Í dag er svona sitt lítið af hverju. Smá að strauja, smá að þvo, smá að laga tl. Svo bjó ég til brauðið mitt. Þetta venjulega frá Kristínu Marju. Kom í Mogganum fyrir löngu. En setti núna í það spelt, og er spennt að vita hvað kemur út úr því. Sleppti alveg hvítu hveiti.
Diddi- hvað er þetta MSG--er það glutamat eða eitthvað þannig? Ég er ekki klár á þessu. Og slepptuð þið einhverju öðru en Knorr og kók???????
Margrét mín fékk tvær sneiðar af franskri súkkulaðiköku í kaffinu--yfir sápunni, ásamt grænu tei. Hún er komin í 56 kíló, og við voða glöð. En gamla feita fékk sér nú bara eitt epli. Verð víst að gera skurk í málinu, hmhm. Svo var bæði soðin gulrót og hnúðkál í hádeginu svo daman fékk hollustu!
Já, er þetta ekki frábært með fyrirtækið okkar. Það má lengi bæta við. Láki getur haldið golfnámskeið, með Sigga er það ekki! Ég séð um barnahornið með föndri og lestri. Kristín kennt að klæða stelpur í bleikt--! (smile) , Elli tók náttúrlega húsnæðið í gegn áður en við opnuðum. Jonni sá um timburvinnuna. Annett kennir bakstur hollra brauða og sparsemisnámskeið eru í boði hjá henni. Nú, Ássý gæti séð um kennsluefni í þolinmæði við erfiðar aðstæður. Og hann Léttfeti sér um lúðrablásturinn. Margrét flytur ræður á latínu og Þuríður Anna lokkar Ítala til okkar, . Hildur er gengilbeina, og Ásta málar hjörtu á diska, tákn ástarinnar í familíunni okkar, sem er svo full af ást og umhyggju til náttúrunnar og lífsins !
Aldís tekur að sér að lita hár og klippa niður í skalla, og Valdemar fer með gott fordæmi og borðar fínu kökurnar, sem Malla og Arnhildur framleiða.
Ég hlakka svo til!!!!!!!!
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
7 comments:
Sæl systir. Já þetta er bragðaukaefni natríum sodium glutamat.Við tókum það alveg út og eins kók. Eiginlega ekkert annað en reynum líka að láta þá vera eitthvað í grænmetinu.
Annars er eins og venjulega of mikið að gera í nokkra daga og prófyfirferðin verður að hefjast snemma í fyrramálið. Hitti Björgu Sirríardóttur sem er komin 5 daga framyfir en lítur flott út og var glöð eins og alltaf. Vonandi fer þetta að klárast hjá henni. Bestu kv. Diddi
Var að tala við KE í síma, hún skildi ekkert í þessu nýja hlutverki hennar að vera öll í bleiku og að mamma ætti að lesa á latínu!!! Ég hló og hló og benti henni á að þetta væru greinilega Kristín Dögg og Margrét Wendt, Kristín systir bara full af kvefi og fattaði ekki neitt ;) Ísland áfram í aðal Evróvision keppnina, jei!!!!!!
Já kæra systir... ég er smá vönkuð með þetta helv.. kvef en það hlýtur að fara að lagast :þ allavegana komin á sýklalyf við kinnholubólgum og sterkari magatöflur við brjóstsviðanum, nú hlýtur "blómaskeið" meðgöngunnar að fara að smella í gang hehehe
Væri svo til í að versla í búðinni hennar Áddu, svo skemmtilegt fólk í henni :D
Hvenær opnar svo fjölskyldufyrirtækið okkar?!! Ég er svo spennt að fara að baka tippa og brjóstakökur með Möllu-eða átti það ekki að vera svoleiðis!?? hehe!!-AH
hahaha... ég sé um getnaðarvarnar- og kynsjúkdómafræðsluna!
Fyrst Sigrún í Seli gat bakað þessa fínu tippaköku handa mér um árið þegar ég var gæsuð þá veit ég að við hinar rúllum nokkrum tippakökum upp, ekkert mál ;) Ég á líka mynd af kökunni minni góðu, þó ég eigi ekki svona fín blöð eins og Kristín (það eru sko engar tippakökur í hennar blaði, lélegt!!).
Ég sé um reksturinn á þessu rúlla upp öllu ásamt Gilla og Sigga hennar Kristínar þetta verður meiriháttar fyrirtæki hehe
Post a Comment