Friday, May 1, 2009

Það er svo margt------

Fyrsti maí, og ég alveg að drepast í bakinu. Úti skín sólin eftir hressilegar þrumur í gærkvöldi, sem slökktu á sjónvarpinu og slógu öllu út. Ergilegt að geta ekki gert neitt. Komst varla framúr í morgun, og nú er lokað hjá lækninum fram á mánudaginn. Tja, seinheppin gamla, eða?
Annars erum við hress með veðrið og nýju nettenginguna, sem er nú loks að komast í lag. Fyrst alls konar vesen. T.d. komust sendingarnar ekki í gegn um loftið (vegginn)--kassinn er niðri, og þurfti að kaupa tvö tæki til að setja við tölvurnar uppi. Svo þarf að gera ý forrrit við hitt og þetta, en nú fer ég að geta skrifað mail aftur. Alveg frábært.
Arnhildur er slæm af kvefi, bólgum og ég veit ekki hvað. Komin á fúkkalyf og púst ef ég skildi það rétt.
Hún og Kristín eru að spá í að koma í júnílok til okkar og svo Fúsi á eftir. Hann fær því miður ekki frí fyrr en í ágúst og við Margrét förum aftur í skólann þann 6.8. Ömurlegt.
Það á sem sagt eftir að græja farseðla og kanna hvert flogið verði og svo framvegis. Og hvort við getum pantað þá héðan og borgað héðan.

Kristín Draheim hringdi loks í mig í morgun. Hún er skilin við gaurinn og komin með nýjan. Æðislegt. Hann býr í Berlin með stóra íbúð. Er mikið í útlöndum, og ég fær fljótlega fréttir um nafn og vinnu :):):) Maður er jú forvitinn. Kannski getum við gist þar ef liðið kemur til Berlinar. Kristin ætlar að kanna það. Hún vinnur við háskólann við Frankfurt við pólsku landamærin samhliða náminu, og er að klára háskólanámið þar í júní. Skrifar svo verkefnið í haust og klárar næsta febrúar.
Svo er það spurningin með Köben----Diddi--er Eiríkur enn eigandi að íbúðinni---er hann enn að lána hana út, --væri hægt að fá að gista??? Mér skildist um jólin að Fúsa langaði svo mikið til Köben. Og það er nú nóg að laga þar hvað rafmagnið varðar!

Maria vinkona M. kom í gær. Þær horfðu á sjónvarpið og sváfu í stofunni. Eru núna að fá sér morgunmat. Hef þetta ekki lengra í bili þar sem Klaus þarf í tölvuna.
Næst verður svo að fá sér nýjan síma, sem hægt er að nota við nettenginguna, og þá verða símtölin heim ódýr!!! Og svo nýja tölvu--þessi gamla er eitthvað klikk.
Ástarkveðjur og til hamingu með nýju stjórnina og gleðilegan fyrsta maí!!!!!!

2 comments:

Thordisa said...

Viltu fá Guðnýju með Arnhildi út svo þær Kristín geti leikið sér saman?

Anonymous said...

Láttu þér batna, systir. Allt á huldu með hús Eiríks, hann er að reyna að selja það, en maður veit ekki hvernig það gengur. Ef hann á það enn í sumar er allt mögulegt og bara að spyrja hann þegar einhverjar dagsetningar liggja fyrir í stórum dráttum.