Klukkan er tíu mín. yfir tíu, og allir nema við Klaus komnir í rúmið. Margrét þarf á fætur klukkan hálf sjö, og ég að mæta í blóð-sugutíma, sem eflaus fellur Kristínu og Þorgerði vel í geð :) Arnhildur að lesa Harry Potter, og Fúsi kominn á kaf í mótorhjólablað. Þakka kærlega fyrir kommentin, sérstaklega Didda. Margrét sagði í dag þegar hún las kommentið frá Affí-- "er Diddi ekki búinn að skrifa að það eigi að gefa mér nagla!" Og nú er það komið á prent, híhí.
Skötuhjúin fóru til BS á litla rauð. Komu aftur um 7, frekar þreytt eftir búðarröltið. KD fékk tvennar buxur fyrir veturinn. Og Fúsi fann bremsur á línuskautana sína.
Ég var svo rugluð að ég steingleymdi kennarafundinum í skólanum, sem var klukkutíma eftir að gæslunni lauk. Þetta hefur ekki komið fyrir mig áður. Tja, gömul kona, eða með alsheimer á háu stigi, eða þannig. Verð víst að afsaka mig á morgun.
Fékk ekki nema tvær stelpur í viðbót í gæsluhópinn minn. Tek 1 B, og verð í þeirri stofu. Á svo eftir að sortera dótið mitt og koma fyrir. Sjá til hvort ég fer í það fyrir helgi. Erum úti til að byrja með.
Hringdi í mömmu og talaði lengi við hana. Svo bakaði ég sykurbollurnar sívinsælu, og bjó til te handa okkur Margréti. Hún kom vel þreytt en bara ánægð eftir tvo tíma í tennis. Verður næstu skifti, eða á meðan veðrið er gott, hérna á Vorfeldweg á tennisvellinum í leikfimi. Hún gat valið sér kúrsa, og valdi tennis, badminton og eitthvað fleira.
Kynntist einni nýrri í dag, sem kennir einhverja undirbúningskúrsa fyrir ritgerðir og að mér skilst háskólanám. Æ, ég reyni ekki að skilja þetta kerfi hérna.
Já , og svo bjó ég til hafrakex-deig, sem á að bíða í kæli yfir nótt. Komst ekki út í búð þar sem Klaus kom ekki heim fyrr en á eftir Arnhildi. Nennti ekki á hjólinu, því það þarf að versla ýmislegt. Og fer því bara í fyrramálið.
Margrét að lesa "Remember me" sem er eftir þá sömu, sem skrifar Shopaholik, sem myndin var gerð eftir. Þetta eru ágætis afþreyingarbækur. Kristín--tilvalið í óléttu-leiðindum :)
Aldís Björns þýddi , held ég, báðar þessar yfir á íslensku.
Jæja, nú fer ég líka að leggjast á koddann. Góða nótt þið öll heima.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
Lífið heldur greinilega áfram á ágætu róli þarna hjá ykkur. Hefði alveg viljað vera með ykkur frekar en sitja í skólanum í dag og sortera margra ára pappíra frá því fyrir 9:30 í morgun og fram til korter fyrir 7. Er með alla kúrsa nýja eða breytta og ég verð því að koma öllum pappírum í lag. Ekki hægt að segja að þetta sé það skemmtilegasta sem til er, en náttúrulega löngu tímabært. Hafið það gott. Bk.Diddi
nei, ég þýddi bara aðra þeirra ;-)
,,ég" er Aldís...
Post a Comment