Saturday, July 18, 2009

Hamborg er alltaf æðisleg.

Laugardagur og ég svaf lítið í nótt. Er þreytt og syfjuð. Eins gott að þessar stelpur eru hressar. Þær eru að baka skúffuköku, spila Mattador og búnar að fara í hjóltúr. Ég var hins vegar dugleg í gær. Ekki mikið um pásur þann daginn. Bakaði 4 brauð, tók til í eldhúsinu. Setti í nokkrar þvottavélar. Fór með Margréti og Kristínu til læknis. Margrét er komin með nokkrar vörtur á fingurna, og læknirinn setti sýru á þær í gær. það var verulega vont. Hún þarf svo aftur eftir viku. Kristín fékk flugnabit og það bólgnaði mikið upp og myndaði harðan hnút í miðjunni. Hún er ekki komin með sýkingu, en fékk samt lyf gegn n.k. ofnæmisviðbrögðum, og svo sprey. Guðný komin með bit líka, en svíður ekki í það.

Liðið svaf lengi í gær eftir erfiðan dag, en skemmtilegan. Við tókum sem sé Hamborg í nefið á fimmtudaginn. Fórum með lest, og þurftum að skifta tvisvar. Fyrst í Gifhorn og svo í Uetzen, sem er með frábæra lestarstöð. Öll skreytt í mósaíki og með súlur utan á húsinu. En flott stöð breytti ekki þeirri staðreynd að ekkert pláss var í lestinni! Hún var svo gjörsamlega troðin að við stóðum öll í einar 20 mín, og þá losnaði eitt sæti. Við skiftumst svo á að sitja í því, og vorum fegin þegar lestin rann inn á stöðina í Hamborg. Það var 31 stiga hiti þegar leið að hádegi. Nokkur vindur og bara æðislegt.
Tókum svo S-Bahn niður að höfninni, sem ég er alltaf jafn hrifin af. Öll gömlu húsin, sem vörunum var skipað uppí, og er hverfið þekkt sem Speicherstadt. Allt fullt af skipum, líf og fjör. Við gátum sest niður á kant við stórt beð, og drukkum og borðuðum nestið okkar þar. Svo var haldið að safninu með rafmagnslestunum, en þá var biðröð, --bið í u.þ.b. 40 mín. Það þótti okkur ekki leggjandi á þær litlu. Og við röltum aftur yfir risa brúna.
Á leiðinni gengum við undir þakskeggi, og Guðný fékk flog út af vefum, sem héngu hátt uppi. Hún gekk frekar úti á götunni (til allrar hamingju lítil umferð :) ) en að ganga undir þessu. Það væru sko ungar í þessu og gætu dottið á hana!
Nú, nú við tókum lestina inn í miðbæ. Að Alster-vatninu. Það var farið inn í stórt moll, kíkt á Pilgrim skartgripi (æðislegir danskir skartgripir) og ég splæsti ís á liðið. Gott að komast á fín klósett, og notalegt að hvíla lúin bein.
Svo fóru þær systur með þær litlu í siglingu um Alster. Við Klaus létum fara vel um okkur á bakkanum. Vorum búin að fara þetta í apríl. Og svo var rölt um fínu og flottu verslunargöturnar.
Guðný náði varla andanum við að sjá Louis Voitton búðina. Þar er m.a.s. dyravörður, sem opnaði fyrir okkur og ég spurði hvort þær litlu mættu kíkja snöggvast inn. Hann brosti og hleypti þeim inn og ég bað þær bara að snerta ekki neitt. Enda töskur á verði, sem nær ekki nokkurri áttt. Hver borgar 3400 evrur fyrir eina tösku! Ég er nú persónulega bara á móti svona okurverslunum og finnst að maður ætti að neita að kaupa af þessu okurliði. En stelpurnar sjá þetta í öðru ljósi.

Kíktum inn í nokkrar verslanir og sátum á strætóstoppistöð og borðuðum nestið í törn tvö! Í þessari blíðu og svalandi golu. Það var fátt fólk. Við heppin. Heimferðin gekk síðan betur. Gátum straks fengið 3 sæti, og hinir sátu í stiganum og uppi í glugga. Svo losnaði eftir nokkra stund. Hvor leið tók um 3 tíma, og bílkeyrsla er um 2-3 tímar svo það munar ekki miklu.

Er heim kom vökvaði ég hjá Maju, systur suðu pasta og við áttum afgang af salati, kaldar kjörbollur og fiskistauta, og svo var gerð sósa. Held að ég hafi sjaldan fengið betri mat! Við vorum svo svöng og þreytt!!!!

Klaus fer svo að vinna á mánudaginn. Ég þarf í krabbameinsskoðun, alltaf eftir tvö ár. Svo fer Margrét til tannlæknis á miðvikudaginn. Þær eru allar spenntar að komast til Hannover á Harry Potter, sem er sýnd þar á ensku. Byrjar á mánudaginn. Og svo er það Amsterdam. Annett sendi okkur ljósrit um borgina og mér líst vel á! Kaffihús með barbieskreytingum, fullt af marsípani, namm! Og fullt af fataverslunum. Ekki það að maður hafi mikið af penignum til að eyða :)


Þær eru að kalla í kaffi. Best að hætta og fara niður.

1 comment:

Anonymous said...

Svaka ferðalag hjá ykkur, vildi alveg hafa verið með. Hjallhólsmót gekk mjög vel, mikið grínast og gaman að hitta alla. Hittum síðan Möggu Lár og afkomendur í kirkjugarðinum heima, hjá þeim var líka ættarmót, hitti Hjört sem ég hef ekki séð í allt of langan tíma, já það komust allir nema börn Steinþórs. Lögðum prestshús undir okkur, og Fríða stjanaði við liðið, VÖ og Ad sváfu í stofunni, en við Elli í bílnum. Meiri hátta móttökur ef þú trúir. Þú færð betri fréttir seinna. Kv affí