Friday, August 28, 2009

Barasta nýklippt.

Föstudagskvöld. Margrét búin í skólanum hálf þrjú. Við borðuðum soðinn lax fra Aldi, hinn besta lax, og skelltum okkur svo til BS. Himneskt veður. Sól og ein 24 stig. Reyndar sólarlítið í morgun, og leit út fyrir rigningu, en hér heldur allt áfram að skrælna. Ég var að klippa blóm og greinar um tíma í morgun. Er alltaf að verða hressari. Sjúkraþjálfarinn minn, sem er æðislega indæl kona frá Póllandi, kennir mér fleiri og fleiri æfingar. Ég á svo að velja úr, og skiftast á að gera þetta og hitt. Er komin með dýnu inn í stofu, og vona bara að ég verði dugleg að æfa mig.
Dreif Klaus í gönguferð í gær þegar hann var rétt kominn inn úr dyrunum. Hann sveikst svo um að fara í dag þar sem ég var ekki til að reka hann af stað. Ég sjálf gekk alveg nógu langt í bænum.
Fór í klippingu hjá konunni, sem klippti dætur mínar. Er bara hin ánægðasta, og vona að mér takist að halda þessu við. Og neyða mig til að fara oftar í klippingu, sem er eitt af því leiðinlegasta sem ég geri. Margrét fór í uppáhaldsbúðirnar sínar. Við keyptum svo hettupeysu fyrir veturinn og BH á hana. Vildi að ég þassaði í allt eins og hún ! Keypt te, og svo lá leiðin heim. Búið að klára núðlusalatið, sem ég gerði í gær, og borða brauðið fína, sem ég skellti í ofn fyrir kvöldmatinn. Vantaði eitthvað í nesti handa Margréti. Svona er það þegar engin Arnhildur er hérna, sniff, sniff.
Skrapp í smá stund eftir kvöldmatinn til Frau Kühle með hálft brauð og spjallaði smá við hana.
Við mæðgur horfðum svo áðan á sápuna okkar, sem við tókum náttúrlega upp til að hverfa úr þessum heimi yfir í aðra og meira spennandi. Svo er Margrét komin á kaf í Grace, -Klaus kominn í háttinn og ég að fara þangað fljótlega.
Nú, pabbi með kæfisvefn. Ég hélt að það væri löngu vitað! Eins gott að eitthvað verði gert í því.
Bestu kveðjur nær og fjær. Góða helgi.

3 comments:

Malla said...

Oh ég elska að fara í klippingu, lít á það sem hálfgert dekur!!! Hér í Rvík er fallegt veður þessa helgi og heppilegt til að mála, Siggi hennar KE kom í gær og málaði, þetta smá þokast áfram....

Þorgerður said...

Er lengi lengi lengi búin að ræða um þennan kæfisvefn!!

Thordisa said...

sama hér elska klippingu það er mesta dekur sem ég veiti mér um þessar mundir hehe.. já pabbi er búin að öskra um árabil og kominn tími til að hann hætti því. Annars er bara gott að frétta skólinn gengur sinn vanagang og ég vona að þetta verði nú bara ok vetur