Thursday, August 13, 2009

Vika eftir.

Þá styttist í ferðina heim hjá KD og Arnhildi. Vika eftir. Og ekkert búið að redda bílaleygubíl, en það verður vonandi ekkert mál. Það er svo margt annað að gera. Í gær skruppum við til Ikea eftir viðkomu í mótorhjólabúðinni, sem Elli fann í fyrra. Augun í Fúsa voru stór og glansandi og brosið náði milli eyrnanna. En þar sem þetta HD drasl er allt of dýrt var nú ekki annað keypt en límmiði, sem er með glimmer. Okkur finnst það passa svo vel við Fúsa, híhíhí.
Meiningin var að kaupa fullt af laxi í Ikea, en allt uppselt og sendingin, sem væntanleg var, kom ekki. En þá keypti ég bara slatta af sósum í staðinni, og tvær rjómatertur með jarðarberjum.

Vorum að tala við mömmu, Ástu, Guðnýju, Þórdísi og pabba á S. Gaman að geta séð þau. Allir voða duglegir þar á bæ. Við málningarstörf, en á húsgögnum og ekki á húsinu eins og hjá Möllu minni, sem fer örugglega að verða biluð á málningarvinnunni. Dugleg stelpa Malla mín--baráttukveðjur!!!

Margrét í skólanum frá 7.30 til 16.15, og var bara hress með daginn. Líst vel á þýskukennarann, og krakkarnir voru skárri í dag í Politik-kúrsinum. Strákar eru bara óþolandi í skól! Diddi- er það ekki !!!!!
A., F. og KD fóru í hádeginu á bílnum mínum til BS til að finna einhverja aðra mótorhjólabúð, sem fannst svo ekki. Þau koma sér náttúrlega ekki framúr á morgnana og voru í tímaþröng þar sem ég þurfti bílinn vegna sjúkraþjáfunar klukkan 14.30. Svo þau komu og fóru svo aftur. Margrét frekar leið að enginn var hér þegar hún kom nema gamla mamma, sem gaf henni gúllassúpu og te. Og við horfðum á sápna án þess að Fúsi fytjaði upp á trýnið og segði að það væri sápulykt í stofunni :):):)

Ég fór á fund í gærkvöldi í foreldrafélaginu og á meðan bónuðu Fúsi og KD bílinn mínn. Hann er því allur í skellum,- hér og hvar fínt rauður og annars staðar bleikur! Hann er svo ótrúlega upplitaður.

Var svo hjá Weiland í dag. Hann sér ekki miklar breytingar á skjaldkirtlinum, og segir að ég eigi að fara í röntgenmyndatöku þar sem það séu 4 ár frá því þetta uppgötvaðist og þurfi að fylgjast með þessum hnútum. Allavega ekki neitt vont, eða ekki segir hann. En hann er nú ekki sérfræðingur, blessaður.

Gengur vel í gæslunni, og ég var inni í dag með 4 úr fyrsta bekk, sem eru voða sæt og ljúf (enn!)
Já, blessuð börnin, og ekki lagast þau alltaf með aldrinum. Mér leið bara illa eftir að sjá mynd af fallegri frænku, sem er á fullu í mótmælum gegn lífinu og tilverunni. En þetta veður víst að ganga yfir og ég trúi því að menn læri af reynslunni og þar sem gáfur og góð gen eru fyrir hendi, er klárt að góður drengur getur orðið úr unglingsrugli. Eða haldið þið það ekki líka. Ég er bara bjartsýn eftir mikla umhugsun og andvöku. Og ég held að maður hljóti að geta komið góðu áleiðis með hlýjum hugsunum og kannski nokkrum bænum upp á við. Æ, mér þykir svo vænt um svo marga og er sjálfsagt með allt of miklar áhyggjur.
Jæja. Fer að styttast í fund í skóla Margrétar og hallar í hálf sjö. Ekkert bólar á Ránargötuliðinu, sem hefur sjálfsagt sett sig niður á bekk í BS og horfir á mannlífið. Klaus að drukkna í vinnu og ekki heldur kominn. Mikið er gott að vera "nýuppskorin" og hafa fullt af afsökunum fyrir að gera ekki neitt!!!!

2 comments:

Anonymous said...

Hér er allt í rólegheitum, enginn vaknaður nema ég enda klukkan bara rúmlega 8. Fer í skólann á eftir að reyna að klára tiltekt og frágang, síðan verður farið austur og reynt að gera eitthvað skemmtilegt þar um helgina. Það verður náttúrulega tómlegt þegar liðið fer heim, en þá er bara að vera dugleg að skæpa til að halda sambandinu.
Bestu kveðjur til ykkar.
Diddi

Malla málari,tihi said...

Já það eru sko orð að sönnu að ég sé komin með nóg af málningarvinnu!!! En voða verður þetta fínt þegar þetta verður búið, þá tek ég myndir og set á smettisbókina, ekki spurning.