og úti í badminton, og sitt hvað fleira í gangi.
Í dag er svo meiningin að baka og gera eitthvað, sem endilega þarf að koma í verk hér heima.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
4 comments:
Guðný á pottþétt eftir að skemmta sér vel í Amsterdam hún er ekki svo kröfuhörð blessunin. Eins og ég sagði við þig mæli ég með siglingu um Amsterdam. Er ekki búin að skoða gistingu enn en skal skoða hvort ég sé eitthvað
Hljómar vel að skella sér til Amsterdam ;) Þær hafa gott af því að verða tölvu og sjónvarpslausar þessar elskur. Pabbi er að koma í kvöld frá Ak, fékk far með Marinó vini okkar. Hann ætlar að hjálpa Össa að mála húsið, fer svo norður aftur á þriðjudag með Kristínu.
Aðeins að líta við... halda mér vakandi aðeins lengur :þ
Góða ferð til Amsterdam
Þið verðið að fara á ströndina, þar eru almennilegar öldur og frábært að vera. Hér er búið að vera sól en ekki eins heitt og undanfarið, en það er alltaf heitt á pallinum okkar he he. Aldís og Bósi eru farin á Neskaupstað í útilegu, útihátið á svæðinu. Hringdi áðan og voru þá komin nærri alla leið, mér til mikillar gleði.
Post a Comment