Morgunmatur með nýbökuðum Brötchen. "Skrautsykur" og súkkulaði fra Hollandi ofaná. Allir komnir fram fyrir 11, þetta eru algjörar hetjur :) Sólin að koma fram, og hver veit nema mér takist að reka liðið út í göngutúr eða einhverja hreyfingu :), hehe.
Þær fengu allar bæjarþrá í gær, og skruppu í innkaupaferð til BS. Margréti vantaði buxur fyrir leikfimina, og KD líka. Svo voru snyrtivörur á tilboði og fleira spennandi.
Við gömlu heima, og drukkum te og kaffi, spjölluðum og tókum lífinu með ró. Klaus ætlaði að slá grasið, en hann fór að rigna og þessu verður lokið í dag.
Það var ósköp notalegt að koma hem. Ferðin gekk vel og allt smellpassaði. Við vorum nefnilega á síðustu stundu að ná lestinni, en það var bara smá "kikk", og allt í lagi.
Hótelið var ágætt, en ekki neitt margra stjörnu eins og verðið bendir til. Sængur og koddar ekki sérlega hrein, en sængurverin til allra lukku vel þykk! Þurftum að setja sjálf utan um og taka af aftur. Auðvitað farið með sótthreinsandi í plastflösku, og notað óspart, enda svínaflensan í uppsiglingu.
Fyrsta kvöldið var fremur svalt, og við tókum alltaf með okkur jakka og hlýrri föt þegar við hreyfðum okkur. Og eins og allir vita dugar það til að maður fái ekki rigningu ef regnfatnaðurinn er með!
Eftir tékk inn á hótelið var farið í bæinn. Spennandi að fara í sporvagninn. Allt annað kerfi þarna en hér. Við keyptum okkur 3ja sólarhringa kort. Þau gilda líka sem afsláttarmiðar í mörg söfnin eða jafnvel að maður fái frítt inn. Litlu fengu kort, sem þurfti að skanna í hvert sinn, sem farið var inn í vagn eða strætó, og við kort, sem var stimplað og þurfti að sýna í hvert sinn. Í vögnunum eru bílstjórar og einn korta-seljari/eftirlitsmaður aftast. Séu kortin ekki í lagi pípar eitthvað, og það er vonlaust að svindla. Það er heldur betur hraði á bílstjórum þarna. Við ríghéldum okkur í slárnar þegar ekið var í beygjum, og ekki eru hjólreiðamenn betri. Eins gott að horfa vel í kring um sig!!! Sporvagnarnir aka eftir miðjum verslunargötunum. Tvo spor, og ekki allt of mikið pláss fyrir gangandi fólk. Og þar sem þeir aka með stuttu millibili er eins gott að hafa augun opin. Var satt að segja smeik um liðið :) Æ, þessar mömmur/ömmur.
Ekki mikið um gönguljós og hollendingum þykir ekki mikið til rauðu ljósanna komið. Við vorum farnar að hafa hollenska háttinn á, og fara bara yfir á rauðu.
Það var náttúrlega ekki auðvelt að finna eitthvað, sem var við allra hæfi. En allir voru hrifnir af markaðnum, sem er daglega við eina brúna, og í leiðinni í bæinn frá okkur séð. KD keypti sér tösku og sólgleraugu, og ef við værum ríkar, hefði verið verslað mun meira.
Við skiftum liði annað slagið. Ég fór með þær stuttu í Tunfun, æðislegt krakkaleiksvæði. Þar eru rennibrautir, klifurgrindur, litlir bílar og svartur kassi til að klifra í svo eitthvað sé nefnt. Þarna sat ég í næstum 3 tíma og sendi svo Þórdísi reikning fyrir tíma hjá eyrnalækni!!! Það sem börn geta haft hátt!!!!!
Systur fóru á meðan í Van Gogh safnið, og við hittumst svo á hótelinu. skruppum í matvælaverslun og borðuðum úti í sólinni. Bannað að vera með mat á herbergjunum. Svo var farið í bæinn, og rölt um. Leituðum að báti, og fórum i siglingu. það var bara alveg frábært. Yndislega falleg hús, og veðrið hið besta.
Enduðum á pönnukökuhúsi, og fengum okkur n.k. íslenskar pönnukökur. Með mismunandi fyllingu. Margrétar með súkkulaði og það var svo seðjandi að hún gat ekki einu sinni klárað! Mín með karamellusósu og krókant, Arnhildar með eplarjóma, og Guðný fékk sér bara sykur í hrúgu! KD ekki hrifin og fór í staðinn á hamborgarastað.
Næsta dag farið í vaxmyndasafnið, og beðið í hálftíma í röð. Þar var aðalskemmtunin að fara í herbergi þar sem sjóræningjar öskruðu og hristu keðjur. Ég fór fram hjá þessu með töskuna, -gekk ganginn fyrir konur með börn :), og sagði svo við konu , sem beið með börnin sín--ég held að þetta séu mínar dætur, sem eru að öskra!!! Já, flott safn og gaman að koma þarna. Og nóg af myndum á facebook hjá Margréti. Við vonumst eftir kommentum!!!!
Svo var labbað um bæinn. Farið í nokkrar búðir og Margrét keypti sér tösku. Fundum Ben og Jerrys ís-kaffihús. Guðný fékk næstum áfall af gleði! Þar var setið yfir vöfflum með ís, sósum og kaffi. Löbbuðum lengi eftir gangstétt meðfram hinum og þessum síkjum. Fram hjá Önnu Frank húsinu, en þar var vel löng röð. Yfir í hverfi, sem sagt var frá í grein, sem blessunin hún Annett sendi okkur. Verst að markaðurinn er bara opinn tvisvar i viku. En við römbuðum á búð með gömlum teiknimyndasögum og strumpum!!! Arnhildur fékk 5, sem hún á ekki, Já, þvílík sæla.
