Monday, May 4, 2009

Fleiri fitubollur en Malla :)

Mánudagur, og komið fram á kvöld. Fitubollan hún ÁA, sem sé undirrituð, er að komast í 80 kíló eftior að hafa komist niður í 75 í fyrra. Svona er það þegar maður borðar og borðar og fer ekkert að labba eðaí hjóltúr. En tímann flýgur--já, góð afsökun :), og svo var það bakið og ---já, svona er það. Eins gott að fara að ná sér í WW uppskriftirnar og gera eitthvað í málunum. Klaus hreyfir sig ekki baun, og þar sem allt lendir hvort sem er á mér, verð ég víst að reka hann af stað :) Hm,hm --við Margrét skruppum í búðir í Gifhorn , matvælaverslanir, og þar fást sænskar marengekökur, og ein fór nú ofan í vagninn. Æ, þetta er erfitt líf. :) :):)
Eftir að ég var orðin góð í bakinu var stritað látlaust á sunnudaginn. (í gær) Tekið í gegn beðin framan við húsið, klipptur runninn þar, sem er svoleiðis étinn af einhverjum pödduógeðum, og flutt til blóm. Það er nefnilega þannig að maður hefur ekki hundsvit á því hvað blessuð blómin vaxa mikið, og allt í einu eru komnir heilu runnarnir á einum stað og ekkert annarrs staðar. Og það að planta niður er líka það skemmtilegasta. Fer svo að taka myndir og setja á bloggið.

Við grilluðum á laugardaginn, en hann fór svo að rigna í gær, og ekkert varð úr frekari grilláti. Gott að vera búin að öllu, sem stóð á listanum fyrir daginn. Það eru sko 4 listar í eldhúsinu, og gengur ansi hægt að strika út :)
Margrét var mikið að læra, og fékk aðstoð hjá pabba sínum. Sonja saknaði hennar mikið, og spurði margoft eftir henni.
Birthe vinkona hennar hringdi og kemur sennilega næsta sunnudag og gistir hér, og fer með henni í skólann á mánudaginn. Það eru stúdentspróf í skóla Birthe, og frí hjá hinum einn dag. Ekkert slíkt hér, enda enginn að taka stúdentspróf fyrr en Margrétar hópur fer í það.
Æðislegt ef Birthe kemur. Margrét hefur að vísu Mariu, en hún er að mörgu leiti svo skrítin. Ekki opin og ekki indæl. Anso þurr stelpa. Og hún á engar aðrar vinkonur svo Margrét kemst ekki í samband við neinar í gegn um hana. Erfitt líf að vera unglingur, sniff, sniff eða svo finnst mömmu :) Og svo er Margrét að hræða mig á því að hún ætli að fara að fara að læra á bíl, Jesús minn barasta! Litla barnið mitt.......... !!!!

Það er sorglegt að Eiríkur skuli ætla að selja íbúðina, og ekki á það að stóla að geta gist þar ef það skyldi ganga í gegn, og þá best að sleppa alveg Köben í þessu dæmi. Æ, verð að fara að kanna verð. Það er bara svo mikið að gera! Í dag var það efri hæðin, svo og skifti í rúmunum, þveginn þvottur og ferð til Gifhorn. Fyrir utan að elda, ganga frá í eldhúsinu, fara í vinnuna, og allt þetta daglega, - Á morgun neðri hæðin, Doreen í enskutíma, bakstur. Og þyrfti að koma í verk að skrifa nokkur bréf á netinu. Ganga frá páskaskrautinu í kassana á háaloftinu. Dótið er enn ofan í bala í vinnuherberginu :) Og svo ------. Og svo framvegis.

Spennt að heyra hvernig gengur með Möllu og "stelpuna" eða þannig.!!! Vona að þetta gangi allt vel. Hlakka til að fá einn enn i big family----crazy family!
Og litlu tvíbbarnir bara að verða---bíddu nú við--hvað eru börnin að verða gömul, 5 ára?
Kölkuð frænka í útlöndum, sem sendir bestu heillaóskir til stoltu foreldranna og litlu / stóru tvíbbanna. Koss og faðmlag frá okkur.
Vona að pabbi hafi það gott fyrir sunnan og efa ekki að mömmu líði vel hjá Affí. Og ekki síst vona ég að Arnhildur fari nú að verða almennilega frísk.
Bestu kveðjur---- og hvernig er það með Björgu og barnið?????

No comments: