Wednesday, August 26, 2009

Veit þið saknið skrifa minna.

Miðvikudagur, og hallar í kvöldmatinn. Margréti þykir ég vera léleg í blogginu. Sem satt er. Það var nóg að gera síðustu dagana, sem Arnhildur var hér. Og heilsan ekki alveg í lagi. Hitinn fór illa í mig og ég fékk smá svimaköst. Nú er allt í besta gengi. Tiltekt og aftur tiltekt. Búin uppi og byrjuð niðri. Sængurnar komnar í kistuna, koddarnir líka og allt þvegið. Ekki lengi að þorna í hitanum. Búið að færa aftur til húsgögnin. Ryksugað í dag í stofunni, sem veitti svo sannaráega ekki af. Allt látið bíða þar til liðið færi. Betra að nota tímann dýrmæta í annað.
Það er tómlegt hjá okkur mæðgum. En þar sem Margrét hefur fengið frí í þó nokkrum tímum hef ég ekki verið ein alla morgna. Hún var t.d. bara í einum tvöföldum tíma i dag. 11-13.
Svo kom Lennart að læra latínu. Við settumst framan við sápuna og svo ætlar Margrét að melda sig í ökuskólanum á eftir. Það eru hálfur annar tími í hvert skifti og sannarlega tímaþjófur , ofan á allt annað.
Mikið að gera hjá Klaus, sem hristir hausinn yfir fólki, sem ekki getur tekið gagnrýni á verkum sínum. Meira að segja ekki skilið að verið sé að setja út á eitthvað. Svona er það líka í vinnunni hjá mér. Ines er nokkurn veginn óþolandi heimsk og löt, og ég gæfi mikið fyrir að hún hætti. En reyni að lifa við þetta, og fá krakkana til að koma sem oftast til mín úr hennar hópi.
Ekkert heyrt í Arnhildi nema smá á facebook, og hún eitthvað kvefuð eftir komuna til landsins kalda. Vona svo að þau séu búin að taka upp úr töskunum og ryksuga eftir kettina, hehehe.
Hugurinn auðvitað heima í dag. Vildi vera með ykkur á jarðarför Stínu frænku. En verð að láta mér nægja að hugsa til ykkar. Eins og svo oft áður.
Úti skín sólin og golan er hlý. Flott að horfa á nýklipptu Herdísi (tréð, sem ég vil fella alveg, en Klaus ekki ) ,sem var snyrt af Fúsa, og munur að sjá fína þakið á skúrnum.
Er búin að fara með dótið, sem ég sótti í gamla skólann, og koma því í nýja skólann. Það tók lengi mikið pláss í skúrnum. Á svo eftir að taka skúrinn í gegn og það bíður enn um sinn.
Hafið það sem best. Vonandi fáið þið gott haust heima.

3 comments:

Þorgerður said...

Falleg athöfn í gær. Hitti ættingja sem ég hef ekki séð í tugi ára... Svo var opið hús á Hávallagötunni í gærkvöldi, ég komst ekki þar sem Gilli er á Selfossi og Hildur var að vinna. Lilla, Jonni og Láki fóru, keyra svo norður í dag en pabbi, mamma, Siggi og Affí fóru í gær.
Allt að komast í sinn vanagang. Dagur Elís byrjaður í skóla og er afar spenntur, Helga Margrét fylgir honum á morgnana og er byrjuð aftur í dansinum, Hildur komin á fullt í skólanum.
Bestu kveðjur!!

Anonymous said...

Vona að þið fáið gott haust sömuleiðis! Hér er allt að fara í gang, Ástþór Örn kominn í 1. bekk og Arnaldur Kári í aðlögun á leikskólanum. Ég þyrfti nú að fá örlítið af tiltektarkraftinum þínum þar sem var líkt og fallið hefði sprengja eftir heimkomuna úr sveitinni!! Ég reyni að saxa á þetta samhliða öðru :o)

Hafið það sem best í Meinersen og ekki vanrækja okkur allt of mikið sem ekki erum á Facebook!!

Malla said...

ég er í haust gír þessa dagana, búin að tína rifsber 3 kvöld og einn dag, hreinsaði svo í gær og sauð. Þarf svo að sjóða aftur í dag og skella á krukkur. Einar Örn fór norður með ömmu og afa og fær að fara í réttir, kemur svo á sunnudag með Gígju. Það á að vera þurrt um helgina og ég hugsa að við málum eins og við getum :S kv. Malla