Tuesday, July 21, 2009

Meiri uppskriftir.

Appelpie.

375 gr hveiti, 75 gr og svo 3 msk sykur, salt, 250 gr kalt smjör, 1 kg frekar súr epli, 2 msk sítrónusafi, 1 vel full msk af kartöflumjöli, ca hálf tsk kanill, eggjarauða. Og ískalt vatn.

Blanda saman hveiti, 75 gr sykur, smá salti., bæta útí smjörinu í bitum og 4-5 msk ískalt vatn sett útí. Hræra fyrst með hnoðaranum á þeytaranum, og svo með höndunum.Vefja í plast og hvíla í kulda í 30 mín.
Flysja og skera eplin í litla bita., Hella sítrónusafanum yfir og svo blanda þetta með 3 msk sykri og kartöflumjöli og kanil.
Smyrja PÆ-form , ca 26 cm í þvermál, 2/3 af deiginu rúllað út með kefli og nota sem minnst hveiti til að bera á borðið, deigið á að vera ca 32 - 34 cm í þvermál. Deigið sett í forminn og það sem stendur út af er skorið í burtu, hnoðað saman og sett sér hjá hinu. (alltaf að geyma restina af deiginu í ísskápnum á milli ),
Eplunum dreyft yfir botninn.
Rúlla nú út einn þriðja af deiginu og gera lok úr því. Ca 26 cm , þrýsta röndunum vel saman.
Rúlla út afganginn af deiginu og stinga út blöð og blóm til skreytingar. Þeyta saman eggjarauðu og 2 msk vatn, og bera á skreyttu tertuna. Sett í heitan ofn, 175 gráður við blástur, og baka í 1 klukkustund.

Hjá okkur voru eplin rosa blaut á botninum, en smökkuðust samt vel.


CANNELLONI MEÐ LAXFYLLINGU.

500 gr lax, án roðs, 2 stórir tómatar, 1 lítill laukur, 1 tsk olívuolía, salt, pipar, 2 msk smjör, 30 gr hveiti, 3/8 L mjólk, (ég meina það-þessir Þjóðverjar!) 1 tsk instant soð, (við settum nú bara óuppleystan grænmetistening, ca 1 tsk ) ca 1 msk sítrónusafi, 250 gr sýrður rjómi, (Schmand ), dill-ferskt eða frosið--settum eftir smekk, talað um eitt búnt. 14 - 16 Cannelloni rör, 125 gr Mozzarella ostur. (við settum svo helling af venjulegum osti þar til viðbótar)

Við notuðum frosinn lax, hann á að vera smá frosinn þegar hann er unninn.( Ferskur er frystur í 30 mín.-)- Skera hann í bita,
saxa tómata og lauk og malla í olíunni í allavega 5 mín. Krydda með salti og pipar.

Gera Bécamelsósu.- Bræða smjörið í potti, strá hveitinu yfir og láta taka smá lit, þá 1/8 L vatn og mjólkin helt úti og látið sjóða upp. Malla ca 5 mín. Krydda með ten., salti og pipar. Svo og sítrónusafa.

Laxinn, sýrði rjóminn og ískalt vatn,-1-2 msk, sett í mixer og mallað í mjúkan massa. Setja dill útí. 1/2 tsk af salti og pipar úti, má vera vel kryddað að okkar mati.

Setja nú hluta af sósunni í eldfast fat. Fylla sprautupoka með massanum og fylla rörin. Leggja rörin hlið við hlið, og enda á afgangnum af sósunni. Þá skera Mozzarella ostinn í sneiðar- setja etv. meiri ost, tómatarnir þá yfir og dill ofan á þá.--- Baka þetta í 40-45 mín.
Rosa gott að vera með hvítlauksbrauð með. T.d. nýju fínu litlu rúndstykkin frá Hatting-fyllt með hvítlaukssmjöri. Veit ekki hvort þau eru komin til Íslands.

Gangi ykkur nú vel og verði ykkur að góðu.

2 comments:

Anonymous said...

ÆÐI ÆÐI ÆÐI. Nú er bara að fara og kaupa inn og byrja að drulla í form!!
Kv affí

Anonymous said...

Hljómar allt rosalega vel, það verða notaðar uppskriftir frá þér hérna suðurfrá um næstu helgi...
Takk, takk...
Aldís