Wednesday, May 6, 2009

Bara smá um flug.

Kíkti á netsíðu Icelandair. Flogið er frá og til Berlinar á þriðjudögum og fimmtudögum. Düsseldorf á fimmtudögum og sunnudögum. Frankfurt alla daga og meira að segja tvisvar á sunnudögum. Verð frá svona um 150 evrur aðra leið uppi 170 og sjálfsagt meira.
Spurning hvert sé best að láta liðið fljúga.
A --- Berlin er æði ef maður hefur pláss til að gista og skoða borgina. Veit nokkur um ódýra gistingu? Kristin Draheim gæti etv. reddað einhverju en hvort henni passi okkar tímar er spurning.
B---- Düsseldorf er nálægt Hollandi-til þess að að gera. Hægt að tengja ferð þangað, en þá betra í upphafi. Og það ekki hægt nema Margrét sé búin í skólanum.
C---- hata Frankfurt flugvöllinn. Og borgin er ömurleg.

Þórdís---er Guðný ákveðin í að koma með, og hvenær er hún til í það? Erum að spá í uppúr svona 18.-20. júní---allt opið enn. Fúsi kemst ekki fyrr en eftir verslunarmannahelgina.----Ef flogið yrði eftir að fríið byrjar hjá Margréti er það 25. júní.-------- (fimmtudagur)
Þurfum að fara að fá að vita hvenær Fúsi vill koma---hvert hann vill fljúga, --spes óskir ?-- og hversu lengi hann vill stoppa því fram og til baka er oftast pantað í einu--eða til að örugt sé að fá pláss, eða ????

Hér gerðust undur mikil í dag. Við komumst í samband við Kristínu og Arnhildi á tölvunni í gegn um myndavél. Æðislegt að geta séð þær svona flott! Margrét ekki óánægð með tæknina :)

Takk fyrir kveðjuna Malla mín. Gott að fóturinn er betri. Já, hann Kristján virðist hugsa mikið og spekulera :) Bestu kveðjur til allra.

7 comments:

Anonymous said...

góða helgi frænka, kveðjur úr suðurhlutanum, Aldís

Anonymous said...

Það er sko gaman að geta séð ykkur svona live í gegnum skype!!! Þvílík snilld og við búnar að skemmta okkur mikið yfir þessu!!!kveðjur frá okkur öllum-Arnhildur master of tie-die batik coloring..

Anonymous said...

og heyrðu já mér líst vel á plan B, með Berlin...mmmm berlínarbollur í Berlín..híhí

Thordisa said...

hæ Guðný alveg 100% á að koma við erum að skoða að koma og sækja hana ekki alveg komið á hreint heyri í þér á morgun/hinn

Kristín E. said...

HæHæ
Leit hér við loksins, búin að vera hundlasin í 5 daga :S en er vonandi að hressast.
Var að setja myndir úr afmælum á facebook, fer vonandi fljótlega í að setja enn fleiri myndir inn á barnasíðuna þeirra.
Bið að heilsa Klaus og Margréti :D

Anonymous said...

Treysti á að Arnhildur líti hér inn í dag og óska henni innilega til hamingju með afmælið, vonandi að þú eigir góðan dag!

Bestu kveðjur, Svanhildur

Þorgerður said...

Til lukku með stóru dótturina!!