Endað á ítölskum veitingastað. Pizza, spaghetti, lasagne og salat. og farið í matvöruverslun að ná í drykki, og bollur. Við Arnhildur keyptum okkur æðislegan búðing. Held að ég gæti fitnað vel ef ég byggi í Hollandi!!!!
Síðasta daginn var dótið skilið eftir á hótelinu. Skruppum smá stund á markaðinn. Svo fór Arnhildur með stelpurnar á Nemo, vísindasafn eða hvað það skal kalla. Við Margrét fórum í búðarrölt, og fundum slatta af búðum, sem sagt var frá í greininni hennar Annnett. M.a. æðislega búð með kjólum frá Sixties, geðveika ballkjóla, sem gaman var að skoða. Svo komu stelpurnar til okkar og við fórum á æðislegasta safn í heimi. Nefnilega töskusafn. Þarna eru töskur af öllum gerðum. Fallegar og hræðilegar, í lagi sem fiskar og apar, með flugum sem skraut , og úr roði. Ein frá Madonnu, Luis Vuitton, Imeldu Markos. Með paliettum, góbelíni. Og allt í æðislegu húsi, sem var með æðislega snyrtingu. Ofan við klósettið var m.a.s. ein taska!
Nú. Svo var haldið í verslun að ná í nesti. Farið á hótelið og við þurftum að bíða svo lengi að við náðum ekki strætó straks. Löng leið með honum, og ekki nema tíu mín. í að lestin færi. En sem áður segir. Allt reddaðist.
Skiftum jarðarberjatertunni á milli okkar, sem var aðalnestið! Svona frómaskaka!!!! Og svo bollur með upprúlluðu súkkulaði, og sulta í túbbu. Já, margt öðruvísi, sem er gaman.
Nú fer heldur betur að styttast i lok frísins. Margrét fer svo á morgun í kveðjuhóf til Celle. Birthe fer til Mexiko í ár. Við ætlum að eyða einhverjum tíma í Cella. Svo er ekki búið að plana meira, en spáð er 30 stiga hita á miðvikudaginn, og skólinn hefst á fimmtudaginn, ergilegt, sniff sniff.
Sennilega fer Arnhildur ein með Klaus að ná í Vigfús, og fara með Guðnýju. Þetta er svo seint að Margrét getur ekki farið með. Hún þarf jú að vakna klukkan 6.20 morguninn eftir.
Já, ekki er eitt sumarfrí lengi að líða.
Jæja, vona að þið nennið að kvitta. Bestu kveðjur frá liðinu á Vorfeldweg.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
8 comments:
Þetta hefur aldeilis verið gaman. Já tíminn líður hratt, VÖ verður farinn suður eftir rúmar þrjár vikur, og Aldís byrjar í skólanum eftir 20 daga. Vildi að við gætum verið öll saman í fríi einhvern tíma. M og P ætla suður til Didda, kannski skreppum við Elli yfir hálendið ef veðrið verður áfram svona gott fyrir sunnan, og lítum þá við í bústaðnum. Kv affí
Gaman að lesa þetta. Þetta hefur greinilega verið skemmtilegur tími. Þú ættir að gera meira af því að skreppa til nágrannalandanna. Er það ekki bara Prag næst? Þetta hefur verið flott sumarfrí fyrir Guðnýju og ykkur hin. Samúðarkveðjur til Margrétar skólastelpu.
BK Diddi
Greinilega mikið fjör í Amsterdam... það væri frábært að geta skellt sér upp í lest og skoðað nýtt land :o)
Sérdeilis frábært frí sem að stelpan er að fá þarna hjá ykkur. Takk kærlega fyrir þetta ógleymanlega sumar hennar, en viltu nú fara að skila henni væna :o)
kv. Ingó
Skemmtileg ferðasaga ;) Hér er búið að mála og mála og gefa vinnumönnum að eta, þvo þvott og allt hvað eina. Ég held ég verði bara hálf fegin þegar skólinn byrjar og við ÁE verðum hér einar heima ;)
hæ hæ gamla mín bannað að vera fúl yfir fáum kommentum við höfum bara ekkert verið heima þessa vikuna vorum á ferðalagi og svo er sumar og sól og maður nennir varla tölvum en við erum að reyna eins og við getum :-). Hlökkum til að fá Guðnýju heim aftur og vildum gjarnan vera að fá ykkur með í leiðinni. Mamma og pabbi komu í dag með Úlf og fóru svo upp í bústað ég náði ekki að sjá þau var ekki heima en þau koma á fimmtudaginn til að taka á móti Guðnýju.
Nóg að gera og allt spennandi og skemmtilegt heyrist mér! Gott mál.
Nú erum við hér sunnanlands loks komin í frí, erum í ,,rólegheitum" hérna heima fyrstu vikuna, krakkarnir í Ferienprogramme og finst voða spennandi og gaman. Síðan erum við að fara norður á boginn núna á laugardaginn, erum búin að fá okkur Ferienwohnung í Wesenberg - Mecklenburgische Seenplatte, leigja kanú og allt voða spennandi! Hlökkum mikið til. Förum svo til Hannover þar sem börnin ætla að fá að vera í viku, tíu daga hjá Oma og Opa... En við hjónin stoppum ekkert nema eina nótt, höldum síðan aftur suðureftir! Þannig að ekki sjáumst við nú í þessari ferð, en þá bara þeirri næstu..
Bestu kveðjur og hafið þið það öll voða gott, Aldís
Vildi bara benda þér á að ég er búin að blogga tvisvar á þremur dögum.... fyrstu blogg síðan í byrjun júní :þ
Post a Comment