Elskurnar mínar, þið kommentarar af Guðs náð. Takk fyrir að hrósa mér í hástert, og efla sjálfstraustið. Margrét þakkar ykkur líka vel. Hún fékk næstum áfall við lestur bloggsins í gær og morgun. Hún segir að það sé ekki auðvelt að eiga svona foreldra! (Svo hún er þá eðlilegur unglingur, sem finnur galla hjá okkur. Gott mál það:) ) Auðvitað er ég ekki sammála ykkur um gáfur mínar og kosti. Ég á bara einn hæfileika, sem er að geta mjög vel umgengist fólk og hlustað og ráðlagt. Ég er með stórt hjarta, og finn til með fólki. En ég geri ekki mikið með þennan hæfileika. Ég ætti að vinna við t.d. líknarstörf, hjálparstörf, en geri það ekki. --Ég get unnið handavinnu og eldað, get skipulagt, en fer samt ekki eftir plönunum mínum, þessum frægu plan--flan. Gæti aldrei komist í gegn um háskóla nema bara að danskan reddaðist. Og ég er svo hrikalega lítið sæt.
Þetta eru staðreyndir, en ég er heldur ekki ljót.
Það eru sannarlega margir, sem hafa það verr en ég. Mig langar bara svo mikið til að vera very important person. Skara fram úr og vera góð í einhverju rosa mikilvægu. Stofna leiksóla eins og Magga Pála og berjast fyrir bættum aðstæðum barna. Og stofna hópinn --drepum alla flækingsketti :):):) Æ, ég skal lofa að hætta að kvarta. Ég er best í að strauja rúmföt og betri en allir í að taka skápa í gegn. Hvað vill maður meira!!! Og ég á yndislegustu dætur í veröldinni.
Nú, nú. Skólinn fór heldur betur á hausinn í eftirlitinu. Fyrst og fremst kennslan kolféll. Það eru um 50 prósent, sem framkvæma "Excellente" vinnu, og hinn helmingurinn vinnur illa. En þar sem við erum ekki alveg sátt við hvernig eftirlitið fer fram og efumst um réttlæti niðurstaðanna er ekki beint hressilegur tónn í liðinu. Þau voru í 20 mín í einum tíma, og gátu samt dæmt kennslu kennarans frá upphafi til enda. Voru einu sinni hjá hverjum, og svo stutta stund aukalega til viðbótar Þegar niðurstöðurnar komu á skjáinn mátti heyra saumnál falla. Sennilega fara yfirvöld fram á að eftirlitið verði endurtekið, og þá verður að vinna mikið og breyta mörgu.
En sem útlendingur skilur maður ekki vel hvað eiginlega sé að. Það kom nefnilega fram að
a -- nemendurnir séu mjög ánægðir með skólann, b - foreldrarnir líka, c--nemendur læri í skólanum, d -- kennarar kenni í góðu andrúmslofti í bekknum og beyti rödd og líkama á réttan hátt í kennslunni ----
Eru þetta ekki þeir hlutir, sem skifta mestu máli?
Nei, það var t.d. gagnrýnt að tíminn væri ekki notaður til fulls--það færu mikilvægar mínútur í að ná í eitthvað fram í geymslu, ekki væri búið að taka fram bækur fyrr en eftir 5 mín eða annað slíkt. Það er sem sé mikilvægt að MAGN kennslu stemmi!
Það að sumir kennarar telji mikilvægt að byrja tíma í notalegheitum er algjört bull samkvæmt þessu. (það er 5 mín hlé milli tíma og þá skal fara á snyrtingu og slíkt, slappa af og samt vera í startholunum þegar næsti kennari mætir, yes sir!)
Mjög slæmt var að hvergi skyldu tölvur vera notaðar í kennslu og eins orðabækur.-( Kennararnir akkurat forðuðust það til að sýna "alvöru" kennslu. )
Slæmt að nemendur skuli ekki hafa ákveðin verkefni-meiri ábyrgð, og eins að "Klassensprecher"-talsmaður bekkjarins- sé ekki einu sinni klár á hvað starf hans merki. (hvað eiga krakkar í fyrstu 4 bekkjunum að gera ein og óstudd--hafa krakkar heima þannig verkefni?) Og sama og engin hópvinna fór fram.
Eins er ekki nóg af stuðningskennslu. En fyrir hana eru ekki tímar á lausu, en þá á að nota hugmyndaflugið og gera eitthvað til að örfa hæfileika. --sem sagt að virkja foreldra--ókeypis starfskrafta!
En réttmæt gagnrýni var að ekki væri farið eftir leiðarljósunum, sem skólinn hefur sett sér til að ná markmiðum sínum. Mjög góð plön, en ekki farið eftir þeim.
Og svo komust þau að því að andinn í kennarahópnum er slæmur. það er hver höndin á móti annarri. Þar er vissulega þörf breytinga. Já, nú verða allir daprir og fólkið í þorpinu fúlt og ekki veður það til að kennarar hressist og séu glaðir í vinnunni og liðsinni börnunum með glaðværð.
--- Hvort þetta var til góðs eða ekki --það mun framtíðin skera úr um.
Jæja, komið kvöld, og fólkið mitt er hresst. Góða nótt og takk enn og aftur fyrir að hafa samband.
Vona að umslagið með dótinu til Möllu fara nú að koma, fór sem bréf.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Hvaða djöfuls bjartsýni er eiginlega í gangi hjá frænkum mínum?? Þetta er drullufúll heimur, komin kreppa, ég er komin með hrukkur, með bólu á nefinu, sjónin mætti vera betri, það er táfýla í uppáhaldsstígvélunum mínum, fíflar í garðinum sama hvað ég reyni að drepa þá, randaflugur eyðileggja sólbaðið, ég er ekkert lík Angelinu Jollýalladaga af því hún er svo falleg,skítakuldi úti, bakverkir, hárlos, egglos, karlos, vildi að ég væri í þýskalandi í sól og blíðu, með dóttur sem stundar námið af kappi, mann sem heldur utanum pyngjuna, hjá systur sem metur fjölskyldu og vini umfram allt annað og veit óskup vel að hún getur lært eins og allir aðrir því flestir þurfa að hafa heilan helling fyrir því að ná prófum (alla vega ég)og veit að menn eru ekkert hamingjusamari þó þeir hafi ,,meikað það" á einhverju sviði. PUNKTUR
Saknaðarkveðja affí sys
He, he he Affí þú ert algjört met ;) En Ádda, þú segist hafa einn kost og telur svo upp marga kosti, meira segja sjálf!!! Ekki tel ég mig vera framúrskarandi á neinu sviði, en er sátt í vinnunni og lífinu almennt. Reyndu að vera það líka frænka, góða helgi.
Post a Comment