Tuesday, July 21, 2009

Uppskrifir.

JARÐARBERJA -OSTAKAKA.

75 gr smjör, 150 gr kex, 4 egg, 200 og svo 25 gr sykur, vanilludropar, 125 gr rjómi (já, þjóðverjar gefa þetta upp í grömmum!), 40 gr kartöflumjöl, 800 gr rjómaostur, 750 gr jarðarber, 1 pk af hlaupi á tertur,
Smyrja botn á "springformi", sem sé með lausum botni og háum börmum, bræða smjörið og láta kólna smá, mylja kexin (í poka með kökukefli) blanda saman mylsnunni og smjörinu.

Setja mylsnuna á botninn á forminum og þrýsta niður með t.d. skeið. Setja í kulda í ca 30 mín.

Hita ofninn í 175 gráður með blæstri,
þeyta egg, 200gr sykur og vanilludropa, hræra saman kartöflumjöl og rjómann, og hræra svo rjómaostinn saman við. Smá mál að fá þetta allt slétt og fellt :) ,
Massinn settur á botninn og bakað í ca klukkustund og korter.
Kæla.
Þvo og skera berin, leggja þau sem þak á botninn, og leysa upp hlaupið samkvæmt leiðbeiningum á pakka, og hella straks yfir.

JARÐARBERJA-BÚÐINGSTERTA.

175 gr mjúkt smjör, 150 og svo 125 gr sykur, 1 pk vanillusykur eða bara dropar, smá salt, 4 egg, 200 gr hveiti, 50 gr kartöflumjöl, rúmlega 2 tsk af lyftidufti, 1 líter af mjólk, ca 2 kíló af jarðarberjum, 250 gr rjómi, 3 pk af vanillubúðingsdufti, 3 pk af rauðu köku-hlaupi,.

Smyrja ofnskúffu að innan, dreifa smá hveiti yfir og hella af sem ekki festist við. Hita ofninn í 175 gráður, blástur.
Þeyta smjör, 150 gr sykur, smá salt , þeyta svo eggin, eitt í einu, blanda hveiti, kartöflumjöli og lyftidufti saman við. (sigta fyrst)
Setja deigið í skúffuna, (stærð 32 x 39) baka i 20 mín. Kæla.
Þvo og skera berin. (hafa þau sem mest heil )
Mjólkin soðin upp, hræra saman rjómann, búðingsduftið og 125 gr sykur. Hella úti sjóðandi mjólkina og láta sjóða í 1 mín.
Setja búðinginn straks á botninn. Berin sett ofan á, og topparnir snúa upp. Þrýsta smá ofan í búðinginn. Kæla í ca korter. Gera hlaup og setja straks yfir. Þegar kakan er vel köld er hún borðuð með þeyttum rjóma.

2 comments:

Anonymous said...

Jæja, búið að prenta út allar uppskriftirnar.Þá er bara að byrja að kaupa inn og baka-umm! ´Hér var bara gott veður í dag, ekki mikil sól en hlýtt og gott. Svo á að fara að kólna verulega, spáð niður í 6 stiga hita-ekki mjög spennandi. Ætluðum að fara í smá helgarferðalag, en nennum því nú ekki ef veðrið verður ekki betra. Annars allir hressir. Kv affí

Malla said...

Hlakka til að prófa þessa þegar ég verð komin suður í næstu viku ;)