Laugardagskvöld, og við gömlu búin að horfa á krimmann, sem var voða sorglegur. Ein af uppáhaldslöggunum dó barasta. Að fara svona með mann :) Margrét var að nota nýju tæknina og horfði á mynd í tölvunni. Við töluðum og horfðum á Þórdísi og Didda í gær í gegn um "vebkammeru", frábært að komast í svona samband. Hver ykkar er með Skype-- við erum til í að tala/ horfa á sem flesta !!!
Heilsan er miklu betri í dag. Ég lifi nú líka á verkjatöflum, og sat í gær í marga klukkatíma með hitaflösku við bakið. Fegin að geta aftur gert eitthvað. Við gömlu fórum að ná í mulinn börk, mauraeitur, sniglaeitur og nokkur sumarblóm. Svo stóran poka af grillkolum. Plokkaði illgresi, og við settum börkinn yfir. Svo setti ég mottu á beðið við "tjörnina" og mokaði litlum steinum yfir hana. Hún á að virka sem bremsa á illgresið. Það fer að koma að því að þessi tjörn skarti sínu fegursta, en eftir er að gera kant í kring. Þorði nú ekki í það í dag, enda fékk ég örugglega í bakið eftir að setja kantsteina niður um síðustu helgi.
Margrét var að læra fyrir próf. Hún var smá slöpp og illt í hálsinum. Kannski er hún með eitthvert ofnæmi og fær þess vegna í hálsinn. Það er að segja hún er jú með ofnæmi, og þessi húsmóðir þrífur sjálfsagt ekki nógu vel :) En hún er bara brött núna.
Ég bakði eina köku með kaffinu. Verslaði í Rewe, og kvöldmaturinn var grillmatur. Ég er alveg forfallin í sætar kartöflur, og hef þær sem oftast. En þau feðgin vilja nú ekki líta við þeim.
Það er svo sem ekkert að segja nema garðvinna að venju og fáa sér maður eða heyrir. En það ætti að breytast ef við fáum góðar heimsóknir frá Íslandi í sumar!!!!
Hafið það gott á laugardagskvöldi. Saknaðarkveðjur.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Alltaf gaman að sjá myndir, þið eruð aldeilis dugleg að gera fínt í garðinum. Hér er búið að vera nokkuð gott veður, er búin að raka hálfan garðinn og hreinsa beðin, en nóg eftir.Elli er að smíða nýja glugga í íbúðina fyrir sunnan, förum suður upp úr miðjum mai og skiptum um gluggana. ég er á fullu að undirbúa vorsýningu skólans, þetta er allt að hafast. Hlakka til þegar þessu öllu lýkur. mamma er hér núna, er háttuð núna, kl er 11, hún er hress og lítur betur út með hverjum deginum.Pabbi í Rvík. Annars allt gott. kv affí
Gott að þú ert betri í bakinu. Ég er ekki farin af stað ennþá, en með fullt af fyrirvaraverkjum og væri sko meira en til í að fara að stað fyrir alvöru og klára dæmið :) En þetta kemur allt með kalda vatninu, er komin 38+1 í dag svo það er eitt á hreinu, það eru ekki margar vikur í barnið!!! Hlakka til að sjá myndir af tjörninni í skrúða, nú er miklu skemmtilegar að sjá myndir frá þér, þegar ég er búin að sjá þetta allt "live".
Post a Comment