Þriðjudagur og klukkan að verða 6. Frábært veður og liðið búið að vera úti. Þvottur og aftur þvottur og sumar og sól. Við fórum í víkingaspilið, og skemmtum okkur vel. Ég var geðveikt góð--- eða þannig :), og Klaus tók sínar góðu sirpur! Sem sagt voða gaman. Svo pumpaði hann í einhjólið og Margrét kenndi öllum þremur píunum á það. Ís vinsæll og rennur vel niður í hitanum, sem er milli 22-27 í norður Þýskalandi í dag.
Stelpurnar tóku herbergið í gegn í dag. Systur eldhúsið og eldað var af kappi í hádeginu áður en hitinn lamaði okkur. Kjötbollur (keyptar) , krokettur, (tilbúnar úr fyrsti ), kalkúnsneiðar maríneraðar (úr frystinum), pasta og frosið grænmeti, hehe. Erfið eldamenska. Og tvenns konar sósur með. Svona er það þegar reynt er að gera öllum til hæfis :):):)
Gærdagurinn var bara hinn besti. Fór á fætur klukkan 8.15 og bjó til pönnukökudeig. Vakti Margréti klukkan 9 og hún lauk við að baka. Lagði á borð með sparistellinu hans Klaus (hann valdi það hér á árum áður ) og við sungum og höfðum það notalegt með afmælisbarninu. Hún fékk leik í Singstar frá ömmu og afa og okkur líka (því hann var smá dýrari en Margrét hélt ),frá okkur gjafakort í H&M, sem var rosa spennandi, og súkkulaði með Svepp Sveinssyni frá KD. Svo verslaði hún fatnað í Hannover og tösku frá Nike og var alsæl með daginn.
Við tókum lestina til Hannover og sporvagninn svo til Sealife. Mér þótti það nú ekki spes sædýrasafn. það er geðveikislega þröngt, og litlir gluggarnir til að skoða fiskana. Og rándýrt. Vont loft, og svo kemur maður í hitabeltisherbergi, sem er óverandi í. Var bara fegin þegar ég komst út. Þetta er allavega ekkert fyrir mömmu! Borðuðum svo nestið, heimabökuðu bollurnar a la Malla, og tókum stefnuna á miðbæinn. Þar skildi Klaus við okkur og tók lest heim. En við héldum út til næstum 7 um kvöldið. Mikið mátað, mikið skoðað og ég fann fína ísstaðinn, sem vann verðlaun fyrir besta ísinn, held í Evrópu, en allavega í Þýskalandi. Giovanni, í Georgsstrasse. En geymi mér að fara þangað þar til ég er ekki með svona marga á "framfæri" :) . Við röltum á lestarstöðina og þær fengu sér pizzu hjá Pizza Hut. Það var ein af óskum Guðnýjar. Hér í den fórum við með Aldísi á Subway rétt hjá. Svo Hannover virðist vera vinsælt hjá þeim frænkum.
Arnhildur og Margrét tóku skokktúr í gærkvöldi. Þetta eru svo duglegar stelpur. Í kvöld ætla þær aftur, og búið er að fara í góðan hjóltúr, og nú gátu þær allar farið saman þar sem "Maja á hliðinni" lánaði mér hjólið sitt handa þeim. Reyndar þótti Guðnýju ekki gott að það skyldu fara pínulitlar pöddur inn undir bolinn. Það eru hinar frægu "þrumuskuð", --nafnið eftir Möllu, en þessi fyrirbæri heita Gewitterfliegen, eða þrumuflugur. Og þær fara sannarlega um allt, en gera ekkert af sér.
Núna eru þær allar komnar í sólarhlé og horfa á Greys Anatomy-- eða hvernig það er skrifað, og eru í sæluvímu.
Arnhildur fékk sér annað pilsið á sumrinu í gær. Ég veit ekki hvað er að koma yfir hana. Hún er bara að spá í að verða bara eins og Svanhildur, sem er duglegust allra að vera í pilsi. Gott mál það!
Gaman að veðrið skuli vera svona frábært heima. Flottar myndir hjá Affí. Já, það eru örugglega til tehús í Amsterdam og dætur minar ætla pottþétt að gefa mér Coockies --eða hasskökur, híhí.
Og uppskriftirnar koma svo líka sem fyrst eða þegar ég má vera að!. Það er svo mikið að gera á stóru heimili.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Greinilega frábær dagur í gær, ...einsog allir dagar þarna auðvitað :o) Takk fyrir að gera afmælisdaginn hennar ógleymanlegan ;o)
kveðja Ingó
Post a Comment