Friday, July 24, 2009

Föstudagur, og kalt.

Rigningin hefur verið tíð og megn. Slepp við að vökva hjá Maju. En það kom einn frábær dagur, sem var notaður til að fara í Ersepark. Ég var sem sé heima ein annan daginn í röð, og notaði tímann t.d. í að hringja í fólk, sem ég hef ekki haft samband við lengi. Frétti að Hildegard væri búin að vera á Íslandi í viku, kemur heim á fimmtudaginn í næstu viku. Hún hefði næstum sleppt ferðinni ef hún hefði vitað að hún fengi þvílíkan reikning frá sjúkrahúsinu þar sem hún var skorin upp. Nýjar reglur og hún sem einka-sjúklingur þarf að borga rosalegar upphæðir út af því að það var yfirlæknirinn, sem skar hana upp í þessari eyrnaaðgerð. Bara einar litlar 3000 evrur! sem hún þarf að borga.
Betra hljóð í Elfi Ritter. Bernt er á Ítalíu að vinna við mælingaverkefni. Þau stefna á ferð innan Þýskalands og svo ferð með bíl og ferju til Bretlands í september og koma til baka með viðkomu í Amsterdam. Allt gott að frétta af þeim.

Stelpurnar voru svo aðframkomnar eftir ferðina í skemmtigarðinn að þær lágu mest í bælinu og héngu í tölvu daginn eftir. Svo var liðið farið að hressast í gær, en þá varð Margrét svo lasin undir kaffið að ég varð á ná í nýjar verkjatöflur út í apótek. Tejo eða hvað þær heita duguðu ekkert. Eins gott að ég fer með hana til læknis í ágúst. Meira vesenið þetta kvennastúss. Vinkonur hennar, Erika og Lena voru komnar í heimsókn, og fóru svo bara aftur eftir stutta heimsókn. Margrét náhvít í framan og verulega slöpp.

Susanne og Ramona komu við í hádeginu á leið til Hannover. Ramona var að fá nýtt heyrnartæki, sem þarf að stilla betur. Hún er endanlega búin að henda gæjanum út, og er að leita að vinna hérna í Hannover. Mér líst vel á það. Þær gáfu svo stelpunum tíu evrur hverri og Arnhildi 25 í eftirá afmælisgjöf. Kemur sér vel, híhí.
Ég fór svo eftir tiltekt--var rennsveitt því það var svo rakt og heitt að maður svitnaði við hverja hreyfingu- að sækja Frau Kühle. Við sóttum afganginn af dótinu okkar í gamla skólann. Er með nokkra kassa úti í skúr, og þarf að koma þessu sem fyrst upp í skóla. M.a. nokkrar möppur, sem Sparisjóðurinn gaf krökkunum, og voru þó nokkrar eftir. Gat gefið stelpunum möppur, og líka afgangs litablokkir. Dóttir Frau Kühle er nú komin heim og er að leita að íbúð í Bremen. Gott að hún skuli loks vera á landinu og geta létt undir með mömmu sinni.

Svo bakaði Arnhildur hollustu-"kúkkís", og þær smökkuðust vel. Við renndum í Netto, og svo eldaði ég kjúklingaréttinn a la Onkel Bens, --allt úr krukkum:)

Framundan afmæli Kristínar og ferðin til Hollands. Fríið styttist skelfilega og við verðum að njóta hvers dags sem best getur. Hræðilegt að heyra af vetrarkomunni hjá ykkur. Vona að sumarið snúi aftur og þið fáið góða daga.

1 comment:

Anonymous said...

Já það er frekar fúlt að ekki sé betra veður, en þetta er jú Ísland og við öllu að búast. Góða ferð til Hollands, vildi gjarnan vera að fara með ykkur. M og p farin í Mývatnssveitina, gista í prestshúsi þó Fríða sé ekki heima. Við Elli að velta fyrir okkur hvort við förum eitthvað þessa helgi, veðrið virðist þó vera að skána, kemur í ljós. Kv affí