Monday, May 11, 2009

Já hún Arnhildur fer að eldast mjög!

Elsku litla dóttir mín er orðin 32 ára! Það hlýtur að merkja að ég sé orðin ansi gömul, hmhm. Það sem tíminn flýgur. Við Margrét vorum inni á Skype að horfa á hana taka upp gjafir frá okkur, voða sniðugt! Já, allir bara hressir.
Birthe var hér í nótt og fór með Margréti í skólann. Klaus mátti ekki fara á fætur fyrr en klukkan 7 eða þegar þær voru búnar í sturtu og slíku :) Honum þótti auðvitað leitt að þurfa að sofa lengur. Það var æðislegt að hafa Birthe hér. Hress og klár stelpa, og vissulega synd að hún sé á förum til Mexiko í sumar. Við skruppum allar þrjár til Frau Kühle í gær þar sem hún var kennari þeirra í barnaskóla og hún hélt mikið upp á þessar stelpur báðar. Já, þessi börn bara að verða fullorðin. Og Ásta bara búin að tilkynna á facebook að hún sé í sambandi við Reinar, how sweet! Gat ekki stillt mig um að skella smá kommenti á facebook til systur minnar :) En Margrét segir að þegar ég reyni að vera fyndin takist það aldrei svo hún hefur kannski ekki brosað að glósunni. Það eru sko ekki allir fæddir með brandarahæfileika Affíar, Sigurðar og Þórdísar, jú, Diddi má vera með!

Helgin fór í garðinn, tiltekt og matreyðslu. Klaus reyndar vann með mér í að hreinsa gangstéttina og sópaði og fór með greinar, sló grasið og stakk upp illgresi. Svo illgresi hér og illgresi þar. Endaði laugardaginn á að steikja gúllas og var frekar sprungin. Finn straks fyrir gigtinni ef ég hamast, en það er nú bara svona. Lagaði til áður en Birthe kom, og allt leit bara vel út. Þær fengu svo að panta pizzu hjá ítölunum hérna, og ég slapp við eldamennsku í gærkvöldi. Klaus fékk bara leyfarnar af gúllasinu :)
Æðislegt veður í gær þrátt fyrir nokkurn vind en í dag er sólarlaust og mun kaldara. Var svo á fundi í dag uppúr tvö. Birthe farin og Margrét að læra.

Hringdi í Hildegard og hún biður voða vel að heilsa öllum. Hún fer á morgun í aðgerð í Wolfsburg út af bólgu eða ígerð í eyra. Hlakkar nú ekki beint til.
Mér skilst að Lilla sé bara brött þrátt fyrir sársaukann. Hún kallar nú ekki allt ömmu sína.
Fór loks á hjól á fö. Það er kominn tími til að hreyfa sig meira. Sit föst í 79-80, og það er nú ekki gott. Komin með björgunarhring, af stærri gerð:) Og ekkert barn í mér.

Takk fyrir að koma mér í kökuklúbbinn Kristín mín. Margrét reddaði þessu með mér, þetta er í favorite núna. Sá þátt um kökuskreytingar nýlega og fann út að þetta væri draumurinn fyrir Arnhildi. Við bara sendum hana á námskeið til Hamborgar :) T.d. æðislegt terta, sem var eins og skókassi með háhæla skó ofan á, og ein, sem var eins og fínfrúar veski.
Kannski við ættum að opna kökuskreytingarverslun, með útibúi fyrir fatnað frá Munda, með hannyrðum frá Svanhildi og ullarfötum frá Maddý. Aldís getur svo tekið myndir af herlegheitunum og Affí séð um málverk á veggi. Pabbi spilað tónlist, mamma spjallað við gesti, og ---Diddi haldið ræður um pólitíkina. Fúsi farið í blöðruna og Siggi hennar Kristínar kynnt tölvuleiki. Vá--hvað eru margir hæfileikaríkir í fjölskyldunni!!!! Þorgerður séð um heilsuna og Malla bakað kökurnar, sem skreyttar eru. Þórdís séð um reksturinn og Ingó borið út auglýsingarnar. Og ég les svo upp úr sjálfsævisögu minni! (ætti ég kannski að sleppa þessu síðasta :):):)! )

5 comments:

Kristín E. said...

Góð hugmynd frænka :o) held að sjálfsævisagan væri mjög spennandi lesning.
Við erum öll ótrúlega frábær og hæfileikarík, ekki spurning.
Þarf að sýna Arnhildi fína kökuskreytingarblaðið mitt, það fæst kannski í Þýskalandi. Heitir Birthday Cakes og er frá Australian women´s Weekly... snilldarblöð en ég á bara tvö, langar í fleiri en þau kosta alveg svaðalega mikið á Íslandi :S keypti mín tvö í Cambridge

Anonymous said...

Til hamingju með stóru stelpuna þína.Það hefur verið svo mikið að gera hjá mér undanfarið,tónleikar og allt mögulegt.Ég var líka með Tinnu í leikhúsinu eftir vinnu og rétt komst á milli æfinga.Það voru sem sagt tónl.í gær í kirkjunni,lok kirkjul.viku. Mamma þin mætti og var voða hrifin.Svo eru Emblutónl.í næstu viku og þá er bara eftir ferðal.með kirkjuk.Og nú fer að styttast í skólaslit tæpur mánuður eftir.Lilla kom heim í dag og ég ætla að skreppa til hennar.Kveðjur til allra.Magga móða.

Anonymous said...

Til hamingju með stærri dótturina og daginn. Gott að heyra að það er nóg um að vera hjá þér. Hér er svo sem allt á fullu líka, var með próf í dag, fundir 2 og síðan heimsókn til Sigga Þórólfs með pabba í kvöld. Hann er ágætlega brattur og hefur enn "svolítið silfurgen" sem virkar. Hann stefnir til augnlæknisins á morgun og svo norður með kaffivélinni á miðvikudag.
Kveðjur Diddi

Malla bumba said...

He he he, flott lesning um fjölskylduna. Ég var svo spennt að sjá hvort ég fengi hlutverk ;) Allt í rólegheitum hér, þó að ég hafi hamast eins og brjáluð í gær í tiltekt..... Held að krílið sé að bíða eftir skárra veðri, sem á að koma í lok vikunnar :)

Þorgerður said...

Var sármóðguð þegar ég sá fyrri færsluna og ég hafði ekkert hlutverk í fjölskyldufyrirtækinu, en las svo fyrri færsluna og róaðist við það!! Hehe...
Held að Gilli og Siggi ættu að sjá um reksturinn, Gilli skynsami og nákvæmi, Siggi jákvæði og áræðni en Þórdís yrði fjölmiðlafulltrúinn!!
Litla frænka enn einn gullmolinn í þessa skemmtilegu fjölskyldu okkar þar sem við erum öll frábær, hvert á sinn hátt!!!