Þá er búið að ganga frá fluginu og einni sorg minna. Arnhildur og Kristín svo og Guðný koma til Frankfurt þann 21. júní, sem er sunnudagur. Fúsi minn kemur svo 6.8. og þá er meiningin að Guðný fari-líklega ein--til baka með vélinni, sem hann kemur með. Og svo fara þau þrjú frá Berlin þann 20. ágúst. Við gáfumst upp á Köben hugleiðingum. það var allt eitthvað svo flókið. Vonandi getum við farið þangað seinna og kannski draumurinn rætist að Margrét fari þar í háskóla í framtíðinni.
Takk fyrir uppörfandi gagnrýni Malla, Kristín og Þórdís. Auðvitað hafið þið á réttu að standa. Maður verður að vera í Pollýönnu leik og sætta sig við að ekki allir fái gáfur, fegurð og hæfileika. Gera það, sem maður getur úr sínum fátæklegu genum, og muna að ekkert jafnist á við góða fjölskyldu. Því það er óneitanlega það, sem mestu skiftir. Sambandið við börnin og gleðin yfir velgengni þeirra. Það ætti að vera ljúft að hafa þessa afkomendur mína hér í tvo mánuði, og vonandi láta flugur og aðrar pöddur okkur í friði. Spennt að sjá hvernig þær litlu haga sér í námd við vespur og annan ófögnuð:):):)
Margrét er í samkomuhúsinu ásamt 6 öðrum úr bekknum. Þær eiga að spila og syngja þessi lög, sem þær sömdu í tónmennt í vetur. það er samkoma þar sem veitt eru verðlaun fyrir frammistöðu í erlendum tungumálum. Margrét vann þar önnur verðlaun í fyrra. Núna fer athöfnin fram hér. Þær eru hressar að losna við kennslu. Verða sjálfsagt allan tímann frá 10-13. Svo ætlar Klaus að koma klukkan 16 að ná í hana og gítarinn og leikfimitösku og skólatösku þar sem ég fer á fund klukkan 15.30. Við fáum að vita hvernig nefndinni líst á skólann okkar.
Það var rigning i morgun, en sólin er komin fram.
Ég er með kvef og hrædd um að komast ekki í aðgerðina ef ég verð ekki hressari. Eða mér skilst að kvef geti verið ástæða fyir því að ekki sé hægt að skera mann upp? Hvað segir hjúkkan???
Pabbi og mamma alsæl eftir ferðina. Fengu gott veður og stemmingin var æðisleg. Synd að Lilla missti af þessu. Held að Liney hafi átt afmæli í gær. Ti hamingju með það- Siggi og Annett, sem líklega lesa aldrei svona bullblogg :) En bestu kveðjur samt!
Vona að Margrét fari að hafa tíma til að setja myndir inn hjá mér. Gott að hafa tvær í slíkt í sumar, eða þrjár--sennilega er Guðný orðin flink í slíku líka. þau læra þetta svo fljótt blessuð börnin.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
Ádda mín!! Það getur svo sem verið að einhver hafi ekki gáfur,fegurð eða hæfileika, en það á svo sannarlega ekki við um þig!!!!!! Þú hefur þetta allt saman, ekki skyggja á það ;)
nákvæmlega það sem ég ætlaði að skrifa þú ert falleg innra sem ytra og gáfuð ertu nú systir góð og þess vegna ertu svona mikið að spá og spekúlegar. Hæfileika hefurðu marga og núna er bara að hætta þessu kvarti hehe... ég veit að þú vildir ekki skipta við mig í dag þar sem ég sit á Þjóðarbókhlöðunni og læri eins og páfagaukur hundleiðinlegt efni sem ég verð búin að gleyma strax eftir prófið.. Njóttu þín í sólinni og þetta verður hresst sumar hjá þér vittu til
Ádda... þú stendur þig betur en í síðasta bloggi en.... Þú verður að muna að þú átt fullt af gáfum, fegurð og hæfileika líka :o) Þú bara horfir of mikið á gallana til að sjá kostina!!!
Og ekki velta þér upp úr hugsanlegum vandamálum sem gætu orðið í sumar, hugsaðu frekar um það hvað það verður hrikalega gaman hjá ykkur öllum.... vandamálin fara ekkert þó þú veltir þér upp úr þeim, frekar að taka á þeim ef/þegar þau koma upp :o)
kv
Kristín frænka sem fyllist bjartsýni við að reyna að fylla þig bjartsýni :D ég heppin að eiga þig að :D
Post a Comment