Fyrst er að að nefna að hún Aldís litla er orðin 18 ára í dag! Við hugsum til hennar og minnumst afmælisins fyrir 4 árum þegar þær Ásta voru hér. Aldís með unglingaveiki á háu stigi og fjör í kring um þær frænkur allar. Stelpurnar hafa verið að horfa á gamlar videómyndir og mikið er hlegið.
Nú, nú. Helsta fréttin er að að við frestuðum ferðinni til Amsterdam til 27.júlí. Förum sem sé á afmæli pabba. Gistum í 3 nætur. Fengum eitthvað Hostel á 350 evrur fyrir okkur allar 5 í 3 nætur, og innifalinn er morgunmatur. Við hljótum að finna einhverjar búðir til að kaupa brauð og álegg til að lifa af og svo ku vera vöffluhús þarna, sem séu meiri háttar. Spennandi að vera fara í algjörlega framandi land og vita ekkert á hverju maður á von. Hringdi í Annett í gær og bað hana að skrifa mér ef henni dytti í hug eitthvað spennandi og eins bara nytsamlegar upplýsingar. Hún sagði eins og Affí nefnir á facebook að ströndin væri æðisleg. Allavega hlökkum við rosa mikið til.
Málið er að Klaus fer í frí eftir morgundaginn, og hann hefur engan áhuga á að fara með, en er ekki alveg sáttur við að við séum akkurat í burtu meðan hann á frí. Sem er jú skiljanlegt. Hann tekur bara tvær vikur í sumar, og getur ekki tekið frí seinni partinn í júlí.
Margrét var á netinu í fleiri klukkustundir til að kanna hótelmálin og lesa athugasemdir um ástandið. Við fáum sér sturtu og klósett, sem var okkur mikilvægt :) En þar af leiðandi hefur hún ekki haft tíma til að setja inn myndir fyrir mig. Ég get aldrei lært það. Það er svo flókið!
Við tókum þriðjudaginn í bakstur. Bökuðum bollur, Möllukotasælubollur. Voða fínar. Horn með súkkulaði /ostafyllingu, og ég skellti svo formköku ömmu Gertrud í ofninn, en gleymdi lyftiduftinu! Hún er því lág og smá klesst, en Guðný og fleiri eru samt alveg sáttar við hana! Við löbbuðum svo til Guðdrun Falkenrodt, sem er mamma stelpnanna, sem Margrét hefur verið að passa. Þau eru að fara í tveggja vikna frí. Kirsuberjatréð er fullt af þroskuðum berjum, sem eyðileggjast bara. Hún bauð okkur að koma, sem vakti mikla lukku. Þrátt fyrir pödduhræðslu fóru þær allar fjórar upp í stiga og tíndu og Kristín Dögg fór líka upp á þaka á skúrnum, fjör! Í garðinum er trampolin, sem þær fóru svo á, og Guðný klifraði upp í háa stöng, sem er meira en ég skil. Verst að við gleymdum myndavélinni, en við erum velkomnar hvenær sem stelpurnar eru heima. Svo eru kanínur í búri, og klifur/róla. Fórum með dágóðan slatta heim í poka og vildi bara að ég gæti sent ykkur smá af þessu. það liggur hér undir skemmdum þar sem við höfum ekki undan að borða þetta. Í lokin elduðu systur pastarétt með kornfleksi og osti ofan á, og þetta var hinn besti dagur.
Í gær, miðvikudag, fór ég í gamla skólann með Frau Kühle. Það á að loka honum alveg sem skóla, og við þurfum að taka okkar drasl og fara með áður en skólann byrjar í ágúst. Ég átti þarna eitthvað af bollum, lítinn hraðsuðuketil, dót, sem ég notaði í gæslunni og hitt og þetta. Við hentum í hálfa tunnu og sorteruðum og Frau Kühle fór með nokkra kassa heim. Hún tekur svo hillurnar og lausu skápana sem enginn vill fá. Og dóttir hennar, sem kemur frá Columbiu eftir 7 ára kennslu, fær það. Hún fer að vinna í Bremen. Um helgina kemur yngri sonur hennar og þau ætla að taka mublurnar í sundur, og ég fer svo á okkar bláa og ek þessu til hennar til Ahnsen. Það verður því vel fullt hjá henni þar til dóttir hennar kemur þann 18.7.
Þegar ég kom heim um hálf fimm voru dætur mínar búnar að baka þetta fína epplapæ, og við fengum okkur ís með þvi, algjört nammi! Þær stuttu voru eitthvað að láta sér leiðast. Það rigndi oft í gær, og var mun kaldara. Svo ég fékk þær í lið að taka til. KD moppaði og þvoði gólfið hjá mér, og Guðný settu utan um rúmið með mér. Svo fóru þær í að laga í skúffunum og taka fötin í gegn. Margrét tók sitt herbergi í gegn og setti hreint á rumið. Í dag verð ég svo að strauja og þær stuttu ætla að setja hreint á rúmin hjá þeim.
Arnhildur svaf í herbergi M. í nótt og Margrét inni hjá stelpunum. Arnhildur var að horfa á þætti í sjónvarpinu, og naut þess að vera ein--með eplaköku og kirsuber!!!
Jæja, Arnhildur að glamra í eldhúsinu og best að ég fari að stússast líka. Hafið það gott.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
gott að heyra að Guðný kanna að búa um rúm nú fær hún að hjálpa til með það hehe... Amsterdam verður bara æði
Gaman að lesa um Möllubollur, best ég skelli í bollur á morgun handa vinnumönnunum ;) Væri alveg til í kirsuber,nammi namm. Ég var í húsdýragarðinum í dag frá 10:30 til 17:15 með börnin 3!!! Það var frítt inn og ég tók því daginn snemma,mætti með nesti og alles. Svo var frír ís frá klukkan 14 og ég og mitt lið náðum 3 stk á mann,hehe. Þetta er alvöru kreppuráð frá mér :)
Post a Comment