Friday, July 10, 2009

Hann rignir og blæs.

Föstudagur, og vikan ekki sérlega hlý að þessu sinni. Búið að rigna af og il. Við settum þvottinn tvisvar út, en svo gafst ég upp á þessu og KD hljóp út með mér að ná í þvottinn. Dæturnar farnar með kort og bréf í póst og að ná í einhverjar nauðsynjar. Allir frekar latir í dag eftir mega stuð í sundinu í gær. þær voru vel þreyttar eftir 3 og hálfan tíma í öldusundlauginni, og voða hamingjusamar.
Ég straujaði í hálfan annan tíma, sem vakti miklar umræður á facebook, eða þannig:) Og svo settist ég með vínarbrauð frá Íslandi--beint úr frystinum ( Takk Þórdís!)--og horfði á sápuna mína. Ekki slæmt það. Svo var eldað hænsnakjöt með skinku inní, og hrísgrjóna með. Þeim stuttu þótti það nú ekki svo spes, en létu sig hafa það.
Fór seint á fætur í morgun. Las í bælinu og langar að þýða bókina yfir á Íslensku, en veit ekki hvernig maður fer að þvi að komast í samband við forlög??? Þetta eru unglingakrimmar. Kannast nokkur við rifhöfundinn Monika Feth?
Svo var bara hænsnafrikasse úr frysti--frá Aldi--en allavega með fersku hrásalati, sem Guðný lagði nú ekki í að prófa :) Þær eru í Sims, sem Kristín elskar út af lífinu.
Klaus fer svo að koma heim í afganginn af eplakökunni, og fríið getur þá byrjað.
Guðný er loks búin að velja sér "plan" fyrir afmælisdaginn. Hún vill gjarnan fara til Hannover, kíkja í búðir ,og borða á Pizza Hut. Og morguninn á að byrja á pönnukökuáti, sem ég sé náttúrlega um!
Klaus langar í Sealife eða Seaworld eða hvað það heitir. Kannski við fórum í það líka og sendum hann svo bara heim með nokkrum lestum á undan:):):)
Gleymdi deigi í ísskápnum, sem geyma á yfir nótt. Það er núna búið að vera þarna í 3 daga, og ég veit ekki hvort það sé óhætt að baka úr því. Þetta er deig með hafragrjónum, natroni, sykri og hveiti. -- Sem sé í hafrakex.- Hvað haldið þið um geymslu á slíku??????
Malla frábær að hesthúsa ísinn úr því hann var ókeypis. Já, góð kreppuaðferð!
Jæja. Best að kíkja á sápuna mína, sem heldur manni gangandi í þessum lífsins ólgusjó :)

1 comment:

Thordisa said...

Frábærar myndir af ykkur og það er greinilega gaman hjá ykkur