Mánudagur og engin bönd héldu mínum dætrum frá því að komast í bíó og sjá Harry Pottorm á ensku í Hannover. Auðvitað þurftu Guðný og KD með, hvort sem þær skilja nú eitthvað án texta og kannski í lélegum sal. Það er ekki gert hátt undir höfði hjá þeim, sem vilji fara á myndir á frummálunum. Allavega fór ég með þær til Dedenhausen á stöðina og ók svo heim. Þurfti í brjóstakrabbameins skoðun, og vildi ekki sleppa tímanum. Nokkur bið, og ég verslaði í Rewe á meðan, þar sem bíllinn, sem skoðunin fer fram í, stendur þar í nokkrar vikur. Svo fæ ég bréf eftir 7-10 daga. Kæmi það nokkuð á óvart þó ég þyrfti aftur í uppskurð eftir uppskurð um vorið, - eins og var 2007, --svona til að ég komist ekki úr æfingu :) Nei, við skulum bara vera bjartsýn.
Spáð rigningu, en fram að þessu bara nokkrir dropar. Nóg til þess að ég sendi þær með regnstakka, og í hlýrri fötum en bara mínipilsum. Þær bölva mér sennilega fyrir þetta og eru að deyja úr hita :):):)
Ég keypti 3 bakka af jarðarberjum. Þau fara nú að hætta að koma á markaðinn. Svo maður verður að borða þau meðan þau gefast ný. Og melóna fylgdi með í kjölfarið í kerruna. Íste á tilboði, og ég bar þetta inn í 7 ferðum. Er svo dugleg að gera ekki meira en ég má.
Pantaði tíma í grindarhols-æfingum í morgun. Fæ fyrsta tímann 6.8. Og svo pantaði ég tíma hjá kvennsjúkdómalækninum mínum fyrir Margréti út af þessu blæðingaveseni. Sjá til hvað hann vill gera. Það er óþolandi að hún missi einn dag úr skóla í hverjum mánuði og sé alveg búin að vera.
Klaus fór í vinnuna í morgun. Við fórum í göngutúr milli skúra í gær. það rigndi hressilega og oft. Við sátum samt úti öll um stund og stelpurnar fóru í boccia. Svo voru systur að skoða Amsterdam, og prenta út kort. Leita að stöðum, sem taldir eru upp á ljósriti, sem Annett sendi okkur og henni sé þökk fyrir! Okkur virðist oft vera ókeypis fyrir þær stuttu á söfnin, og við sjáum svo bara til hversu langar biðraðirnar eru. Eftir er að leita að leikvöllum, sem séu spennandi fyrir svona stórar stelpur. Í Danmörk eru t.d. oft geðveikir leikvellir. Og þær endast nú ekki i marga tíma á söfnum.
Á laugardaginn bjuggu þær systur til flottan nýjan rétt. Við erum alltaf að prófa. Það er lax í canneloni-pastarúllum. Laxinn er maukaður og sýrður rjómi settur saman við, búin til sósa með sítrónu útí. Rúllurnar í form , sósa ofan á og undir og ostur kórónar allt saman. Lukkaðist svona vel. Kristínu þótti þetta ok, en Guðný vildi nú ekki smakka. Þar sem Þórdís borðar ekki lax--eða er það ekki ?--þóttist ég vita að Guðný vildi hann ekki. Og við hituðum bara pizzu ofan í þær. Svo var gott hvítvín með, og þrátt fyrir smá gagnrýni (Klaus vildi meira pasta og minni lax og eiginlega voru þær systur sammmála honum) þótti þetta velheppnuð máltíð.
Svo bökuðu þær stuttu skúffuköku á laugardaginn.
Það er greinilegt að liðið er í fríi og fáir nenna að skrifa á blogg og facebook. Margrét hafði ekki tíma eða löngun til að setja myndir inn í gær. Vona að hún drífi sig í það sem fyrst.
Á eftir vínarbrauð í frystinum, og nú styttist í sápuna mína. Best að fá sér kaffi og köku og gleyma öllu öðru um stund.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Ummm, pasta-lax rétturinn hljómar vel! Langar þig ekki til að senda mér uppskriftina? Og eins er eins og mér finnist endilega að þú hafir einhverntíman talað um svo góða eplakökuuppskrift! Hana máttu alveg senda mér líka ef þú nennir! Hafðu það gott með öllum gestunum þínum kæra frænka.
Bestu kveðjur úr suðrinu, sem er óvenju blautt og svalt þetta sumarið... En ég kvarta annars ekkert yfir því, finnst það eiginlega betra en hitinn..
Aldís
jæja hér er búinn að vera svaka hiti í dag þó sérstaklega fyrripartinn. Fór að bera út með Ingó og svo fórum við Úlfur í Húsdýragarðinn. Smurðum okkur nesti og tókum með drykki og hittum svo Erin og Kaju þar og áttum góðan dag. Þær komu með okkur heim og svo keyrði ég þær á Hávallagötuna. Var að vökva garðinn núna rétt í þessu sem er ekki eitthvað sem við þurfum að venjast hér á landi en hann er skraufþurr og grasið að brenna. Helgin var æði fyrir norðan.
Post a Comment