Wednesday, May 6, 2009

Margrét kvefuð.

Miðvikudagsmorgunn, og Margrét sefur rótt. Hún fer ekki í skólann í dag. Full af kvefið, eða kannski ofnæmi? Mamma sagði mér í gær að Diddi og Sigyn hefðu verið að prófa að breyta innkaupum vegna ofnæmis Eiríks. Engar Knorr vörur þar sem þetta MGS (eða hvað það heitir) sé talið mjög slæmt. Og í þessu tilfelli virðist það virka. Honum líður mun betur en áður. En Diddi-hafið þið breytt einhverju öðru? Þetta er allavega spennandi.

Ég hélt að þið mynduð "grípa boltann" og gera grín að stressuðu húsmóðurinni, sem sér ekki fram úr verkunum. En það er eitthvað minna kommenterað þessa dagana nema hún Malla, sem nennir þessu og svo skylduræknu eldri systkini mín :) Hinir eru líklega í alvöru stressaðir fjölskyldumeðlimir og alvöru mikið að gera. :):):) En veit að þið hugsið til mín. Og það koma nú ýmis konar komment, þannig er það jú í alvöru, og takk fyrir það.
En það var svo sem alveg nóg að gera í gær. Þreif neðri hæðina, og tók draslið á skattholinu í gegn. Dágóð hrúga. Svo vinna, matseld. Klárað að taka eldhúsið og þvo gólfin. Svo út í tvær búðir, banka, til læknis að ná í lyfseðil, ná í dalíurnar, sem eru geymdar hjá Krimmeike hjónunum. Fór með gler í gám, flöskur í sjálfvirku vélina, og allt þetta tók "bara" um tvo tima.
Átti von á Doreen í ensku klukkan 2, en hún kom ekki, en birtist svo klukkan 3. Þá var ég löngu farin af stað. En hún kom bara seinna og ég lærði með henni i klukkustund.

Jandra kom í píanótíma og mætti fyrr til að læra efnafræði með Margréti. Próf á morgun.
Það er grenjandi rigning og nokkur vindur. En á að fara batnandi á morgun og vera fínt um helgina. Mamma hringdi í mig í gær, og það er gott hljóð í henni. Hún er voða ánægð með nýju skúringarkonuna, sem er kona úr næstu lengju, og mamma kannast við hana. Og sú fékk sér kaffisopa með mömmu á eftir svo þetta hljómar allt vel. Nú þarf Arnhildur mín bara að fara að hressast. Bestu kveðjur úr rgningunni.

1 comment:

Malla said...

Hér skín sól í dag, loksins. Búið að vera ömurlegt veður, endalaus rigning og kalt!! ég ætla því að skella mér beint í sund. Ég var ein með strákana í gær eftir mat og eitthvað gaf sig í grindinni svo ég gat ekki stigið í hægri fötinn án þess að veina, og KÖ spurði mig hvort ég væri fótbrotin!!! Kom þeim samt í rúmið og er ekki svona í dag, sem betur fer. Nú fer þetta vonandi að styttast ;)